Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1987, Síða 37

Æskan - 01.12.1987, Síða 37
RÁS 1 BÖRN AÐ STARFI Barnaútvarpið — góðan dag! Með þessum orðum hefst útvarp unga fólksins á Rás 1 alla virka daga kl. 16.20. Þátturinn er 40 mínútna langur. Stjórnendur Barnaútvarps- ins eru þrír, þau Kristín Helgadóttir, Sigurlaug M. Jónasdóttir og Vernharður Linnet. Sér til aðstoðar hafa þau fimm börn, 3 stelpur og 2 stráka. Þau nefnast hjálparkokkar. Hjálparkokkarnir eru þau Nína Björk Jónsdóttir 12 ára, nemandi í Hlíðaskóla; Þórólfur Beck Kristjónsson 13 ára, í Hagaskóla; Kristinn Jóhannsson 12 ára, í Breiðholtsskóla, Edda Magnus 11 ára, Hlíðaskóla; og Ingunn Ósk Ólafsdóttir 12 ára, Hlíðaskóla. Krakkarnir hafa starfað mismunandi lengi hjá Barnaútvarpinu. Edda og Ingunn hafa verið þar lengst eða frá hausti 1985 en Kristinn hefur verið skemmst; hann byrjaði fyrir sex vikum. Við og við er auglýst eftir aðstoðarfólki í Barnaútvarpið. Krakkarnir heyrðu þessar auglýsingar og sóttu um starfið. Þeir voru síðan boðaðir í raddprófun, tóku stutt viðtal við einhvern og voru látnir lýsa hlut. Með þessu var skorið úr um það hvort þeir hefðu góða hœfileika til að vinna við útvarp. Þegar það var Ijóst voru þeir ráðnir til hálfs árs. Barnaútvarpinu. Þær hófu daginn með því að borða morgunmat með þingmanninum, síðan sýndi hann þeim ýmsar bækur og sagði þeim frá efni þeirra. Eftir það fóru þær í lík- amsrækt með honum. Sitthvað fleira var gert. í annað skipti heimsóttu krakkarnir nunnurnar í Hafnarfjarðarklaustri og kynntust lífi þeirra og starfi lítils hátt- ar. Svona má lengi telja. Hjálparkokkarnir segja að starf þeirra sé stundum erfitt, t.d. þegar þeir hafa lítinn tíma til að undirbúa sig fyrir upptökur. Einkum eru það pistlaskrifin sem taka mikinn tíma. Krakkarnir vilja láta það koma Flöskuskeyti En hvaða hlutverki er Barnaútvarp- inu ætlað að gegna? Stjórnendur þess, þau Kristín, Sigurlaug og Vernharður, svara því. „Hlutverk Barnaútvarpsins er, eins og Útvarpsins í heild, að fræða, skemmta og endurspegla veruleikann. Barnaútvarpið er, eins og nafnið bendir til, útvarp barnanna. Við hlust- um á það sem börn hafa að segja og tökum alltaf málstað þeirra. Við setj- um efnið þannig fram að líklegt sé að það nái til allra aldurshópa. Fullorðnir þurfa líka að hlusta á það sem börn hafa til málanna að leggja. Við tökum fyrir bæði alvarleg og skemmtileg Barnaútvarpich-góðan dag! Kynnast mörgu „Þetta er æðislega skemmtilegt og fjölbreytt starf,“ svöruðu hjálpar- kokkarnir einum rómi þegar blaða- maður Æskunnar hitti þá nýlega að máli í Nýja útvarpshúsinu. „Við erum alltaf að fást við eitthvað nýtt. Við erum þulir, tökum viðtöl bæði í hljóðveri og úti í bæ, semjum pistla, sögur og stutt leikrit.“ — Fáið þið gott kaup? Nína Björk: „Við gerum þetta aðal- lega vegna ánægjunnar.“ Kristinn: „Ánægjunnar yfir því að sjá ofan í launaumslögin." Krakkarnir skellihlæja. Þetta er greinilega hress hópur og á gott með að vinna saman. Þeir eru mjög opin- skáir og tala stundum allir í einu við blaðamann. Ingunn leiðir blaðamann í sannleika um kaupið. Þau fá 700 krónur fyrir þáttinn og eru ánægð með það. Næst eru þau spurð að því hvort þau komi öll fram í hverjum þætti. „Nei, það eru fimm þættir í viku og hvert okkar kemur fram í einum þeirra, kannski tvisvar ef við höfum verið fengin til að taka viðtal úti í bæ.