Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 21
SKATASTARF
„Á þessu ári má vænta þess að
margir skátar á íslandi og víða um
hinn frjálsa heim rifji upp skáta-
œvintýri, minningar um fjölþætta
þátttöku í skátastarfi og heilladrjúg
áhrif þess á líf þeirra og störf
Ærin ástæða er til hugleiðinga og
endurferðar um farinn veg, um
gamla slóð, og leita uppi vörður
þær er geyma leiðsögn til fræðslu,
frama og farsœldar þeim er þar
vilja staðnæmast, leita átta og fara
að tilmælum og kenningum frum-
herjans og hugsjónamannsins Sir
Roberts Badens Powells því að á
þessu ári eru liðin 130 ár frá fæð-
ingu hans.
Á árinu 1987 eru fjöldamörg
önnur minnisverð tímamót skáta
og ber hér hæst 75 ára skátastarf og
65 ára kvenskátastarf á íslandi. Pá
hafa tvö stórfélög átt 50 ára afmæli
á árinu. Það eru Hraunbúar í
Hafnarfirði og Heiðabúar í Kefla-
vík. “
Þannig hefst grein eftir Jón Tóm-
asson, skáta frá Keflavík, sem birt-
ist í blaði fyrir skömmu. Okkur
þótti tilvalið að byrja þessa grein
um merkan áfanga skátastarfs með
þeim orðum.
75 ára
afmæli
skátastarfs
á íslandi
í flokkum eru t.d. flokksforingi, að-
stoðarflokksforingi, ritari, gjaldkeri,
varðeldastjóri, sendiboði og spjald-
skrárritari. Þannig er tryggt að allir
hafi nóg að starfa.
Skátar hafa minnst tímamótanna
með ýmsum hætti. M.a. var flutt há-
tíðadagskrá í Háskólabíói. Páll Gísla-
son, fyrrverandi skátahöfðingi, setti
hátíðina. í ávarpi hans kom fram að
nú eru um 16000 skátar á íslandi og
um 100.000 íslendingar hafa einhvern
tíma tekið þátt í skátastarfi.
Meðal þeirra sem fram komu voru
Gunnar Eyjólfsson leikari, Guðmund-
ur Jónsson söngvari, Halla Margrét
Árnadóttir söngkona og Ingimar
Eydal hljómlistarmaður — en þau
hafa öll starfað sem skátar.
Auður Gunnarsdóttir og Guðrún
Hólmgeirsdóttir, skátar úr Árbæjar-
hverfi, fluttu söngleik, 40 skátar frá
Akranesi léku látbragðsleik, Bræðra-
bandið, skipað bræðrum úr skátafé-
lögunum Dalbúum í Reykjavík og
Hraunbúum í Hafnarfirði, flutti laga-
syrpu og 20 manna afmælishljómsveit
skáta úr Reykjavík og nágrenni lék
nokkur lög og undir söng milli atriða.
Að lokum ávarpaði Ágúst Þor-
steinsson skátahöfðingi gesti og hvatti
skáta til dáða.
í tilefni afmælisins var nokkrum
fyrrverandi stjórnarmönnum Banda-
lags íslenskra skáta afhent Gullmerki
skátahreyfingarinnar. Hrefna Tynes,
sem í mörg ár sá um skátaefni í Æsk-
unni, var ein þeirra.
Æskan óskar skátahreyfingunni til
hamingju með afmælið og alls hins
besta.
Þess má að lokum geta að Æskan
og stjórn BÍS hefur gert samkomulag
um að blaðið flytji fréttir af starfi
skáta og skátaefni. Við fögnum því að
taka upp þráðinn aftur.
, Að starfa sem skáti er bæði skemmti-
legt og þroskandi. Leitast er við að
þjálfa skáta í að vinna með öðrum og
að gera þá færa um að bjarga sér sjálf-
ir. Skátar læra margt nytsamlegt,
t.a.m. hjálp í viðlögum, ratvísi, mat-
reiðslu og að binda hnúta — og taka
próf til staðfestingar kunnáttu sinni.
Útivera, útilegur og mót er gildur
þáttur í skátastarfi. Farið er í flokks-
útilegur, haldin félagsmót, landsmót
og alheimsmót.
Baden-Powell lagði áherslu á að all-
r ir félagar fengju verkefni við sitt hæfi
og tækju virkan þátt í starfi. Hann tók
því upp þá skipan að í hverjum flokki
t ynnu saman 6-8 skátar; 4-6 flokkar
mynduðu sveit; viðlíka tala sveita væri
saman í deild og þær nokkrar í félagi.
Deildaskipting er ekki í öllum félög-
um, það fer eftir fjölda.
21