Æskan - 01.01.1992, Blaðsíða 9
Einar og Heiða Berglind.
Eins og lesendurÆskunnar hafa orðið varir við í síðustu tölublöðum þá fór blaða-
maður hennar hringinn í kringum landið í fyrrasumar og tók ungmenni tali. Flest við-
talanna hafa nú þegar birst en aðeins nokkur eru eftir og munu birtast í þessu blaði
og þeim næstu.
eskaupstað mætti ég ungu pari á fjölförnum vegi. Það leiddist hönd í hönd í svalri
kvöldgolunni og rómantíkin skein úr andliti þess.
„ Viðtal við Æskuna?“ stundu þau upp hálfringluð þegar ég bað þau um það enda
minntust þau þess áreiðanlega ekki að hafa fyrr séð blaðamann frá Æskunni spranga
um göturnar í Neskaupstað.
'ú, jú, það er allt í lagi, “ sögðu þau svo þegarþau loksins trúðu sínum eigin eyrum.
Þau heita Einar Sólheim, 15 ára, og Heiða Berglind Svavarsdóttir, 13 ára.
Ég gat ekki stillt mig um að
beina þeirri spurningu til
Heiðu hvort unnusti hennar
hefði einhvern tíma leikið
rómantísk lög á saxófón fyrir
hana í einrúmi.
„Nei,“ svaraði hún feimnislega og
það tísti í henni. „En kannski á hann
eftir að gera það.“
-Hvað á svo að gera f framtíð-
inni?
„Ég gæti vel hugsað mér að starfa
eitthvað við tónlist," svaraði Einar-
og kemur víst fæstum á óvart sem
þetta lesa.
„Sem stendur langar mig til að
verða hjartaskurðlæknir," sagði
Heiða. „En það getur breyst eins og
svo margt annað.“
Þetta sagði unga parið að síð-
ustu og við vonum að þegar
þessar línur koma fyrir sjónir
lesenda haldist samband þess
- E.l.
eg helt
á ág nefna f Æsk-
unni að þið séuð
kærustupar?
spurði ég kurteis-
innar vegna því að
þau væru kannski
fyrir því.
það er ekkert leyndarmál að
• höfum verið saman í 10 vikur,“
svöruðu þau að bragði.
- Eru margir jafnaldrar ykkar
byrjaðir að vera saman?
Þau ypptu öxlum, sögðust ekki
ita það.
g held þó að það sé fremur óal-
gengt að krakkar byrji mjög ungir að
vera sarnan," svaraði Einar.
Ég ætlaði að spyrja þau meira
ístarsamband þeirra en
eyrði fljótt að þau vildu sem
minnst um það tala - svo að
ég venti mínu kvæði í kross.
Heiða hefur átt heima í Neskaup-
stað frá því að hún var þriggja ára,
^juttist þangað frá Borgarfirði eystri.
er nú í 8. bekk.
Einajhefur verið í Neskaupstað
alla ævi aíþundanskildum fimm árum
er hann dvaldist í Noregi ásamt fjöl-
skylau sinni. Fyrirtveim árum flutt-
t hann svo aftur heim.
„í Noregi átti ég heima í bæ sem
var aðeins stærri en Neskaupstað-
ur,“ sagði hann. „Eftir þau kynni,
sem ég hef haft af norskum og ís-
lenskum unglingum, finnst mér vera
lítill munur á þeim. Áhugamálin eru
svipuð. í Noregi eignaðist ég marga
vini og ég skrifast á við nokkra þeirra
enn þá.“
EINAR í UNGLINGA-
HLJÓMSVEIT
- Hvað gerið þið í tómstund-
unum?
„Mér þykir skemmtilegast að vera
á skíðum og æfa fótbolta," svaraði
Heiða. „Svo hef ég verið í þrjú ár í
skátafélaginu Nesbúum. Þar eru
bæði strákar og stelpur og mjög
gaman að taka þátt í starfinu.“
„En ég kem ekki nálægt skátun-
um,“ sagði Einar „Ég er þeim mun
meira í tónlistinni. Ég lærði á saxó-
fón í þrjú og hálft ár og einnig leik
ég á hljómborð. Við fórum fjórir héð-
an frá Neskaupstað í júní til að leika
á djasshátíð á Egilsstöðum. Hún
heppnaðist mjög vel. Svo er ég í
hljómsveit sem ekki hefur enn tekist
að finna nafn á. Við höfum aðeins
leikið á einum tónleikum. Tónlistar-
val okkar er mjög fjölbreytt, allt frá
lögum The Doors til laga þunga-
rokkssveitarinnar Deep Purple."
Æ S K A N 9