“ Starfsvið hjálparkokkanna er vítt. Eitt sinn eyddu tvær stelpnanna heil- um degi með Hjörleifi Guttormssyni alþingismanni og lýstu honum í fram að þeir séu óhressir með það þegar veðurfregnirnar, sem eru á und- an Barnaútvarpinu, fara fram úr áætl- un. Þá er tími þáttarins styttur sem því nemur. „Okkur finnst ósanngjarnt að það skuli bitna á okkur,“ bæta þeir við. „Það á bara að klippa á veðurfregn- irnar þegar tími þeirra er útrunninn. Ætli við verðum ekki að gjalda þess að það er barnaþáttur sem á í hlut. Fullorðna fólkinu finnst alltaf sjálfsagt að börnin láti í minni pokann." Að síðustu segjast allir hjálpar- kokkarnir geta hugsað sér að starfa við útvarp í framtíðinni. Svo er bara að sjá hvað úr verður. mál.“ í hverri viku eru ákveðnum mála- flokki gerð ýtarleg skil. í þessari viku er rætt við íslensk börn sem búsett eru í útlöndum og fjallað um aðstæður þeirra. Á fimmtudögum geta krakk- arnir hringt í umsjónarmennina með- an á útsendingu stendur og rætt við þá um heima og geima. Viðtölin eru hljóðrituð og birt daginn eftir. Krakk- arnir geta m.a. borið upp spurningar sem starfslið Barnaútvarpsins reynir að leita svara við. í þessum símatíma geta hlustendur valið verstu plötu vik- unnar og sá sem færir bestu rökin fyrir máli sínum fær hljómplötu að launum. Svo mega þeir líka syngja öll önnur lög en Gamla Nóa því að allir eru orðnir dauðleiðir á honum. „Sumir halda að Barnaútvarpið sé eingöngu ætlað litlum börnum," halda umsjónarmennirnir áfram, „en það er alger misskilningur. Við höfðum til barna allt upp í 13-14 ára aldur. Marg- ir krakkar vilja ekki láta kalla sig börn og leggja því ekki við hlustir.“ Á næstunni verður flutt ný og spennandi framhaldssaga í Barnaút- varpinu. Hún nefnist Kista Drakúla og er sjálfstætt framhald af Múmíunni sem hvarf. Svo stendur til að taka í notkun símsvara sem krakkar, sem eiga við einhver vandamál að etja, geta hringt í. Þeir geta þar skýrt frá vanda sínum og leitað ráða. Þeim verður svo svarað í þættinum en nafni þeirra haldið leyndu.“ — En eru krakkarnir duglegir við að skrifa þættinum? „Nei, þeir eru fremur latir við það. Þá vantar meiri hvatningu frá foreldr- um sínum og kennurum. Svo auka einkastöðvarnar, sem bjóða ódýra af- þreyingu, sjálfsagt á leti þeirra.“ Starfsmenn Barnaútvarpsins hafa ferðast m.a. til Grænlands og Gríms- eyjar. í Grímsey kviknaði sú hugmynd að safna fyrir sundlaug handa eyjar- skeggjum. Barnadeild Útvarpsins gaf fyrstu 10 þús. krónurnar og síðan hvöttu dagskrárgerðarmenn hlustend- ur til að leggja málinu lið. Kristín sat við síma á Akureyri og tók við áheit- um. Rúmar 200 þús. krónur söfnuð- ust. Vernharður seig í bjarg í Grímsey og henti flöskuskeyti í sjóinn með orð- sendingu til fjármálaráðherra þess efnis að ríkinu bæri að standa við að greiða sinn hluta byggingarkostnaðar eins og kveðið er á um í lögum. í lok spjalls okkar segja stjórnendur Barnaútvarpsins að þeir ætli að leggja bjartsýnisverkefni lið árlega hér eftir. Þetta látum við gott heita um heim- sókn okkar til starfsmanna Barnaút- varpsins. Þeir sem enn eiga eftir að kynnast því skemmtilega og fróðlega efni sem það býður upp á ættu að stilla á Rás 1 kl. 16.20 einhvern virkan dag vikunnar. Krakkar, verið svo duglegri við að skrifa útvarpsþættinum ykkar! E.I 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.