Æskan - 01.08.1994, Qupperneq 10
gaman að vera með hunda nema
þeir séu illa upp aldir og vondir.
Hann var lítill hvolpur þegar við
fengum hann á Ólafsfirði á fyrsta
tökudegi. Við vorum þar í hálfan
mánuð. Reyndar átti hann að vera
blendingur en við völdum frekar
hreinræktaðan hund. Það er betra
að siða þá. Hann er íslenskur fjár-
hundur."
- Hvað varð um hann?
„Við tókum hann að okkur eftir að
við komum í bæinn en það er ekki
gott að hafa hund á þessu heimili af
því að enginn er heima að minnsta
kosti hálfan daginn. Ólafía Hrönn,
sem lék hundakonuna, keypti hann.
Henni fannst hann æðislegt krútt!“
- Átt þú eitthvert dýr?
„Ekki núna. Ég átti hamstra og við
höfum átt tvær kisur saman. En
Halla systir mín hefur átt naggrís,
kanínu og fugl. - Hvað hún er göm-
ul? Ja, ég man það varla, jú, hún er
á 15. ári. Hún er í tíunda bekk í Víði-
staðaskóla. Hera systir er að byrja í
Menntaskólanum í Hamrahlíð. Hún
er á 17. ári.“
SEX KENNARAR Á EINU ÁRI
- í myndinni selur þú blöð. Hafðir
þú unnið við það sjálfur?
„Já, ég hafði einmitt selt Fjarðar-
póstinn veturinn áður. Ég fékk 40
blöð og mátti ganga í hús í ákveðn-
um götum og selja síðan á götunni
eða í fyrirtækjum. Það gekk bara vel.
Atriðið var tekið í Austurstræti og
á Austurvelli. Mér fannst dálítið
skammarlegt þegar ég var að hrópa
hástöfum: Dagblaðið - Vísiiir!
Nokkrir krakkar voru með í þessu
atriði og seldu blöð. Við vorum með
eldgömul blöð og þau voru frá
þriðjudegi en þetta var á laugardegi.
Sumir krakkanna gátu selt fólki
blöðin á fimmtíu krónur!“
- Þekktir þú einhverja af krökkun-
um sem léku í myndinni?
„Nei, og þó. Sá sem leikur Alla í
myndinni heitir Gylfi og var með mér
í sjö ára bekk í Æfingaskólanum í
hálft ár.
Þá var ég að koma frá Danmörku.
Ég hafði sex kennara á einu ári -
ekki einu skólaári en 365 dögum.
Tveir voru í Danmörku, tveir í Æf-
ingaskólanum, fyrst aukakennari
meðan aðalkennarinn var í barns-
burðarleyfi, minnir mig, og síðan
kom hann, hún!, aftur. í Víðistaða-
skóla hafði ég líka tvo kennara!"
SLETTI DÖNSKU
- Varstu lengi í Danmörku?
„Já, fimm ár. Mamma var að læra
að verða innanhúsarkitekt og pabbi
kenndi þar á rneðan."
- Hvernig fannst þér að koma í
bekk á íslandi?
„Það var allt í lagi. Ég skildi og gat
talað íslensku þegar ég kom þó að
ég beygði orðin dálítið vitlaust og
sletti dönsku!
Við töluðum íslensku á heimilinu
ytra en við krakkarnir lékum okkur „á
dönsku!“
- Hlakkarðu til frumsýningarinnar
eða kvíðir þú fyrir henni?
„Ég hlakka bara til. Við fjölskyldan
sáum myndina fyrir viku og ég tók
ekki eftir neinu sem ég þyrfti að vera
óánægður með. Mér finnst hún fín.“
- Hafa krakkarnir í skólanum talað
mikið um myndina við þig?
„Nei, nei. Bara krakkarnir í bekkn-
um mínum þegar tökurnar voru bún-
ar því að þá hafði ég ekki verið í
skólanum í einn og hálfan mánuð.
En hinn bekkurinn vissi ekkert fyrr
en löngu seinna!"
Kannski hefur það breyst eftir
frumsýninguna. En ég þykist vita að
það hafi ekki mikil áhrif á Kára. Hann
verður sami strákurinn, einlægur og
fjörlegur sem fyrr.
Kári sem Emil og Ólafía Hrönn Jónsdóttir sem „hundakonan".
7 O Æ S K A N