Æskan - 01.01.1992, Blaðsíða 44
SPURNINGAR OG SVÖR UM
FRÍMERKJASÖFNUN:
Er hægt að fá sendan ókeypis verðlista
yfir íslensk frímerki 1992 frá Frímerkjahús-
inu á Bókhlöðustíg?
Svar: Áreiðanlega ekki enn þá því að ég
veit ekki til þess að hann sé kominn út. Þessi
verslun, eins og aðrar, gefa hins vegar út
verðlista yfir þau frímerki sem þær hafa til
sölu á hverjum tíma. Þú getur því vafalaust
fengið sendan þann lista sem nú er í gildi.
Stóru frímerkjalistana, sem skrá öll frímerki
landsins, færð þú keypta í frímerkjaverslun-
um eða bókaverslunum.
Hvernig gerist maður áskrifandi að ís-
lenskum frímerkjum?
Svar: Þú skrifar Frímerkjasölunni, Póst-
hólf 8445, og skýrirfrá hvaða nýfrímerki þú
vilt fá, hvort þau eigi að vera notuð eða ó-
notuð og svo framvegis. Síðan færð þú merk-
in send í póstkröfu. Erlend merki getur þú
fengið keypt í áskrift hjáfrímerkjaverslunum.
Hvað á ég að gera til að skipta á merkjum
við aðra safnara?
Svar: Þegar við erum ífrímerkjaklúbbi eins
og klúbbnum okkar og viljum eignast skipti-
vini þá er margt sem gæta þarf að eins og að
eignast ekki fleiri skiptivini en hægt er að
sinna og að senda aldrei skiptivinum gölluð
og Ijót merki. Ef þú getur ekki notað merkin
geta aðrirþað ekki heldur.
Ef þú skrifar safnara og ferð fram á skipti
eða svarar auglýsingu þá er ekki ráðlegt að
senda frímerki í fyrsta bréfi. Segðu heldur frá
áhugaefni þínu og svo geta skiptin hafist.
Svo þarf varla að minna á að setja góð
merki og jafnvel mörg á hvert bréf. Sendið
alltaf falleg bréf til skiptivinanna.
Loks væri ekki úr vegi að vita hvernig
skiptivinurinn vill hafa notuðu merkin stimpl-
uð, t.d. í hornið eða á mitt frímerkið svo að
dagsetningin sjáist greinilega.
Af þessu má sjá að gjarna fara nokkur bréf
milli skiptivinanna áður en skiptin hefjast
raunverulega. Ef báðir aðilar hafa gert grein
fyrir óskum sínum á þennan hátt er minni
hætta á misskilningi og því verða skiptin á-
nægjulegri. Fyrst og síðast skal gæta þess að
allt sé Ijóst áður en skipti hefjast svo að ekki
rísi upp misskilningur og jafnvel klögumál út
af því að annar hvor aðilinn sé að hlunnfara
hinn....
BRÉF TIL ÞÁTTARINS
Ég er 11 ára og langar mjög mikið að
ganga í frímerkjaklúbbinn. Ég hef verið áskrif-
andi að Æskunni frá því að ég var 9 ára. Ég
fékk áskriftina í afmælisgjöf og líkar blaðið
mjög vel. Ég byrjaði að safna frímerkjum um
líkt leyti, um haustið ef ég man rétt. Nú hef ég
náð mér í ágætt safn. Mig langar að spreyta
mig í frímerkjaklúbbi og líst ágætlega á þenn-
an þó að hann sé lítill. Viltu vera svo vænn
að lofa mér að ganga í hann og senda mér
upplýsingar um hann?
„Forvitinn, skriftar- og statsetningargrís"
SPURNINGAR „FORVITINS“ OG
SVÖR VIÐÞEIM
Hvers vegna hefur klúbburinn heimili á
Hólmavík?
Svar: Klúbburinn á ekki heimili neins stað-
ar annars staðar en þar sem félagar í honum
eru. Umsjónarmaðurinn á hins vegar heima
30 kílómetrum fyrir norðan Hólmavík og hef-
ir því póstfang þar með póstnúmeri 510.
Hittast félagar á mótum eða fundum?
Svar: Nei. Þeir eiga heima úti um allt land
og það yrði dýrt að koma allir saman á fund,
hvar sem það væri. Fyrr á árum, þegar klúbb-
Dagur frímerkisins 1991 í Klúkuskóla á Sfröndum. Þrír safnarar í eldri deild skoða bækur um frímerki og ný
frímerki - Jóhanna Guðbrandsdóttir, I/ictor Guðbrandsson og Harpa Guðbrandsdóttir.
4 8 Æ S K A N