Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 22
Dagur í Víðidal
Vandamálaþáttur
Kæra Æska.
Þú ert frábært blað! Mig og áreið-
anlega marga fleiri langar í veggmynd-
ir af íslenska handknattleikslandslið-
inu og viðtöl við þá Guðmund Þ.
Guðmundsson, Einar Þorvarðarson,
Júlíus Jónasson og hina gæjana sem
ekki hefur enn verið talað við í Æsk-
unni. Viðtölin, sem birst hafa í blað-
inu við landsliðsstrákana, hafa verið
alveg meiriháttar.
Hér eru svo nokkrar spurningar:
1. Getur Æskan verið með vanda-
málaþátt? Margir lesendur myndu
áreiðanlega leita til hans.
2. Er hægt að hafa plötuverðlaun fyrir
einhverjar þrautir?
3. Er hægt að birta veggmynd af
landsliðinu í handknattleik?
Kær kveðja.
Lotta
Svör:
1. Æskupósturinn er tilbúinn til að birta
vandamálabréf og leita svara við þeim.
Nauðsynlegt er að ítarlegar upplýsingar
komi fram í bréfunum svo að hœgt sé
svara þeim. Þó að dulnefnis sé óskað
þarffullt nafn, aldur og heimilisfang að
fylgja með. Engu að síður verður nafn-
inu haldið leyndu.
2. Við höfum nokkrum sinnum veitt
plötur í verðlaun og munum halda því
áfram annað veifið. Þeir 30, sem hljóta
aukaverðlaun í verðlaunasamkeppni
Rásar 2 og Æskunnar, fá t.d. plötu
— og bók að auki.
3. Við erum að kanna málið.
Manchester United
Kæri Æskupóstur.
Ég vona að þið getið birt veggmynd
af enska knattspyrnuliðinu Manchest-
er United.
Með fyrirfram þökk fyrir birting-
una.
Matthías Ólafsson
Kæra Æska!
Ég vil byrja á því að þakka fyrir
gott blað. Mig langar til að lýsa degi
hérna í sveitinni. Haustdag einn
hringdi Jóhanna, vinkona mín, í mig
og spurði hvort ég og Kristín, frænka
mín, vildum koma á hestbak. Ég
hugsaði mig um svolitla stund en játti
því síðan. Við Kristín vorum næstum
hálftíma að ná í hestana. Við tókum
Ásdísi með. Við hittum svo Jóhönnu
og Döggu stuttu seinna.
Við Kristín og Dagga fórum í kapp
á hestunum. Síðan héldum við í átt að
Gafli en þar eru húsatóftir. Til að
komast þangað þurftum við að fara
yfir á en það var svolítið erfitt því að
bakkarnir voru brattir. Ég fór yfir þar
sem þeir voru lægstir og náði vatnið
upp á kvið á hestinum. Þegar við
komum loks að Gafli var okkur ískalt
á tánum. Það lagaðist á bakaleiðinni
og okkur varð að nýju hlýtt.
Við skoðuðum okkur um víðar í ná-
grenninu og komum ekki heim aftur
fyrr en kl. níu um kvöldið. Þetta var
viðburðaríkur og ánægjulegur dagur.
Við vorum dálítið þreyttar þegar við
lögðumst til svefns um kvöldið.
Víðdœlingur
Á engar vinkonur
Kæri Æskupóstur.
Mér finnst blaðið vera frábært!
Núna langar mig til að spyrja þig að
dálitlu. Ég er í 6. bekk Grunnskóla
Stykkishólms. Krakkarnir eru mjög
skemmtilegir. Minn vandi er sá að ég
á enga vinkonu. Þá á ég við vinkonu
sem ég get alltaf verið með og treyst
fyrir öllu sem mér liggur á hjarta. Nú
langar mig til að athuga hvort þú get-
ur hjálpað mér. Hvernig á ég að eign-
ast vinkonu?
Bless, bless.
Menóika (dulnefni).
Kœra Menóika.
Það er erfitt að gefa nákvœma upp-
skrift að því hvernig maður á að eignast
vini. Krakkar eru nefnilega svo misjafn-
ir. En til að vinátta takist með tveim eða
fleiri krökkum þurfa þeir að eiga svipuð
áhugamál. Það er grundvallaratriði.
Kannski þarftu að leggja þig meira
fram til að eignast vin. í leit að honum
getur hjálpað þér mikið að vera glað-
lynd, hreinskilin og vinsamleg. Ekki
vera upptekin af sjálfri þér. Vertu já-
kvœð og talaðu líka um áhugamál ann-
arra. Sá sem talar mest um sjálfan sig
verður leiðinlegur til lengdar. Sá sem
vill reynast öðrum góður vinur þarf að
vera sanngjarn og fús til að gera líka
það sem aðrir vilja. Traustur vinur fer
sjaldan eða aldrei í fýlu. Það er ekkert
gaman að vera með fýlupokum.
Vonandi gengur þér vel að eignast
vini, Menóika. Láttu okkur heyra afþví
síðar.
Æskupósturinn
22