Æskan - 01.02.1992, Side 46
KTOTCJ
OG DANSIÐ
NÚ GEFST TÆKIFÆRITIL AÐ LÆRA LÉTTA
SVEIFLU í DANSIÁ FIMM STUNDUM...
vetur hefur verið efnt til dansnámskeiða í
Reykjavík þar sem norskir leiðbeinendur,
Sidsel og Johan Fasting, kenna létta sveiflu
í dansi. Hvert námskeið er haldið á tveim-
ur dögum og er tvær og hálf stund í senn.
Námskeiðin hafa reynst mörgum kær-
komið tækifæri til að læra léttar og frjálsar dansaðferðir
á stuttum tíma. Þau verða næst haldin dagana 12.-15.
mars - og loks í lok apríl. Þau skiptast í byrjendanám-
skeið, framhaldsnámskeið og námskeið fyrir 10-13 ára
krakka.
Á námskeiðunum er mikið fjör á ferðum. Jóhann og
Sidsel hafa einstakt lag á að láta fólk skemmta sér jafn-
framt því sem það lærir réttar hreyfingar. Þau hafa kennt
dans með þessum hætti í nokkur ár í Noregi og áhugi
Norðmanna á dansi hefur aukist verulega. Jóhann, norsku
ungmennafélögin og Áfengis- og vímuefnaráð Noregs
hafa komið á fót þjónustustofnun, Komið og dansið, sem
býður námskeið fyrir almenning, skóla, vinnustaði og
hvers konar hópa sem vilja læra skemmtilegan og auð-
veldan dans.
KOMIÐ BROSANDI!
í kynningu á námskeiðunum er lögð áhersla á að all-
ir komi brosandi, klæðist léttum fötum og lágum skóm
- og hafi með sér handklæði til að þurrka svitann!
Raunin er líka sú að allir hafa gaman af að læra þetta
létta sveiflurokk í óþvinguðu umhverfi - og að þörf er
fyrir handklæðin eftir hraðan dans!
Stefnt er að því að stofna til samtaka hér á landi með
það markmið m.a. að gera dansinn að almenningseign og
halda stutt dansnámskeið að hætti Komið og dansið í
Noregi.
S O Æ S K A N