Æskan

Årgang

Æskan - 01.08.1994, Side 11

Æskan - 01.08.1994, Side 11
uuuuuuuuuuuuuuu r-% my ny £y ey fy #**% r*% #*% 0» #*% #*% o* r» bbbobbobbbooboooob r> '■::;«*;í' O #*% \«l# '%WéÍr U PPH AFSSTAF! C% b b Nokkrir lesendur sendu efni í sam- keppni Æskunnar um sögu sem átti að rita alla með sama upphafsstaf. Það var sýnu minna en barst í sams konar keppni 1954. En höfundunum tókst að semja ágætar sögur þó að þeim væri þröngur stakkur skorinn. Aðalverðlaunin, Ritsafn H.C. Andersens, Oliver Twist eftir Charles Dickens og þrjár aðrar útgáfubækur Æskunnar, hlýtur Alma Rut Ásgeirs- dóttir 12 ára, Nökkvavogi 21, 104 Reykjavík. Þrenn aukaverðlaun hreppa Erna Þórey Björnsdóttir 15 ára, Vana- byggð 2G, 600 Akureyri, Þorbjörg Inga Ásbjarnardóttir 13 ára, Þor- grímsstöðum, 531 Hvammstangi, og Ásbjörg Kristinsdóttir, Starrahólum 15, 111 Reykjavík. Aðrir þátttakendur fá viðurkenn- ingarskjöl. Æskan þakkar þeim kærlega fyrir framlag til þessarar sérstæðu sam- keppni. Við birtum hér sögu Ölmu Rutar. Aukaverðlaunasögurnar verða í næstu tölublöðum. S J Á V A Sólbjartur Sæbjörnsson skokkaði Skúlagötuna silalega. Sólin skein skært svo Sólbjartur svitnaði svaka- lega. Sjórinn speglaðist silfurtær. Skipin sigldu sigursæl. Sjávarilm- urinn seiddi sætur. Sólbjartur sá Snædísi skokka sjávarsíðuna. Sólbjartur spretti sporið. Strigaskórnir sperrtu sig sportlega. Sóli stundi. Sagði stirðlega: „Sæl!“ „Sæll,“ svaraði Snæa. „Skokk- arðu stundum?11 „Sjaldan,11 svaraði Sólbjartur. „Skokkum saman,“ sagði Snæa. „Sammála," sagði Sóli sæll, skælbrosandi, skellti sér samsíða skutlunni, spólandi, sprengmont- inn. „Sólríkur sunnudagur,“ sagði Sóli stundarkorni seinna. „Setj- umst smástund. Smáhvíld sakar sjaldan. Smakkaðu suðusúkku- laði, sætt sælgæti.“ „Smábita," sagði Snæa. Svo skrjáfaði súkkulaðibréfinu. „Sjáðu selinn synda sunnan síðuna. Sá stingur sér!“ Skötuhjúin spjölluðu smástund saman. Snæa skríkti, Sólbjartur sagði skemmtilegar sögur. Svolítið „sjar- merandi" strákur. Stæltur skrokkur- inn, sólbrúnn, síbrosandi. Snædís samsvaraði sér, svakalega sæt. Svolítið stríðin. Skemmtileg stelpa. „Skokkum smáspöl," sagði Snæa. „Sammála," sagði Sóli, strauk svitann. Svolítið skotinn. „Saknarðu skólans, Snæa?“ „Stundum, sérstaklega stelpn- anna. Sumar sóttu sveitina. Svolít- ill söknuður. Stelpurnar sækja sveitaböllin stíft. Sveitungarnir skoða stelpurnar, sætu stórborg- arskvísurnar. Saknarðu strákanna, Sólbjart- ur?“ „Sjaldan, smávegis stundum.“ Stundarfjórðungi síðar stigu strigaskórnir sveittir sjóðheitan sand strandarinnar. „Setjumst! Sandurinn sindrar stórkostlega," sagði Snædís. Sóli settist. Sjórinn sneið silki- mjúkan sandinn sönglandi. „Sjáum sólina setjast," sagði Snæa. „Saman!“ sagði Sóli samtímis. „Sammála!" Æ S K A N 7 7

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.