Æskan - 01.06.1993, Blaðsíða 9
æfingu og ætlaði líka að skrá
sig til þátttöku í enn einu tíu
kílómetra hlaupinu! Og ég
tóktil við að spyrja ...
- Hvenær fékkstu áhuga á
að keppa í langhlaupum?
„Ég hef alltaf haft gaman af
því að hlaupa. Pabbi skokkar
og ég fékk að fara með hon-
um í Reykjavíkur- Maraþon
1989. Ég hef verið með í því
hlaupi síðan. Það fer alltaf
fram í ágúst og 1991 var
hlaupið á átta ára afmælis-
daginn minn, 18. ágúst!“
- Hefur þú æft þessa grein
sérstaklega?
„Já, ég hef verið nokkuð
dugleg að æfa mig, sérstak-
lega í sumar. En ég byrjaði
fyrst með Ungmennafélaginu
Aftureldingu í Mosfellsbæ
þegar ég var fimm ára, - í
leik- og þrekæfingum tvisvar
í viku. Svo fór ég í ÍR og hef
æft ýmsar frjálsíþrótta-grein-
ar með því félagi í tæp tvö
ár.“
- Hefur þú keppt í mörgum
greinum?
„Já, í ýmsum greinum í
frjálsum íþróttum - en ég
kann best við löngu hlaupin."
- Hvenær keppir þú næst?
„í Jónsmessu-hlaupinu 23.
júní. Ég býst líka við að vera
með í Borgarhlaupi Nike í
sumar. Ég held að það verði
Ljósmynd: Tómas Jónasson
EygerðurInga
Halþórsdóltir á
æfingu á
Laugardalsvelli.
Ljósmynd.Tómas
Jónasson.
5 km. Kannski keppi ég í 800
m hlaupi á Unglingameist-
aramóti íslands á Dalvík. Ég á
kost á því.“
- Keppa einhverjir ætt-
ingjar þínir í langhlaupum?
„Já, Jóhann Ingibergsson —
og Hjálmar Jóelsson á Egils-
stöðum hefur oft tekið þátt í
þeim.“
- Hvað gerir þú í tóm-
stundum - annað en að æfa
íþróttir?
„Ég fer oft í sund. í fyrra-
haust byrjaði ég að syngja
með Barnakór Varmárskóla.
Mér þykir líka gaman að lesa
sögubækur. Og ég er áskrif-
andi að Æskunni og finnst
skemmtilegt að lesa hana og
leysa þrautir.“
-Áttu gæludýr?
„Nei, en mér þykir vænt um
dýr. Ég hef verið dálítinn tíma
í sveit í tvö sumur - að Saur-
bæ í Skagafirði. Ég fer þang-
að í júlí og verð í tvær vikur.
Þar eru hundar, kettir, hestar
og kýr. Líka kindur en þær
verða á fjöllum þegar ég kem
norður. Ég fer stundum í út-
reiðartúr. Það er mjög gam-
an. Hér fyrir sunnan skrepp
ég stöku sinnum í hesthús
með vinkonu minni. Ég hef
líka farið með henni á fundi í
hestamannafélaginu Herði í
Mosfellsbæ.“
Eygerður Inga þarf a.ð fara
á æfingu. Við látum spjallinu
lokið. En hún hefurekki „sagt
sitt síðasta orð“ á hlaupa-
brautinni. Það mun tíminn
leiða í Ijós.
KH
Æ S K A N 9