Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 39
UPP EFTIR JÓLATRÉNU
Leikreglur
Þátttakendur geta verið tveir eða fleiri.
Velja má um hvort spilaður er hægri
eða vinstri hlutinn. Skemmtilegast er
að skipta í tvö lið og spili hvort á sinni
hlið. í lið má til að mynda skipta þann-
ig:
Allir kasta teningnum einu sinni; sá
sem fær hæst kastar þá aftur og fetar
eftir vinstri brún ef hann fær oddatölu,
annars á hægri hlið.
Hitt „liðið“ leikur þá á hinni hliðinni.
Nota skal einn tening.
Til að komast út frá byrjunarreit þarf
1 að koma upp á teningnum.
Til að komast á markreit þarf að fá
nákvæmlega rétta tölu. Ef það tekst
ekki er beðið þar til í næstu umferð.
Reitir
Þannig ferð þú að:
78 — 88: Á þessum reitum er „rekið
burt“ yfir á „biðstöð" — þ.e., ef þú
ert staddur á einhverjum þessara reita
og andstæðingur þinn kemur þar
einnig verður þú að hörfa yfir á reitinn
sem merktur er „biðstöð". Ef lið eru
að leik reka samherjar ekki hverjir
aðra. Til að komast af „ biðstöð “ þarf
ekki að fá 2 heldur skal færa eftir
þeirri tölu sem upp kemur.
29: Til að komast á þennan reit þarf að
fá nákvæmlega rétta tölu. Ef of há tala
kemur upp skal færa á „biðstöð“ og
bíða þar uns 2 koma upp á teningn-
um.
7,12 og 17: Ef þú lendir á einhverjum
þessara reita getur þú valið um hvort
þú vilt fara yfir á „hopp“-reit og kom-
ast þaðan yfir á jólatréð, þ.e. að stytta
þér leið, eða fara venjulega leið.
Ef kosið er að hoppa er það gert á eft-
irfarandi hátt:
Frá reit 7:
Næst þegar að þér kemur kastar
þú teningnum tvisvar. Ef þú
færð jöfnu hoppar þú yfir á þann
reit sem örin vísar á — ef ekki
bíður þú eina umferð. Síðan tel-
ur þú frá reit 7 og heldur áfram
eins og venjulega. Þú færð því
aðeins eitt tækifæri til að reyna
að stytta þér leið.
Frá reit 12:
Hér kastar þú þrisvar og ef þú
færð tvo eins í tveimur kastanna
máttu „hoppa". Ef það tekst
ekki bíður þú tvær umferðir áður
en þú heldur áfram.
Frá reit 17:
Þú færð fjögur köst og mátt
„hoppa“ ef þú færð jöfnu í
tveimur þeirra. Ella ber þér að
bíða meðan aðrir leika þrjár um-
ferðir.
Um þetta gildir sérstök regla:
Ef „hoppað“ er og andstæðingur er
fyrir á reitnum sem lent er á fer hann á
„biðstöð". (Sama regla og gildir á reit-
um 78 — 88)
14: Þegar að þér kemur aftur færir þú
um þrefalda töluna sem upp kemur!
22: Hægri hlið: Þú bíður eina umferð.
Vinstri hlið: Þú færð aukakast.
27: Hægri hlið: Heppin(n)! Héðan er
farið beint yfir á reit 29.
Vinstri hlið: Því miður á að fara á „bið-
stöð“.
10 (vinstri): Ef lið leika verður þú að
bíða hér þar til aðrir í liðinu hafa farið
hjá. Ef þú ert síðastur liðsmanna áttu
að bíða eina umferð.
Ef einstaklingar leika ber að bíða eina
umferð.
20 (hægri): Héðan verður því mið-
ur ekki komist fyrr en 2 eða 3 koma
upp á teningnum.
34: Hér kastar þú tvisvar (strax eftir að
þú lendir á reitnum) Ef þú færð jöfnu
eða röð færir þú á reit 48. Ef það tekst
ekki heldur þú áfram eins og venju-
lega þegar röðin kemur aftur að þér.
38: Þú safnar kröftum fyrir langt „klif-
ur“ og bíður eina umferð.
45: Smá aðstoð er veitt: Næst má
færa um tvöfalda þá tölu sem upp
kemur.
50: Mikillar þreytu gætir hjá þér svo að
þú missir fótanna og fellur niður á reit
40.
56: Þú færð gott tækifæri til að flýta
fyrir þér: Þú kastar teningnum þrisvar;
ef þú færð samanlagt 12 eða meira
færir þú um þá tölu, annars færir þú
eftir lægstu tölu sem þú fékkst.
63: Þú þarft að hugsa þig aðeins um
og bíður eina umferð. ( næstu umferð
þarf að fá 1, 2 eða 3 til að halda áfram.
Ef 1 kemur upp er fært á reit
64: og ágætt tækifæri gefst: Kasta má
þrisvar og færa á reit 85 ef jafna kem-
ur upp í tveimur af köstunum. Annars
er fært fram um 5 reiti.
70: Þú verður að flytja þig tvo reiti til
baka.
75: Þú situr fastur (föst) þar til 6 kem-
ur upp á teningnum og færð þá eitt
aukakast í kaupbæti.
83 — 84: Þú ert orðinn svo þreyttur
að þú veltur alla leið niður á reit 58!
87: Þreyta ber þig einnig ofurliði hér
og þú veltur niður en nærð að stöðva
þig á reit 78.
Góða skemmtun!
39