Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 58
Nánara samstarf
milli krakkanna
— Hvers vegna ertu í æskulýðsfé-
lagi, Snorri?
„Ég byrjaði í Æskó Neskó bara til
að prófa hvernig væri að vera í æsku-
lýðsfélagi. Ég vissi ekkert hvað þetta
var og vildi prófa aðeins, geta dæmt af
eigin raun og hefi haldið áfram að
vera í félaginu.“
— Hvað er svona gott við að vera í
Æskó Neskó?
„Það er bæði skemmtilegt og gaman
að hitta krakkana í félaginu og síðan
að fræðast meira um Guð. Það sem
einna best er við veruna í æskulýðsfé-
lagi er að félagsskapurinn er svo náinn
— miklu nánari heldur en í skólanum
og annars staðar þar sem ég þekki til.
Við kynnumst rosalega mörgum
krökkum. Mikið samstarf er á milli
krakkanna hérna á Reykjavíkursvæð-
inu. Við förum í heimsóknir í önnur
æskulýðsfélög, eigum samverustundir
þar sem öll æskulýðsfélögin koma
saman og síðan eru tvö helgarmót.
Þarna kynnast krakkarnir vel. Það er
hópvinna með efni úr Bíblíunni og
rætt um mörg mál sem við eigum erf-
itt með að fóta okkur á.“
— En hvað með Guð? Hvað er
svona mikilvægt við hann?
„f æskulýðsfélögunum komum við
saman á fundum, biðjum saman,
syngjum saman og fræðumst út frá
Orði Guðs. Þarna er oft beðið fyrir
einhverjum og við erum einhvern veg-
inn í nánara samfélagi hvert við annað
heldur en annars væri. Það er gott að
geta beðið til Guðs og í bæninni get-
um við sagt allt við Guð, sagt Jesú frá
öllu sem við erum að velta fyrir okk-
,ur.“
— Finnst þér æskulýðsfélagið vera
öðruvísi heldur en fermingarfræðslan?
„Þetta er allt annað. Fermingar-
fræðslan var meira skóli. Þarna getum
við sjálf haft áhrif á það sem verið er
að gera.“
— Hvað gerið þið fleira á fundun-
um?
„Við syngjum saman létta söngva
við gítarundirleik, hlustum á Guðs
orð og biðjum saman. Á eftir förum
við í borðtennis eða í eitthvert spilið
sem við höfum aðgang að og spjöllum
saman. Þetta er því heilbrigður fé-
lagssskapur sem ég hvet aðra til að
prófa eins og ég gerði og sé ekki eftir
því.“
Öllum líður vel í æsku-
lýðsfélaginu
„Jú, mig langaði til þess að læra að-
eins meira um Guð eftir að fermingar-
fræðslunni var lokið og þess vegna
ákvað ég að fara í Vini,“ segir Val-
gerður. „Mér finnst gaman að syngja
þessa léttu söngva sem við syngjum á
fundunum við gítarundirleik. Að auki
58