Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1987, Page 58

Æskan - 01.12.1987, Page 58
Nánara samstarf milli krakkanna — Hvers vegna ertu í æskulýðsfé- lagi, Snorri? „Ég byrjaði í Æskó Neskó bara til að prófa hvernig væri að vera í æsku- lýðsfélagi. Ég vissi ekkert hvað þetta var og vildi prófa aðeins, geta dæmt af eigin raun og hefi haldið áfram að vera í félaginu.“ — Hvað er svona gott við að vera í Æskó Neskó? „Það er bæði skemmtilegt og gaman að hitta krakkana í félaginu og síðan að fræðast meira um Guð. Það sem einna best er við veruna í æskulýðsfé- lagi er að félagsskapurinn er svo náinn — miklu nánari heldur en í skólanum og annars staðar þar sem ég þekki til. Við kynnumst rosalega mörgum krökkum. Mikið samstarf er á milli krakkanna hérna á Reykjavíkursvæð- inu. Við förum í heimsóknir í önnur æskulýðsfélög, eigum samverustundir þar sem öll æskulýðsfélögin koma saman og síðan eru tvö helgarmót. Þarna kynnast krakkarnir vel. Það er hópvinna með efni úr Bíblíunni og rætt um mörg mál sem við eigum erf- itt með að fóta okkur á.“ — En hvað með Guð? Hvað er svona mikilvægt við hann? „f æskulýðsfélögunum komum við saman á fundum, biðjum saman, syngjum saman og fræðumst út frá Orði Guðs. Þarna er oft beðið fyrir einhverjum og við erum einhvern veg- inn í nánara samfélagi hvert við annað heldur en annars væri. Það er gott að geta beðið til Guðs og í bæninni get- um við sagt allt við Guð, sagt Jesú frá öllu sem við erum að velta fyrir okk- ,ur.“ — Finnst þér æskulýðsfélagið vera öðruvísi heldur en fermingarfræðslan? „Þetta er allt annað. Fermingar- fræðslan var meira skóli. Þarna getum við sjálf haft áhrif á það sem verið er að gera.“ — Hvað gerið þið fleira á fundun- um? „Við syngjum saman létta söngva við gítarundirleik, hlustum á Guðs orð og biðjum saman. Á eftir förum við í borðtennis eða í eitthvert spilið sem við höfum aðgang að og spjöllum saman. Þetta er því heilbrigður fé- lagssskapur sem ég hvet aðra til að prófa eins og ég gerði og sé ekki eftir því.“ Öllum líður vel í æsku- lýðsfélaginu „Jú, mig langaði til þess að læra að- eins meira um Guð eftir að fermingar- fræðslunni var lokið og þess vegna ákvað ég að fara í Vini,“ segir Val- gerður. „Mér finnst gaman að syngja þessa léttu söngva sem við syngjum á fundunum við gítarundirleik. Að auki 58

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.