Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 45

Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 45
Unglingasaga eftir Eðvarð Ingólfsson Annar hluti Langþráð stund er runnin upp! Svenni er kominn aftur í bæinn. Doddi, frændi hans, bauð honum í 14 ára afmælið sitt. En það er alls ekki afmælið sem hann hefur mestan áhuga á. Það er að hitta Agnesi! Frá því að þau hittust fyrir hálfum mánuði hefur hann beðið þess með óþreyju að sjá hana aftur. Hann hefur átt erfitt með að sofna á kvöldin fyrir hugsunum um hana — og hefur ekki getað einbeitt sér að náminu sem skyldi. Það er Agnes sem allt snýst um þessa dagana! Honum finnst líf sitt standa og falla með því hvort hún vill eitthvað með hann hafa. Hann hafði skrifað henni og boðið henni að koma í afmælisveisluna — með Dodda leyfi að sjálfsögðu. Hún kvaðst í næsta bréfi ætla að þiggja það þó að hún segðist feimin við að hitta marga ókunnuga krakka. Auðvitað hefði verið best að geta hitt hana einhvers staðar í ró og næði þar sem engir aðrir hefðu séð eða heyrt til þeirra en hann gat ekki látið sér detta neinn stað í hug. Þetta var skásti kosturinn. Og nú er afmæliskvöldið mikla runnið upp og Svenni kominn í bæinn aftur. Doddi er búinn að bjóða átta krökkum í veisluna auk Svenna og Agnesar. Foreldrar hans og eldri systkini verða ekki heima sem betur fer þannig að hópurinn fær að vera í friði fyrir forvitnum augum og blak- andi eyrum. Mamma Dodda er búin að matreiða þrjár stórar pitsur og hann þarf ekkert annað að gera en hita þær upp og bera fram. Doddi og Svenni hafa alla tíð verið góðir vinir enda hafa þeir svipuð áhugamál. Þeir eru bræðrasynir. Doddi hefur oft heimsótt Svenna upp á Skaga og verið hjá honum um helg- ar og í sumarleyfum. Þegar Svenni er svo á ferð í bænum dvelst hann heima hjá honum. — Ég hlakka til að sjá þessa Agn- esi, segir Doddi í fimmta sinn við Svenna meðan þeir bíða eftir fyrstu gestunum. Ja, hérna, þú ert bara kominn með kærustu! Eftir matinn er plata sett á fóninn og Doddi hvetur krakkana til að dansa. Fyrst í stað fæst enginn til þess en svo brjóta tvær stelpur ísinn. — Hva. . ætlið þið ekki að dansa? spyr Doddi og mænir á Svenna og Agnesi. Þurfti hann þá að koma með eitt- hvað svona? Langar hann til að sjá hvernig þau taka sig út, nýja parið? — Kannski á eftir, segir Agnes og brosir. — Við björgum okkur, engar áhyggjur, bætir Svenni við og sendir Dodda ljótt augnaráð. Hann langar ekkert til að dansa í þessari björtu stofu og leyfa hinum krökkunum að njóta þess að sjá þau dansa saman. Hann hugsar frænda sínum þegjandi þörfina. Doddi hverfur á braut, hefur líklega skilið augnaráðið. — Dansar þú sjaldan? spyr Agnes Svenna. — Já, frekar. Ég kann ekki mikið. — Þið strákarnir eruð slappir við að dansa. Hvernig stendur á því? Svenni ypptir öxlum, veit það ekki. — Kannski erum við feimnari en þið. Þau spjalla saman um íþróttir drjúga stund og hlusta á tónlistina. Svenna er farið að líða betur; hann er ekki eins stressaður og áður. Doddi er farin að dansa við stelpurnar. — Heyrðu, sjáðu hvað frændi þinn er duglegur að dansa, segir Agnes allt í einu. Hann er dansfrík! Svenni tekur lítt undir það. Honum er ekkert um það gefið að Doddi komist í sviðsljós Agnesar. Honum finnst hann hoppa eins og bjáni í takt við tónlistina, — greinilega hugsað til að stela senunni. Nokkru seinna sest Doddi hjá þeim. Svitinn bogar af honum. — Eruð þið ekki í stuði? spyr hann. Af hverju dansið þið ekki? — Æi, þú veist að ég er svo