Æskan - 01.12.1987, Qupperneq 46
AKRANES
EERMINGARBAK
Hungrið í heiminum
Hungrið í heiminum fer alltaf
versnandi dag frá degi. Fólk fær
lítinn sem engan mat dögum
saman. Daglega deyja margir úr
matarskorti eða vegna þess að þeir
eru veikir og fá engin lyf sem gætu
læknað þá. Úti í heimi eru
tugþúsundir barna og fullorðinna
sem hafa ekki fengið mat svo að
dögum og vikum skiptir. Við
getum sent þessu fólki bæði mat og
þau lyf sem það þarfnast. Petta
höfum við gert árum saman en það
nægir ekki. Pað er vegna þess að
matar-og lyfjasendingar komast
ekki til þess. Víða eru vegir ófærir.
Bílar, sem eru að flytja vörurnar,
komast ekki leiðar sinnar. Pess
vegna fær fólkið engan mat og
engin lyf til að lækna með þá sem
sjúkir eru.
Hvað getum við gert við þessu?
Hafið þið spurt ykkur sjálf? Við
gætum sent peninga til
Hjálparstofnunar kirkjunnar. Það
væri kannski góð byrjun. Tökum
höndum saman og hjálpum þessu
fólki, ekki einn heldur allir, já allir.
Hvað finnst ykkur um þetta?
Hjálpum þeim. Búum til betri
heim. Sameinumst, hjálpum þeim.
Láttu mig starfa, láttu mig vaka.
Láttu þau lifa meðan dagur er.
Láttu þau biðja, lífsins faðir,
Drottinn minn.
Og svo er þessi litla vísa:
Hungur í heiminum,
sumt fólk fær engan mat;
margir deyja fljótt,
hvern einasta dag er einhver að
þjást og deyja.
Bjarni Borgar Jóhannsson
Friður á jörðu
Hver vill ekki hafa frið á
jörðunni? Það eru líklega fáir sem
ekki vilja lifa í friði. En því miður
ríkir samt ekki friður í heiminum.
Allt frá því að Kain drap Abel hafa
menn lifað í ófriði, stríð hafa
geisað, fólk hefur sært og líflátið
hvert annað. En af hverju? Af
hverju er verið að framleiða öll
þessi vopn: handsprengjur,
eldflaugar, vélbyssur,
kjarnorkusprengjur, tundurdufl og
hvað þetta heitir nú allt saman?
Af hverju getur mannfólkið ekki
bara lifað saman í sátt og samlyndi
án þess að vera alltaf í stríði við
aðrar þjóðir, aðra landshluta eða
nágrannann í næsta húsi?
„Elska skaltu náunga þinn eins
og sjálfan þig.“
Þetta kærleiksboðorð,
sem allir eiga að kunna,
á fólk að hafa að leiðarljósi
í lífinu. Og sama gildir um gullnu
regluna: „Allt sem þér viljið að
aðrir menn gjöri yður, það skuluð
þér og þeim gjöra.“ En fer fólk
eftir þessu? Nei, ekki allir. Ætli
t.d. menn, sem stjórna stríðum og
lífláta annað fólk, vilji að það verði
ráðist á þá og þeir særðir eða
drepnir? Nei, líklega ekki en samt
láta þeir sér ekki segjast. Þeim væri
nær að hlusta betur á Guðs orð og
fara eftir því sem hann hefur að
segja, t.d. 5. boðorðið: „Þú skalt
ekki mann deyða.“
En hvað geta þú og ég gert til að
koma á friði í heiminum? Það getur
enginn einn maður staðið upp og
sagt öllum að vera vinir. Allir þurfa
að leggjast á eitt og reyna að leysa
deilur á friðsaman og
skynsamlegan hátt og hætta að
framleiða vopn.
Það vígbúnaðarkapphlaup sem
stórveldin tvö, Bandaríkin og
Sovétríkin, standa nú í setur mikið
strik í reikninginn þegar rætt er um
frið. Þessi tvö risaveldi eru eins og
smákrakkar í sandkassa að metast
á um hvor byggir stærra og betra
hús þegar þau eru að reyna að
framleiða fleiri og fullkomnari
vopn en hin þjóðin.. Það væri mikil
bót í máli ef leiðtogar þessara
tveggja ríkja kæmust að
samkomulagi um að hætta þessari
vitleysu sem engum kemur að
gagni.
Með vissu millibili hafa skotið
upp kollinum úti í hinum stóra
heimi menn sem reynt hafa af
fremsta megni að lægja öldur
ófriðar milli landa og landshluta.
T.d. má nefna í því sambandi
Martin Luther King, Mahatma
Gandhi, Olof Palme o.fl. Þessir
menn, sem því miður hafa allir
verið drepnir, áttu sér eina
fyrirmynd. Það var Jesús Kristur,
fyrsti og mesti friðar-og kristniboði
heims. Gott væri að fleira fólk tæki
sér hann til fyrirmyndar og reyndi
að halda áfram með það starf sem
hann og fleiri hafa unnið í þágu
friðar. Þá yrði þess ekki langt að
bíða að friður ríkti í heiminum!
Sigurbjörg Þrastardóttir
46