Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1992, Síða 14

Æskan - 01.01.1992, Síða 14
„ Voniim aí Ml í Kattholti mði sfndur lengi!” Leikarar í leikritinu „Emil í Kattholti” í viðtali við Æskuna. Texti: Elísabet Elín Myndir: Odd Stefán m þessar mundir er leikritid „Emil í Kattholti" á fjölum Þjóð- ieikhússins. Fjórir krakkar á aldrinum 9-11 ára skiptast á um að leika aðalhlutverkin, Emil og systurhans, ídu. Þau eru: Álfrún Helga Örnólfsdóttir 10 ára, Aníta Briem Gunnlaugs- dóttir 9 ára, Sturla Sighvatsson 10 ára og Jóhann Ari Lárusson 11 ára. Blaðamaður Æskunnar hitti ungu leikarana og þeir voru langt frá því að vera feimnir. Ég spurði þá fyrst hvort þeir hefðu leikið áður: Ifrún: „Já, ég lék í Ovit- um og Söngvaseið." Jóhann, Aníta og Sturla hafa hins vegar aldrei leikið áður. - Hvernig atvikaðist að þið fóruð að leika í Emil í Katt- holti? Sturla: „Vinkona mömmu sá aug- lýsingu í blaði um að það ætti að fara að prófa stráka í hlutverk Emils í Katt- holti og hún sagði að ég væri ekta Emil. Síðan fór ég í prufuna í Þjóð- leikhúsinu...“ Aníta: „Amma mín sá auglýsingu um þetta í blaði. Hún spurði mig hvort ég vildi fara í inntökupróf til að sækja um hlutverk ídu. Svo fór ég í prófið." Jóhann: „Eg er í kór Laugarnes- kirkju og það kom fólk þangað frá Þjóðleikhúsinu og valdi nokkra stráka úrtil að fara í prufu." - Hvernig fenguð þið þessi hlutverk? Aníta: „Við fórum í þessa prufu fyrir leikritið." Sturla: „Við áttum að syngja og lesa tvo kafla úr leikritinu fyrir leik- stjórann." Aníta: „Ég þurfti að fara í tvær prufur." Sturla: „Ég fór í þrjár. Það var tínt úr hópnum smám saman. Það voru rosalega margir krakkar sem voru í prufu.“ GÁTU LÍTIÐ MÆTT í SKÓLANN ... egar ég spyr hins vegar hvort prófið hafi verið erfitt segja þau öll nei, næstum því í kór. - Hvað stóðu æfingar lengi? „Það var byrjað að æfa í byrjun desember og æft stíft fram að frum- sýningu.“ - Hvað var æfingatíminn lang- ur? „Það var æft frá tíu til fjögur á hverjum degi nema um helgar. En þeim tíma var skipt milli okkar svo að við gætum farið í skólann." - Hafa æfingar bitnað á nám- inu? „Já,“ segja þau öll. Sturla: „Ég hef ekkert farið í skól- ann síðustu þrjár vikur.“ Aníta: „Ég hef ekkert farið í skól- 14 Æ S K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.