Æskan - 01.12.1987, Page 8
Lísa: Lalli, veistu að jólin koma
eftir tvo klukkutíma?
Lalli: Já, þá koma jólin í hin húsin
en ekki hingað. Heldurðu kannski
að jólin komi þangað sem allt er
fullt af drasli og engar jólagjafir?
Lísa: Og mamman á spítala og
pabbinn úti á sjó og allir í fýlu
nema Lilla litla.
Lilla: Da, da, da.
Lalli: Hún er bara svo vitlaus grey-
ið. Hún veit ekki að jólin eru að
koma. Annars færi hún ábyggilega
að grenja.
Lísa: Mig langar líka mest til að
fara að skæla. Veistu, Lalli, að ég
er svo hrædd?
Lalli: Aumingi. Við hvað ertu
svona hrædd?
Lísa: Ég er svo hrædd um að við
förum í jólaköttinn af því að við
fáum engin jólaföt og engar jóla-
gjafir.
Lalli: Jólaköttinn, asni. Trúirðu á
jólaköttinn? Heldurðu þá ekki líka
að jólasveinninn og Grýla og
Leppalúði komi og eti þig?
(Dyrnar opnast. Inn kemur jóla-
kötturinn, síðan Grýla, Leppalúði
og jólasveinninn)
Lísa: Lalli, Lalli komdu, komdu!
Jólakötturinn er kominn til að eta
okkur.
(Pau stökkva upp á borð)
Jólakötturinn: (við Lillu) Mjá,
mjá.
LUla: Da, da, da.
Lalli: Hann etur Lillu, hann etur
Lillu!
Jólasveinn: Hvaða læti eru þetta,
börnin góð? Sjáið þið ekki að kisi
er bara að leika við Lillu. Hann er
löngu hættur að eta börn.
Lalli: Nú, það er gott. En hverjir
eru nú þetta?
Jólasveinn: Þetta eru foreldrar
mínir, þau Grýla og Leppalúði.
Okkur datt í hug að líta hér inn af
því að það var svo kalt úti og jólin
rétt að koma.
Lísa: Jólin koma ekkert hingað af
því að pabbi er á sjó og mamma
varð fyrir bíl og liggur rænulaus á
spítala og það er allt í drasli og
engar jólagjafir.
Lalli: Og enginn jólamatur
— bara Grýla og Leppalúði.
Grýla: Skammastu þín, strákur, að
taka svona á móti gestum. Á ég
kannski að flengja þig?
Leppalúði: Láttu ekki svona,
Grýla mín. Sérðu ekki hvað börn-
in eiga bágt? Þetta eru áreiðanlega
bestu skinn.
Jólasveinn: Já, við skulum taka
höndum saman og reyna að kippa
þessu í lag svo að jólin geti komið
hingað.
Lísa: Við verðum þá að byija að
laga til.
Lalli: Ekki laga ég til.
Grýla: Þú lagar bara víst til,
óþekktar ormurinn þinn.
Leppalúði: Svona, svona, hættu
þessu Grýla. Það er mikið hvað þú
nennir að standa í illindum eins og
þú ert orðin gömul.
Jólasveinn: Jæja, nú skal ég
stjórna. Leppalúði, þú ferð og
sækir jólatré. Við tínum upp dótið
og Grýla sópar.
(Allir hamast við að taka til. Grýla
sópar með miklum látum. Er næst-
um búin að sópa hillu og jólakett-
inum í ruslið)
Jólasveinn: Hættu nú, Grýla,
hættu, þetta er nóg. Jæja, nú geta
Er ekki tilvalið að nota tímann meðan við bíðum eftir jólunum til að
æfa leikrit? Svo er hægt að leika það fyrir heimafólk eða í jólaveislunum.
Hér er leikrit sem sjö leikendur taka þátt í. Einu sinni léku sjö ára
krakkar í Laugarnesskólanum það og gekk alveg Ijómandi vel. Góða skemmtun!
8