Æskan - 01.08.1994, Qupperneq 29
Þegar við gengum frá efni þessa
tölublaðs um miðjan september hafði
ekki verið gerð fullnaðaráætlun um ung-
lingakeppnina í þolfimi,- Við bendum
þeim sem áhuga hafa á að taka þátt í
henni að fylgjast með auglýsingum í í-
þróttahúsum og skólum. Við minnum
líka á að reglur um keppnina voru birtar í
6. tbl. Æskunnar 1994.
Magnús heldur enn áfram á sigur-
brautinni. Honum var boðið með
skömmum fyrirvara á mót í Kóreu, skellti
sér þangað þó að hann væri ekki vel
undirbúinn og vann!
En víkjum nú að áhugasömum ung-
lingum:
í SÝNINGARFLOKKI ...
Hafþór Ólafur Gestsson er 13 ára
Vesturbæingur. Hann er í sýningarflokki
þolfimihóps á vegum Magnúsar
Schevings og félaga hans í „Areobic
Sport“. Ég frétti að hann hefði náð valdi
á erfiðum æfingum ...
„Já, ég stekk í „spíkat“ og get gert
armbeygjur með annarri hendi og haft
þá annan fótinn á lofti,“ svarar hann
hógvær.
- Hvenær kviknaði áhugi þinn á
þolfimi?
„í fyrravetur. Ég hafði fylgst með
Magnúsi í sjónvarpinu. Frændi minn var
að vinna í Faxafeni 12 þar sem líkams-
ræktarstöðin er og benti mér á að þar
væru tímar fyrir unglinga. Ég skellti mér
þangað með Ólafi, vini mínum. Við höf-
um æft þar í sex mánuði. Tímarnir eru
þrisvar í viku.“
Hafþór stekkur i „spíkat"...
- En sýningarflokkurinn er nýr af nál-
inni...
„Já, við byrjuðum að æfa saman fyrir
þremur mánuðum."
- Hafið þið sýnt víða?
„Við höfum sýnt hjá Vífilfelli og á
hverfishátíðinni við Hólmasel í Breið-
holti. Við gerum ráð fyrir að sýna hálfs-
mánaðarlega í vetur.“
- Hve gamlir eru krakkarnir í hópn-
um?
„Við erum 13-16 ára.“
- Hefur þú æft þolfimina heima?
„Já, ég æfi mig næstum á hverjum
degi. Þá leik ég einhverja músík með
átta töktum og bý til tveggja mínútna
„rútínur" (æfingasamstæður). Ég vel
saman ýmsar æfingar sem eiga að vara
í tvær mínútur í heild.“
- Stundar þú aðrar íþróttir?
„Já, ég æfi líka sjálfsvarnaríþróttina
Taekwondo. Hún er kennd á sama
stað. íslandsmeistarinn í greininni kenn-
ir okkur. Hann er 16 ára.“
- Æfa margir þá grein?
„Við erum ekki mörg núna en það
fjölgar áreiðanlega í september því að
þá verða námskeiðin kynnt.
Ég var í körfuknattleik hjá KR - og
fimleikum í einn og hálfan mánuð en
hætti því þegar ég kynntist þolfiminni."
- Hverjir eru eftirlætisíþróttamenn
þínir?
„Þolfimikennararnir mínir. Þeir eru
allir íslandsmeistarar og mjög skemmti-
legir kennarar."
SJÓRÆNINGJAR ...
- Hvað gerir þú annað í tómstund-
um?
„Ég hef verið skáti í þrjú ár. Félagið
heitir Ægisbúar en flokkurinn Sjóræn-
ingjar. Ég ætla á flokksforingjanámskeið
sem verður haldið bráðlega. Georg, vin-
ur minn, fer með mér. Kannski verðum
við saman með flokk í vetur.“
- Hvað finnst þér skemmtilegast í
skátastarfinu?
„Ferðalögin. Við förum fjórum eða
fimm sinnum á ári að Arnarsetri. Það er
skátaskálinn okkar. Þar förum við til
dæmis í hæk-ferðir, gönguferðir til að
leysa verkefni. Á sumrin eru félagsúti-
legur, oftast að Úlfljótsvatni."
- Það var dýr sem tók á móti mér...
„Já, hún Tinna, tíkin okkar. Hún er
þriggja ára en við fengum hana þegar
hún var eins árs. Við skiptumst á að
fara út með hana. Ég fer niður að sjó og
leyfi henni aö hlaupa þar á grasbala.
Við eigum líka fiska, fjöldamarga litla
gúbbífiska.“
- Hefur þú lært á hljóðfæri?
„Ég fór á námskeið hjá Hljóðmúrn-
um, einn mánuð, og lærði þá að stilla
gítar. Ég hef verið að hugsa um að læra
á gítar.“
- Hvaða tónlist líkar þér best? Hver
er eftirlætis-hljómlistarmaður þinn?
„Ég vil helst hlusta á hröð og fjörug
lög. - Mér finnst Jimi Hendrix gítarleik-
ari mjög góður.“
Æ S K A N 2 9