Æskan - 01.12.1987, Page 62
sem hún stóð að venju bak við há-
sæti drottningar flögraði nú svart-
ur hrafn og lét ófriðlega.
„Handtakið þessa galdranorn
hún er í hrafnslíki!“ æpti álfakon-
ungurinn.
En allt kom fyrir ekki. Bog-
menn konungsins voru of svifa-
seinir, oddhvassar örvarnar náðu
ekki blásvörtum hrafninum þar
sem hann sveif út úr Bláfjalli. En
hvíti fuglinn hafði ekki alveg
gleymt vini sínum, álfaprinsinum.
Nei, alls ekki. Hann 'beið þolin-
móður efst á Bláfjalli og þegar
hrafninn kom fljúgandi út úr fjall-
inu þá steypti hvíti fuglinn sér yfir
óhræsið, læsti í það klónum og
sleppti bráðinni ekki fyrr en inni í
höll álfakonungsins. Veislugestirn-
ir ráku upp faganaðaróp þegar
hvíti fuglinn lagði bráðina við fæt-
ur vinar síns, litla álfaprinsins.
„Vertu ekki of harður við þessa
HVITI FUGLINN
Og svo sannarlega var slegið
upp heljar veislu í höllinni og þús-
undir álfa svifu um dansgólfið í
skini kyndla og marglitra kristals-
ljósakróna. En þegar veislan stóð
sem hæst hvíslaði álfakonungurinn
að syni sínum:
„Hvernig stóð á því að þú villtist
frá höllinni okkar, sonur sæll?“
Litli álfaprinsinn vildi í fyrstu
ekki segja pabba sínum alla sög-
una en álfakonungurinn hætti ekki
fyrr en sonur hans svaraði:
„Hún Randalín plataði mig í
berjamó undir Bláfossi en svo lok-
aði hún göngunum heim og ég
villtist í myrkrinu, pabbi, alveg þar
til hvíti fuglinn bjargaði mér.“
En þó að litli prinsinn hvíslaði
svo lágt í eyrað hans pabba síns að
hann einn heyrði leyndarmálið þá
virtist hún Randalín einkaþerna
álfadrottningarinnar heyra það
sem aðrir heyrðu ekki því að þar
ógæfusömu norn, litli vinur, hún
þráir það eitt að komast burt úr
álfheimum."
Alfakonungurinn leit fyrst á
hvíta fuglinn og síðan á son sinn,
sagðisvo:
„Já, þú ræður, sonur sæll, hvað
gert verður við þessa norn.“
Litli álfaprinsinn gekk alveg að
hrafninum og stakk upp í hann
rauðu beri sem hann hafði tínt
undir Bláfossi forðum. Og hvað
haldið þið? Ótætis hrafninn breytt-
ist í unga og fríða konu og síðan
hefur hún Randalín verið í mann-
heimum. En litli álfaprinsinn er
ennþá í álfahöllinni hjá pabba sín-
um og mömmu nema stundum
þegar hann breytist í ósköp venju-
legan strák og þá flýgur hann á
væng vinar síns, hvíta fuglsins, til
mannheima þar sem hann á
nokkra góða leikfélaga.
PENNAVINIR
Sólveig Haraldsdóttir, Nónási 1, 615 Rauf-
arhöfn. 7-9 ára. Er sjálf 8 ára. Áhuga-
mál: Europe, A-Ha, Madonna og
Modern Talking.
Sigurbjörg Bergþórsdóttir, Lækjarhvammi
7, 220 Hafnarfirði. Strákar og stelpur
12-14 ára. Er sjálf 13 ára. Áhugamál
mörg.
Iðunn Elsa Kristinsdóttir, Hringbraut 48,
220 Hafnarfirði. 10-11 ára. Er sjálf 11
ára. Mörg áhugamál.
Auður Sandra Grétarsdóttir, Hnjúka-
byggð 27, 540 Blönduósi. Stelpur og
strákar 10-11 ára. Er sjálf 10 ára.
Áhugamál mörg. Mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er.
Halldóra Halldórsdóttir, Efra-Seli, Hruna-
mannahr., 801 Selfoss. 13 ára. Strákar
og stelpur á öllum aldri. Áhugamál:
íþróttir, dans, föt og sætir strákar.
Karina Simonsen, 350 Vestmanna, Fpr-
oyar. 12 ára. Áhugamál: Handknatt-
leikur og tónlist. Skrifar á færeysku
eða dönsku.
Lára Jóels, Bíldhóli, Skógarströnd, 371
Búðardal. 13-16 ára. Er sjálf 13 ára.
Nanna Jónsdóttir, Rauðamýri 8, 600 Ak-
ureyri. 12-14 ára. Er sjálf 13 ára.
Áhugamál: íþróttir, lestur bóka,
pennavinir og tónlist. Reynir að svara
öllum bréfum.
Jórunn Ólafsdóttir, Vallholti 21, 300
Akranesi. 10-100 ára. Mynd fylgi fyrsta
bréfi er hægt er.
Auður Björnsdóttir, Borgargerði 16, 755
Stöðvarfirði. 13 ára. Áhugamál: Dýr,
íþróttir, ferðalög og bréfaskipti.
Lilja Kristjánsdóttir, 705 Eiðar. 12-15 ára.
Er sjálf 13 ára. Áhugamál: Tónlist,
dans, ferðalög, íþróttir og strákar.
Svarar öllum bréfum.
Ólafur Jóhannesson, Brekkuhvammi 10,
370 Búðardal. Stelpur 12 ára. Mynd
fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
62