Æskan - 01.12.1987, Síða 18
FRÍMERKJAKLÚE8UR ÆSKUNNAR
Það er nú orðið nokkuð langt síðan
ég spjallaði við ykkur, lesendur Æsk-
unnar, um frímerki. Nú hefur orðið
að ráði að ég geri smá tilraun með
frímerkjaþætti á ný.
Ég ætla samt að hefja þetta með því
að óska Æskunni til hamingju með ní-
ræðisafmælið.
Það mun hafa verið 1965 sem ég
byrjaði að skrifa um frímerki í Æsk-
una og gerði það til 1972 eða í um sex
ár. Áður hafði ég skrifað í blaðið þeg-
ar ég var á fermingaraldri og þá dýra-
sögur og leikrit og kannski eitthvað
fleira.
Svo stofnuðum við frímerkjaklúbb
Æskunnar á sínum tíma og urðu fé-
lagar um eitt þúsund. Þá voru gerðar
skrár yfir félaga og hverju þeir söfn-
uðu og sendar öllum þátttakendum.
Svo gátu þeir skrifast á og skipst á
frímerkjum. Hafa einhverjir áhuga á
að endurtaka slíkt? Ef svo er geta þeir
skrifað mér. Nafn mitt og heimilisfang
er:
Sigurður Þorsteinsson,
Laugarhóli, 510 Hólmavík.
Einnig má utanáskriftin vera:
Frímerkjaþátturinn,
Pósthólf 523, 121 Reykjavík.
AUGUSTE MAYER DIÚPIVOCUR VIÐ BERUFJÖRÐ 18J6
DAGUR FRÍMERKISINS 9. OKTÓBER 1987 • VERÐ KR 45
I'SLAND
13 00
BRANOUGLA Áú
A$ia ’
A Jk .áAJlÆJnAJ
4000V/ fSLAND
Snúum okkur þá að frímerkjunum.
Núna í september og október á ár-
inu 1987, afmælisári Æskunnar, hefir
komið út mikið af frímerkjum.
Þann 16. september komu út fjögur
frímerki með fuglum sem þið flest
þekkið. Að minnsta kosti þekkið þið
stokköndina, skógarþröstinn og tjald-
inn. Hvort þið eruð svo mörg sem
þekkið brandugluna skal ég láta ósagt
en ég man eftir henni þegar ég átti
heima á Hvammstanga.
Þá voru gefin út mörg merki á degi
frímerkisins, 9. október. Þar er fyrst
að nefna smáörkina sem er bara með
einu frímerki en hún er gefin út til að
minnast dagsins sérstaklega og afla
peninga í sjóð sem heitir Frímerkja-
og póstsögusjóður. Þessi sjóður á svo
að kosta að hluta Póstminjasafnið í
Hafnarfirði og framtak frímerkja-
klúbba og einstaklinga í frímerkja-
söfnun og fræðimennsku á því sviði. /
Myndin á þessari smáörk er 171 árs
gömul. Hún er teiknuð af útlendingi,
sem hét Ágúst Meyer, og er frá
Djúpavogi. Á henni sjáum við skip frá
þessum tíma og það eru auðvitað
millilandaskip sem sigldu hingað með
vörur frá útlöndum og tóku svo ís-
lenskar vörur með sér til baka. Mað-
ur, sem hét Páll Gaimard, notaði
myndina í bók sem hann skrifaði til að
kenna öðrum þjóðum um ísland.
Önnur merki, sem komu út þennan
dag, segja okkur líka gamla sögu.
Hún er úr Heimskringlu sem Snorri
Sturluson skrifaði í Reykholti á sínum
tíma. Saga þessi segir frá því
„að Haraldur Gormsson Danakon-
ungur ætlaði að sigla liði til íslands og
hefna níðs er ort hafði verið um hann
þar. — Konungur bauð þá manni
nokkrum fjölkunnugum að fara til
Islands í könnunarskyni. Tók sá ham-
förum og fór í hvalslíki. Hann sá að
fjöll öll og hólar voru fullir af land-
vættum, smáum og stórum. Hann fór
fyrst inn á Vopnafjörð. Kom þá dreki
einn mikill æðandi og fylgdu honum
eiturspúandi nöðrur og eðlur. Lagði
hann á braut vestur fyrir land og hélt
inn á Eyjafjörð. Þar fór móti honum
fugl svo mikill að vænghafið náði
fjalla í milli beggja vegna fjarðarins.
Sneri hann þá frá og kom næst inn á
Breiðafjörð. Þar fór móti honum grið-
12(30 ÍSLAND
an til konungs og bar landinu ekki vel
söguna.“
Þessi frímerki eru í heftum, tólf í
hverju hefti, og kosta 13.00 krónur
stykkið. Og þau eru með myndum
þessara landvætta sem segir frá í sög-
unni.
Svo kemur frímerkið sem þið hafið
ef til vill mest gaman af. Það eru frí-
merkin með myndinni af stúlkunni
sem er að bursta tennurnar fyrir fram-
an spegil. Hún notar flúor tannkrem.
Svo er hún ekki stærri en svo að hún
verður að nota skammel til að standa
á svo að hún sjái sig í speglinum og
geti skoðað hvort tennurnar séu nógu
vel burstaðar.
„Rannsóknir sem gerðar hafa verið
benda til þess að hjá okkur íslending-
um skemmist fleiri tennur en hjá flest-
um öðrum þjóðum, þótt tann-
skemmdum virðist hafa fækkað lítil-
lega á sl. þremur árum.
Við voru þó 5. best setta þjóðin í
heiminum hvað varðar fjölda íbúa á
hvern tannlækni, en neysla sykurs,
sælgætis og sætra drykkja er aftur á
móti mjög mikil hérlendis.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið og tannverndarráð hafa undan-
farið í samvinnu við marga aðila beitt
sér fyrir fræðslu um tannvernd.
Hefur aðaláherslan verið lögð á rétt
fæðuval, réttar matarvenjur og tann-
hirðu, auk þess sem hvatt hefur verið
til aukinnar notkunar flúors. Mynd-
inni á frímerkinu, sem Póst- og síma-
málastofnunin gefur út, er ætlað að
minna á að mest er undir einstakl-
ingnum sjálfum komið hvort tekst að
koma í veg fyrir tannskemmdir.“
Svo það er eins gott að bursta vand-
lega tennurnar.
Ef þið ætlið að nota þetta frímerki á
bréf verðið þið að bæta við einni
krónu.Þá er best að fá blátt frímerki
með mynd af lóu. Það kostar eina
krónu í viðbót við 12.00 krónurnar
sem tannverndarfrímerkið kostar og
svo setjið þið bæði frímerkin fallega á
bréfið, í hornið uppi, hægra megin. .
En látum þetta nú duga að sinni. Ef
þið hafið áhuga vildi ég gjarnan heyra
frá ykkur.
Með kærri kveðju,
Sigurður Þorsteinsson.
ungur mikill og óð á sæinn út með óg-
urlegum hljóðum. — Loks hélt mað-
urinn suður um Reykjanes og hugðist
ganga á land á Suðurlandi. Þar kom
móti honum bergrisi og hafði járnstaf
í hendi og bar höfuðið hærra en fjöll-
in.
Eftir þetta fór maðurinn austur með
landinu í hvalslíkinu og sneri síðan ut-
w w www t< w w rrrtrvTf w w w www
AAAAt • I
UAtAAAMI
FRÍMERKJAÞÁTTUR
UMSJÓN: SIGURÐUR ÞORSTEINSSON
18
19