Æskan - 01.12.1987, Page 9
að til að einhver borði það!
Lalli: Leppalúði er bara þjófur. Ég
er viss um að hann á eftir að lenda
í fangelsi.
Grýla: Og þið skulið bæði lenda í
fangelsi uppi í hellinum mínum,
ormarnir ykkar. (Þrífur í Lalla og
Lísu)
Jólasveinn: Slepptu krökkunum,
mamma. Þú veist að það eru mörg
hundruð ár síðan þú hættir að stela
börnum.
Grýla: Ekki nema tvö hundruð.
Lísa: Jæja, nú geta jólin komið.
Það er allt tilbúið.
Lilla: Da, da, da.
Kisa: Mjá, mjá.
(Síminn hringir)
Lísa: Halló, já, já. Hvenær? Takk.
Húrra, mömmu er að batna! Við
megum heimsækja hana á eftir.
Jólasveinninn: Húrra, við skulum
koma þangað öll.
Leppalúði: Þegar við erum búin að
borða.
(Sex klukknaslög).
jólin komið. Það er allt orðið svo
fínt.
Lísa: Nei, það er ekkert jólatré.
Leppalúði: (kemur inn) Hér kem
ég með jólatréð.
Lalli: Húrra, jólatré, jólatré.
Lísa: Nei, heyrðu. Er þetta ekki
tréð sem var búið að setja upp í
lystigarðinum?
Leppalúði: Jú, það stóð þar eitt og
yfirgefið á sjálfa jólanóttina. Mér
finnst miklu betra að hafa það hér
inni. Það vill enginn halda jól úti í
þessum kulda.
Grýla: Nei, þetta er alveg rétt hjá
Leppalúða.
Lísa: Jæja, þá vantar bara jólamat-
inn.
Leppalúði: Ég skal sækja hann.
(Fer)
Lalli: Og jólagjafirnar svo að við
förum ekki í jólaköttinn.
Grýla: Viltu bara hætta að tala illa
um jólaköttinn. Annars læt ég
hann eta þig.
Jólakötturinn: (setur upp kryppu)
Grr, grr.
Jólasveinn: Verið þið róleg. Nú
skulum við sjá hvað ég hef í poka-
horninu.
(Tekur gjafir upp úr pokanum og
raðar á borðið)
Leppalúði: (Kemur inn) Hér kem
ég með blessað hangikjötið og nú
vil ég að við förum að borða.
Lísa: Mér sýnist þetta vera úr
glugganum á kjötbúðinni hér á
horninu.
Leppalúði: Já, og til hvers held-
urðu að því sé stillt út? — Auðvit-
Allir syngja lokasönginn saman.
Lag: Skreytum hús með greinum
grænum.
Klukkur hringja, komið öll
og kringum jólatréð nú göngum við.
Gleðjast menn og gömul tröll.
Þau Grýla’ og Lalli hafa samið frið.
Sniðugur er Leppalúði,
lék sér að finna’ okkur jólamat.
En hann Stúfur stóri, prúði
stjórnað öllu þessu liði gat.
Gaman þótti Grýlu’ að sópa,
gerði Lillu’ og jólaköttinn hrædd.
Lalli vildi liggja’ og skrópa.
Lísa var svo ósköp skelfing mædd.
Nú er aftur allt svo gaman
enda fær Stúfur nú mikið hól.
Dönsum öll og syngjum saman
sæl því hingað komu líka jól.
IMA
Persónur: Lalli 7 ára — Lísa 6 ára — Lilla 1 árs —
Jólakötturinn — Grýla — Leppalúði
(Leikurinn gerist í stofunni heima hjá börnunum. Þar er rusl úti um
allt)
9