Æskan - 01.01.1992, Síða 20
kvikmynd. Hér í Reykjavík hef-
ur verið rekið leikhús barna og
unglinga, Gamanieikhúsið.
NÝJU KRAKKARNIR ...
Hæ, allir aðdáendur Nýju
krakkanna í hverfinu!
Ég vil gjarna hjálpa pennavin-
konu minni í Bandaríkjunum við að
safna nöfnum aðdáenda hljóm-
sveitarinnar New Kids on The
Block. Hún setur þau í bók sem
hún ætlar að gefa út handa
NKOTB. Ég bið ykkur því að senda
nafn, heimilisfang og mynd af ykk-
ur til hennar. Munið að skrifa líka
„lceland". Skrifið til:
Christy Elsbury,
2145 S. Webb st.,
Indianapolis, In 46225, U.S.A.
Hjálpsöm.
Kæra Æska!
Ég er mikill aðdáandi Nýju
krakkanna. Mig langar til að biðja
þá sem líka dá hljómsveitina um
að safna undirskriftum sem flestra
aðdáenda hennar og senda mér.
Hvað eru til margar hljómplötur
SKJALDBÖKUR
Kæra Æska!
Mig langar til að biðja
ykkur að segja mér hvar ég
get fengið skjaldböku og
hvað hún kostar. Ég vildi
líka gjarna að þið birtið
veggmynd af skjaldbökum
og létuð límmiða með dýr-
um fylgja Æskunni - t.d.
með hömstrum, páfagauk-
um, fiskum og skjaldbökum.
Garfield.
Svar: Bannað er að
selja skjaldbökur hérlend-
is - en ekki að birta
myndir af þeim. Beiðni
um það - og límmiðana -
skulum við hafa á bak við
eyrað.
ERLENDIR
PENNAVINIR
Kæra Æska!
Hvert á maður að skrifa til þess
að fá nafn sitt birt í útlenskum blöð-
um?
Ein fyrir ofan húsin.
Svar:
Við birtum fljótlega aftur lista
yfir erlend tímarit. Þeir sem rita
nafn og heimilisfang undir bréf
fá sent Ijósrit af lista sem við
birtum i 8. tbl. 1989...
AÐ LEIKA OG SYNGJA
Sæl, Æska!
Ég þakka fyrir mjög gott blað.
Mér finnst æðislega gaman að
leika, syngja og skemmta fólki.
Getur þú sagt mér hvert ég á að
snúa mér til að reyna að fá tæki-
færi til þess? (Ég er of gömul fyrir
Rokklingaskólann).
14 Ára skemmtikraftur.
Svar: í flestum skólum starfa
leikklúbbar sem nemendum
gefst kostur á að taka þátt /'. /
skolum er líka oft efnt til hæfi-
leikakeppni. Stöku sinnum er
auglýst eftir börnum eða ung-
lingum til að leika á sviði eða í
með hljómsveitinni? Hvað heita
þær?
Ég vil kvarta yfir viðtalinu við
Stjórnina. Þar sagði Þorsteinn að
NKOTB væri hörmuleg hljómsveit.
Nú tek ég New Kids fram yfir
Stjórnina.
Helga Reynisdóttir.
Svar: Starfsmenn hljómplötu-
útgáfunnar Steina hf. segja
þessar plötur hafa verið gefnar
út með NKOTB:
New Kids on The Block -
Step by Step
Hanging Tough - Merry
Christmas - og safnplöturnar
Hits on The Block og
No more games.
ÆSKU
PÓSTUR
UM VEGGMYNDIR
Kæra Æska!
Ég þakka gott blað. En eitt lík-
ar mér ekki nógu vel. Stundum eru
dýr öðrum megin á veggmynd en
söngvarar hinum megin. Systir mín
vildi endilega hafa myndina af
hvolpunum inni hjá sér en ég vildi
fá blaðið af því að Bryan Adams
var hinum megin. Er ekki hægt að
hafa tvær veggmyndir, hvora á
sinu blaði? Ég veit að við gætum
skipst á. En er nokkuð of mikill
kostnaður að hafa þetta eins og
ég lýsti?
Lísa.
Svar: Það er alltaf spurning
hvað sé of mikill kostnaður. En
hann hækkar verulega við að
hafa hvora mynd á sínu blaði.
Við völdum þessa leið til að
auka fjölbreytni Æskunnar. Tutt-
ugu myndir fylgja blaðinu á ári -
þrjátíu og tveir límmiðar. En við
höfum sent systkinum auka-
veggmynd þegar beðið hefur
verið um það - eins og við lof-
uðum í byrjun.
HÆNUR OG FÍLAR
Kæra Æska!
Ég sendi þér skrýtlu:
Tvær hænur voru að horfa á
knattspyrnuleik. Þá sagði önnur
þeirra:
„Mikið rosalega fara þeir illa
með vesalings eggið!“
Ingunn
Æska!
Ég sendi þér brandara:
Kennari: Jæja, Óli minn, hvar
finnur maður fílana?
Óli: Fílarnir eru svo stórir að
þeir geta ekki týnst!
Linda Björk.
SAGA SAMDI SÖGU
Kæri Æskupóstur!
Ég samdi nýlega sögu. Mig
langar til að láta birta hana ein-
hvers staðar en ég veit ekki hvar.
Hún er of löng til að hún verði birt
í barnablaði eins og Æskunni.
Hvað á ég að gera?
Að lokum: Hvenær ætlið þið að
2 0 Æ S K A N