Æskan - 01.01.1992, Blaðsíða 4
ÚRSUT í VERÐLAUNASAMKEPPNI
skunnar, Flugleiða og Rík-
isútvarpsins liggja nú Ijós
fyrir. Verðiaunahafar voru
valdir eftir að nefndarmenn
höfðu lesið vandlega allar
þærsögursem bárust. Erfitt varað gera
upp á milli þeirra eins og jafnan áður.
Við valið er tekið tillit til aldurs höf-
unda. Þess vegna eiga ungir þátttak-
endurlíka möguleika á verðlaunum. Það
sjáið þið á listanum núna - og hafið séð
undanfarin ár.
Aðalverðlaunin hlaut Berglind Halldórs-
dóttir fyrir söguna Ævintýrið um rósina
dýru. Berglind er ellefu ára. Hún á heima
að Hjallabrekku 27 í Kópavogi. Þessi
skemmtilega og ágæta saga hefur verið les-
in í Ríkisútvarpinu og birtist nú hér í Æsk-
unni. Aðrar verðlaunasögur verða birtar
smám saman. Röð þeirra segir ekki til um
hverjar þóttu öðrum betri.
Berglind hlýtur að launum ferð með Flug-
leiðum til Parísar! Þangað fer líka verðlauna-
hafinn Heiðrún Harpa Þórsteinsdóttir, Bárð-
artjörn í Þingeyjarsýslu. Hún varð heppn-
ust þeirra sem sendu réttar lausnir á get-
rauninni.
Við óskum þeim og öðrum verðlauna-
höfum til hamingju. Öllum þátttakendum
þökkum við fyrir að senda sögur og lausn-
ir. Viðurkenningarskjöl hafa verið send höf-
undum smásagnanna.
Dómnefnd skipuðu: Gunnvör Braga rit-
stjóri barnaefnis í Ríkisútvarpinu, Halldór
Kristjánsson rithöfundur og Margrét Hauks-
dóttir deildarstjóri í upplýsingadeild Flug-
leiða.
SOGUR
erglind Halldórsdóttir kom
heim frá Bandaríkjunum
1988. Þarhafði hún dvalist
með foreldrum sínum í sex
ár meðan þeir stunduðu
nám. Hún á einn bróður, Hákon Atla.
Hann er tíu ára. Þau eru nú í Snælands-
skóla í Kópavogi.
„Ég var þrjú ár í skóla í borginni Log-
an í Utah-fylki. Þar varallt dálítið öðru-
vísi en hér. Skóladagurinn var til dæm-
is lengri. - Nei, ég fór ekki að semja
sögur að ráði fyrr en ég kom hingað
heim. Þá var ég að verða átta ára. En
ég þurfti að byrja á að læra að lesa og
skrifa íslensku..."
- Hvað hefur þú gert við sögurnar?
„Ég hef sett margar þeirra í blað sem við
vinkona mín, Klara Rún Kjartansdóttir, gef-
um út. Fyrsta tölublaðið kom út í fyrravor,
annað í fyrrahaust og það þriðja verður
bráðlega tilbúið. Það eru sögur, þrautir, við-
töl og fleira í því. - Já, við seldum seinna
blaðið. Það gekk ágætlega.1'
- Þú hefur líklega ekki tfma til ann-
ars en að læra og gefa út blað ...?
„Jú, ég er í Myndlistarskóla Kópavogs
og Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar. Ég
hef lært myndlist í fjögur ár en byrjaði í
dansinum í haust. Ég safna líka frímerkj-
um. Það hef ég gert frá því að ég var níu
ára. Ég á þónokkuð stórt safn af útlensk-
um frímerkjum og dálítið af íslenskum - en
ekki mjög gömlum. Svo er ég í Þrumu-
klúbbnum. Ég er að fara þangað á eftir...“
- Hvernig klúbbur er það?
„Við stelpurnar í bekknum erum í hon-
um. Við hittust einu sinni í viku á heimil-
um okkar, spjöllum saman og borðum eitt-
hvað gott."
- Hvernig bækur lest þú helst?
„Ég hefið lesið ýmislegt. Fyrir nokkrum
árum fannst mér ævintýrasögur eftir Enid
Blyton skemmtilegastar en nú les ég mest
af unglingasögum."
- Hefur þú ferðast víða?
„Já, dálítið um Bandaríkin og ég hef
komið til Kanada - en aldrei til annars Evr-
ópulands en íslands."
Við vonum að ferðin til Parísar
heppnist vel og þær Berglind og
Heiðrún Harpa eigi þar gðða
daga í sumar.
4 Æ S K A N