Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1987, Síða 60

Æskan - 01.12.1987, Síða 60
Einu sinni var afar stórvaxinn snjóhvítur fugl sem var gæddur þeirri náttúru að hann mátti helst ekkert aumt sjá. Hvíti fuglinn hafði þann sið að svífa yfir landið og leita þá uppi sem áttu bágt. Hafði hann bjargað bæði konum, körlum og börnum úr straumhörð- um jökulfljótum, jafnt og úr háu klettabelti þangað sem aðeins komst fuglinn fljúgandi. Dag einn flaug hvíti fuglinn yfir eitt slíkt klettabelti og kom þá í undarlegt land. Par var hvorki að sjá mannabústaði né mannvirki af öðru tagi, ekki einu sinni akra og engi, aðeins grýttan jarðveg og á stöku stað kaldranalegar, lauflaus- ar trjáþyrpingar. Hvergi var mann að sjá og dýr merkurinnar virtust hafa ^yfirgefið þetta undarlega land. I nætur og daga hringsólaði hvíti fuglinn yfir þessu gráleita og lífvana landi þar til eitt sinn er hann flaug yfir trjáþyrpingu í held- ur óyndislegu dalverpi að hann heyrði hrópað: „Hvar ertu mamma?“ Hvíti fuglinn okkar rann á hljóðið og lækkaði flugið og sá þá undurfagran gullinhærðan dreng- hnokka er sat undir einu trénu. Fuglinn settist spölkorn frá gló- kolli og spurði ofur varlega: „Hvað er að, litli vinur?“ Drengurinn horfði á hann tár- votum augum og strauk lokk frá enni. „Ég, ég. .villtist frá mömmu og pabba og nú rata ég ekki aftur heim.“ Hvíti fuglinn færði sig gætilega nær litla drengnum og spurði: „Og hvar átt þú nú heima, litli vin?“ „Ég á heima inní Bláfjalli, pabbi er kóngur þar,“ svaraði litli dreng- urinn. Fuglinn brosti: „Já, já, þú ert þá álfaprins, kæri vin?“ „Einmitt,“ svaraði drengurinn og snökti. Hvíti fuglinn færði sig ögn nær því að hann vildi ekki að trén heyrðu næstu spurningu. „En hvernig í ósköpunum fórstu að því að týna fjallinu þínu?“ „Það var nú bara þannig. .“ hóf litli álfaprinsinn sögu sína „. .að einkaþernan hennar mömmu, hún Randalín, var alltaf að biðja mig að koma á berjamó en hún vildi helst aldrei að ég væri hjá henni mömmu minni. Hún sagði að ég væri orðinn svo stór strákur að ég ætti ekki lengur að sofa uppi í hjá mömmu og pabba. Einn daginn gafst ég upp á nöldrinu í henni og við fórum út úr Bláfjalli á berjamó en hún Randalín ratar einstigið út úr fjallinu.“ „Fyrirgefðu, litli vin. .“ greip hvíti fuglinn fram í fyrir litla prins- inum. . „en er engin önnur leið út úr Bláfjalli?“ „Nei, nei, snökti litli álfaprins- inn og tárin hrundu niður hvarm- ana en hvíti fuglinn þerraði þau jafnóðum með öðrum vængbrodd- inum. „Segðu mér nú, litli vin, betur frá berjamónum.“ „Já, hún Randalín fór með mig þar sem vaxa rauð ber undir hon- um Bláfossi en Randalín sagði að þetta væru töfraber sem gætu breytt álfum í menn og mig hefur stundum langað til að breytast í al- vörustrák því að heima í álfahöll- inni okkar á ég engan leikfélaga. Ég hamaðist af öllum kröftum við að tína berin og stakk meira að segja einu upp í mig en þegar ég leit upp og ætlaði heim þá var hún Randalín horfin og leynigöngin undir Bláfossi harðlæst. Ég hróp- 60
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.