Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 54

Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 54
Umferðarskólinn Það var einu sinni lítil stelpa. Hún hét Kristín. Hún var í skólanum þegar kennarinn tilkynnti að nú ætti hún að fara í umferðarskóla daginn eftir. Þeg- ar Kristín kom heim kallaði hún til mömmu sinnar: „Mamma, ég á að fara í umferðar- skólann á morgun." „Heldurðu að það verði gaman?“ spurði mamma hennar. „Það verður örugglega gaman,“ svaraði Kristín. í umferðarskólanum fékk svo Krist- ín poka og blað. Sendandi: Betsý Ágústsdóttir, 6 ára, Vestmannaeyjum. Gátur Ása Brynja Reynisdóttir, Traðarlandi 2, Bolungarvík, sendi Æskupóstinum eftirtaldar gátur: 1. Að hvaða leyti líkist pylsa pípu? 2. í hvaða æðum rennur ekkert blóð? 3. Hvað er líkt með snigli og smyrj- ara? 4. Á hvaða fiski er styst milli augn- anna? 5. Hvaða vík er full af húsum? 6. Hvar situr maður þegar maður fer í skólann? 7. Maður nokkur átti 6 dætur og hver þeirra átti einn bróður. Hve mörg börn átti maðurinn? 8. Efst er lifandi vera, neðst er lifandi vera og leður á milli. Hvað er það? Rétt svör er að finna á bls. 70. Ánægð með starfs- kynninguna Hæ, hæ! Ég vil lýsa yfir ánægju minni með starfskynningarnar í Æskunni. Það er mjög gott og þarft efni. Mig langar í leiðinni til að koma með tillögu um starf sem þið mættuð gjarnan taka fyr- ir. Það er bókasafnsfræði. í hveiju felst starfið? Situr maður bara og stimplar út bækur eða fær maður tæki- færi til að nota kunnáttu sína í bóka- safnsfræðum? Lýk ég svo þessu stutta bréfi og kveð. Heiódís L. Magnúsdóttir, Víðigrund 11, 550 Sauðárkróki. Til Kolbrúnar! Hæ, hæ! Það var stelpa sem sendi mér vegg- myndir af Madonnu og Söndru ný- lega. Hún heitir Kolbrún en gleymdi að skrifa heimilisfangið sitt þannig að ég get ekki sent henni myndir til baka. Ef hún les þetta er hún beðin um að senda mér heimilisfangið sitt. Bless, Sigurlína Bjarnadóttir. Skrifið um dýr Ég heiti Ingunn og er 11 ára. Ég hef nýlega eignast fiska og langar því til að biðja ykkur um að vera með gælu- dýraþátt og skrifa m.a. um fiska, ketti, kanínur, hunda og hamstra. Bless og þökk fyrir gott blað. Ingunn. Lesið úr skriftinni Kæri Æskupóstur. Ég vil fyrst þakka fyrir einstaklega frábært og skemmtilegt blað. Svo langar mig til að fá svör við nokkrum spurningum. 1. Er möguleiki á að fá fjölbreyttari krossgátur en nú eru í blaðinu? 2. Hvert er heimilisfang Látúnsbark- ans? 3. Getur Æskupósturinn lesið úr skrift? Ef svo er getið þið lesið úr minni? Ein sem þykir gaman að spyrja. Svör: 1. Við höfum komið ósk þinni á fram- fœri við þann sem semur krossgátur fyr- ir okkur. Það er vissulega alltaf erfitt að gera öllum til hœfis. Einu sinni vorum við með stóra og fremur þunga kross- gátu en fengum lítil viðbrögð og hcett- um þess vegna að birta hana. 2. Við vitum heimilisfang hans en get- um því miður ekki Ijóstrað því upp. Þú getur hins vegar skrifað í nýja þáttinn, Aðdáendum svarað, sem kynntur er í þessu blaði á bls. 16, og freistað þess að Bjarni svari bréfi þínu. 3. Já, við getum lesið úr skrift — en aðeins þegar krakkar eldri en 12-13 ára skrifa því að skrift yngri barna er svo ómótuð. Úr þinni skrift má lesa að þú ert metnaðargjörn, ákveðin en örlítið þrjósk — og þroskuð miðað við aldur. Draumaprinsar Kæra Æska. Ég vil lýsa draumaprinsinum mín- um. Hann er með dökkbrúnt hár, blá augu og 174 sm á hæð. Hann fæddist ÆSKUPÓSTURINN 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.