Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 34

Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 34
Á JÓLVNVM í fyrsta jólablaði Æskunnar skrifaði Sigurður Júlíus Jóhannesson ristjóri eftirfarandi pistil lesendum til umhugs- unar. Okkur finnst fara vel á að birta hann nú, níutíu árum síðar. Áminning Sigurðar um að sýna öllum samúð sem bágt eiga og miður mega sín á fullt er- indi við okkur þó að margt sé breytt frá því sem áður var og lífskjör séu al- mennt miklu betri. Þá má gjarna líka hugsa um höf og lönd. Á jólunum eiga allir að vera glaðir og kátir ef mögulegt er. Á jólunum á öllum að koma vel saman og börnin eiga ekki að stríða hvert öðru. Þau eiga að vera þæg við mömmu og pabba og góð við systkini sín og alla menn. Ef þið þekkið einhver börn sem ekkert geta keypt sér fallegt á jólun- um þá er gustuk fyrir ykkur að gefa þeim eitthvað ef þið getið. Ef eitthvað gengur að einhverju barni svo að það getur ekki verið glatt á jólunum þá eigið þið að fara heim til þess og reyna að gleðja það. Ef þið sjáið þyrsta hesta standa við brunnana á jólunum þá eigið þið að vera svo góð börn að vatna þeim eða biðja einhvern að gera það. Skepnun- um á líka að líða vel á jólunum. Eins og þið vitið fæddist Jesús Kristur á jólunum. Hann elskar litlu börnin og honum þykir vænt um ef þið reynið að vera góð og lík honum. JÓL AÐ FQRNl HANN VILL AÐ ÖLLUM LÍÐI VEL Það var jólakvöld. Lítill drengur sat á steini niðri við sjó og starði út í blá- inn; hann átti enga foreldra og hafði enga jólagjöf fengið. Það var kuldi og frost og koldimmt myrkur. Allt í einu sá hann að kveikt var í húsi einu skammt frá honum og skömmu síðar heyrði hann fagran söng og hljóðfæra- slátt. Hann stóð upp, gekk að glugg- anum, steig upp á stein sem var við þilið og horfði inn í húsið. Ó, þar var allt svo ljómandi fallegt og skemmti- legt. Mörg börn voru þar inni í fal- legum fötum, öll með sitt kertið hvert í annarri hendi og bók í hinni. Maður lék á hljóðfæri og allir sungu undir. Hann fór að hlusta til þess að vita hvað væri verið að syngja. Það var sálmur um barnið sem fæðst hafði á jólunum: „Hann vill að okkur öllum líði vel,“ sungu börnin með svo skærum og hríf- andi rómi. „Skyldi hann ekki líka vilja að mér líði vel?“ hugsaði litli drengurinn og færði sig nær glugganum. „Ó, ég vildi að ég væri orðinn eitt af þessum börn- um! Dæmalaust eiga þau skemmtileg jól.“ Allt í einu skrikaði honum fótur, hann rann út af steininum, rak hönd- ina í gluggann, braut í honum eina rúðuna og datt niður í bleytuna. Hús- bóndinn stökk út til þess að vita hvað um væri að vera og öll börnin á eftir. Þegar þau komu út var litli drengur- inn að standa á fætur aftur. Hann hafði skorið sig á hendinni á rúðu- brotunum og var bæði óhreinn og blóðugur. Þar að auki var hann dauð- hræddur um að maðurinn héldi að hann hefði ætlað að gera eitthvað illt af sér og yrði því vondur við sig. „Ég ætlaði ekkert að gera illt!“ stundi hann upp í hálfum hljóðum; „ég var bara að horfa inn og hlusta á sönginn.“ „Vertu óhræddur!“ sögðu öll börn- in, „komdu inn með okkur; má hann það ekki, pabbi?“ „Jú, börnin mín,“ sagði faðir þeirra og svo leiddu þau hann inn, færðu hann í falleg föt og þvoðu hann allan. Svo fóru þau að leika sér í kringum jólatréð og héldu áfram að syngja um litla barnið sem fæddist á jólunum. Litli drengurinn hlustaði á þau með athygli en hann gat ekki sungið með þeim því að hann kunni ekki það sem þau sungu. Hann hafði aldrei verið eins sæll og þetta kvöld. „Nú sé ég að hann vill líka að mér líði vel,“ hugsaði hann, „hann vill að öllum börnum líði vel.“ Þegar jólin voru liðin fór hann heim aftur, ekki í rifnu fötunum sínum gömlu heldur í fallegu fötunum sem börnin færðu hann í þegar hann kom; þau gáfu honum fötin. Það má geta nærri að hann hefur verið þeim þakk- látur en vænst af öllu þótti honum samt um að þau gáfu honum eina af bókunum sem þau höfðu sungið á um þann sem vildi að öllum börnum liði vel. Sigurður Júlíus Jóhannesson þýddi. Sagan birtist í 6. tbl. 1. árg. Æskunnar, 21. des- ember 1897. 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.