lítið gefinn fyrir það, segir Svenni fýldur og vonar að hann fari sem fyrst. — En má ég þá nokkuð bjóða þér upp? spyr Doddi blákalt og horfir á Agnesi. Það koma vöflur á hana; hún gýtur augum til Svenna eins og hún sé að at- huga viðbrögðin hjá honum, horfir svo aftur á Dodda og kinkar kolli. — Sé þig, segir hún við Svenna og deplar öðru auga. Andartaki síðar eru þau byrjuð að dansa. Svenni situr eftir með sárt ennið og reiðin sýður í honum. Kvikindið hann Doddi! Af hverju gerði hann honum þetta? Skyldi hann vera að reyna við hana? Svenni neitar að trúa því en allt er nú til. Agnes er þess virði að strák- ar fórni miklu, jafnvel vináttu. Svenni fylgist grannt með Dodda og Agnesi næstu mínútur. Þau virðast skemmta sér vel og hann fær ekki bet- ur séð en þau brosi hvort til annars. Þegar þau dansa fimmta dansinn í röð er Svenna nóg boðið. Hann rýkur inn í næsta herbergi. Hann getur ekki horft upp á þetta lengur. Sá skal fá fyrir ferðina! Framhald. 44 45 Svenni átti sjálfur eitt sinn kærustu en sú vinátta stóð ekki nema í tvær vikur. Þau kynntust í félagsmiðstöð. Hann er myndarlegur strákur og ætti sennilega auðvelt með að eignast nýja kærustu ef hann legði sig fram. Hann er miklu kaldari að tala við stelpur en Svenni og mörgum þeirra finnst hann skemmtilegur. — Við erum bara góðir vinir, svar- ar Svenni afsakandi og finnst óþægi- legt að láta kalla Agnesi kærustu sína þegar hún er það ekki. Það er ögrandi fyrir hann. Kannski verður ekki neitt úr þessu hjá þeim. Gestirnir tínast inn, einn og einn. Það fer um Svenna í hvert sinn sem einhver hringir bjöllunni. Hann bæði kvíðir fyrir og hlakkar til að hitta Agnesi. Hann er á nálum! Þegar Agnes er ekki komin klukkan hálf níu fer Svenni að ímynda sér allt það versta. Kannski hefur hún hætt við og misst áhugann á honum? Kannski þorir hún ekki ein? Hvað á hann að taka til bragðs ef hún kemur ekki? Henda sér í sjóinn? Hann fylgist með stórri klukku á stofuveggnum og er byrjaður að naga neglurnar. Stundarfjórðungi eftir að allir gest- irnir eru komnir nema Agnes glymur í dyrabjöllunni. Hjartað í Svenna tekur viðbragð. Mínútu seinna stendur hún bros- andi í dyrunum og heilsar þeim Dodda. Uff! Nú, getur Svenni andað dálitlu léttar. Doddi hefði kallað hann lygalaup ef hún hefði hætt við að koma. Hann hefði áreiðanlega reiðst því að hann hlakkaði svo mikið til að sjá hana, þessa sem Svenni var búinn að lýsa nákvæmlega fyrir honum. Agnes er stórglæsileg í kvöld, — miklu, miklu sætari en fyrr. Sú hefur puntað sig! Hún hefur látið stytta hárið dálítið og er komin með permanent. Bleikur varalitur myndar umgjörð kringum mjallhvítar tennur hennar. Hún er eitt bros þegar hún heilsar þeim. Svo er hún klædd bleikri skyrtu og leðurbuxum. Svenni sér að Doddi hefur misst andlitið. Hann horfir lengi á Agnesi með opinn munn og skáskýtur síðan augunum á Svenna. Öfundin skín úr þeim. Hann trúir greinilega ekki sín- um eigin augum. Engin smá skutla! les Svenni úr þeim. Agnes og Svenni fá sér sæti hjá. krökkunum. Helst hefði hann viljað setjast á eintal við hana en Doddi býður þeim að sitja hjá hópnum. Auð- vitað getur hann ekki haft á móti því. Það er óþægilegt að geta ekki spjallað við hana í ró og næði. Þau hafa nefni- lega svo lítið kynnst. Eftir skamma stund ber Doddi fram heitar pitsur og kó. Þær eru alveg meiriháttar! Gestirnir borða þær með bestu lyst. Það þarf ekki að segja þeim að fá sér meira. STEFNUMÓTIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.