Æskan - 01.08.1994, Side 30
KOSTAR NÁM ÞRICCJA BARNA
Á INDLANDI
_______________
Áfengisvarnaráð minntist tíma-
móta, 40 ára afmælis, með tákn-
rænni gjöf. Það veitti Hjálparstofnun
kirkjunnar starfsstyrk, andvirði einn-
ar flösku af áfengi mánaðarlega til
1998. Hann á að renna til þess að
kosta nám þriggja barna á Indlandi.
AÐ GANGA UPPRÉTTIR
Efnt var til blaðamannafundar á
afmælisdeginum, 6. maí í vor. Ólafur
Haukur Árnason, áfengisvarnaráðu-
nautur ríkisins, flutti þar ávarp. Hann
nefndi að áfengi væri enn hættu-
legra en menn hefðu viljað vera láta:
„Ef það hefði verið fundið upp
núna en jafnframt vitað um skað-
semi neyslu þess yrði það bannað
umsvifalaust sem stórhættulegt efni.
Hins vegar dreifa þeir sem hagnast
á áfengissölu röngum upplýsingum
um eðli og áhrif áfengisneyslu og
leitast að sveipa neyslu þessa
vímuefnis fölskum dýrðarljóma."
Hlutverk Áfengisvarnaráðs er m.a.
að vera Alþingi, ríkisstjórn og öðrum
opinberum aðiljum til ráðuneytis um
áfengismál og fræða fólk um afleið-
ingar áfengisneyslu.
Ólafur sagði að vitna mætti til
orða Sigfúsar Daðasonar skálds um
hlutverk ráðsins:
„Mannshöfuð er nokkuð þungt
en samt skulum við ganga upp-
réttir."
ÁHERSLA Á FORVARNIR
Jónas Þórir framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar kirkjunnar veitti
viðtöku bréfi sem vottaði gjöfina.
Hann færði gefendum kærar þakkir
og minntist á að í hjálparstarfi væri
nú lögð æ meiri áhersla á forvarnir:
að hjálpa fólki til sjálfshjálpar. Hann
ræddi um hvernig áfengisdrykkja
hamlar hjálparstarfinu:
„Það böl sem áfengisneysla skap-
ar, ekki síst í þriðja heiminum, er ó-
skaplegt."
Indversk börn í búðum fyrir munaðarlausa.
HEIMSÓKNIR í SKÓLA
Starfsmenn Áfengisvarnaráðs
hafa um áratugi heimsótt skóla og
rætt þar við kennara og nemendur.
Jón Guðbergsson fræðslufulltrúi og
Hörður Zóphaníasson fyrrverandi
skólastjóri hafa ferðast saman í
haust, m.a. um allt Norðausturland.
Jón hefur einnig farið í skóla með
hópi sem sýnt hefur leikritið,
Gúmmíendur synda víst, eftir Eddu
Björgvinsdóttur. Það er ætlað til að
kveikja umræður og hafa þær víðast
hvar orðið mjög fjörugar.
Símar Áfengisvarnaráðs eru (91-)
19405 og (91-) 19944
framkvaemda
s Pórir
Hjálparstofnunar kirxj
ir veitir viðtöku skjali
vottar starfsstyrk
igisvarnaráðs - til að
nám hriaaia barna a
Olafur Haukur Ári
áfengisvarna
ráðunautt
Æ S K A N 3 0