Æskan

Árgangur

Æskan - 01.08.1994, Blaðsíða 12

Æskan - 01.08.1994, Blaðsíða 12
ELSTA FÉLAG BARNA Heil og sæl! Nú er vetrarstarf barnastúknanna hafið eftir sumarfríið. Hér á síðunni sjáið þið svipmyndir úr starfi barnastúkunnar Æskunnar en hún er elsta barnastúka landsins og jafnframt elsti félagsskapur barna á landinu. í barnastúkum er margt sér til gam- ans gert: Farið í ferðalög, heimsóknir milli stúkna, skíða- og sleðaferðir og jafnvel bátsferðir; haldin grímuböll og diskótek. Þá eru ótaldir fundirnir sem eru reglulega allan veturinn en þar gefst félögunum kostur á að láta Ijós sitt skína, koma með leiki, skrýtlur, þrautir og leikrit. Einnig er foreldrum og systkinum stundum boðið að taka þátt í fjörinu. Þá er dagskráin í höndum félaganna og gjarnan hafðar erfiðar þrautir fyrir fullorðna fólkið enda þykir flestum gaman að geta hlegið að mömmu og pabba öðru hvoru! Þá læt ég þetta gott heita að sinni enda tala myndirnar sínu máli. Bestu kveðjur, í sannteika, kærleika og sakleysi, Lilja Harðardóttir, stórgæslumaður unglingastarfs. STORTEMPLAR FERMIR ÆÐSTATEMPLAR Það hefur sennilega ekki gerst oft í sögu Reglunnar að stórtemplar hafi fermt æðstatemplar í barnastúku sem hann er gæslumaður í. Það gerðist þó 20. mars sl. þegar sr. Björn Jónsson stórtemplar fermdi Matthías Frey Matthíasson æðstatemplar í Stjörn- unni nr. 103. Myndin er tekin í Akra- neskirkju. Ljósmyndari var Carsten Kristins- son. Á þingi Unglingareglunnar í vor flutti Matthías þetta ávarp: „Kæru reglusystkini! Ég heiti Matthías Freyr Matthíasson og hef verið í barnastúku frá því ég var sjö ára. Síðustu fjögur árin hef ég verið í embætti æðstatemplars. Við höldum fund seinasta laugardag í hverjum mánuði frá september þar til í apríl. Eins og gefur að skilja leggjum við höfðuðáherslu á bindindi áfengis og tóbaks. Svo reynum við auðvitað líka að varast vonda siði og temja okkur góða. Oft förum við í ferðalög, heimsækj- um aðrar barnastúkur og fáum heim- sóknir frá þeim. Á fundunum gerum við margt okkur til fróðleiks, gagns og skemmtunar. Við erum hér stödd fimm félagar úr Stjörnunni í fylgd með gæslumanni okkar, Birni Jónssyni. Það er bæði gaman og lærdómsríkt að vera hér og fylgjast með störfum þingsins. Við óskum Unglingareglunni og Stórstúkunni heilla og farsældar í mikil- vægu starfi, þökkum fyrir að hafa feng- ið að koma hingað og vonum að þetta þing verði íslenskri æsku til blessunar." 12 Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.