Æskan

Árgangur

Æskan - 01.08.1994, Síða 41

Æskan - 01.08.1994, Síða 41
getu því að miklu skipti að afla sem allra mestra heyja handa sauðfé, nautgripum og hrossum sem raunar voru aðeins fjögur. Túnið á Hjalla var lítið og þurfti mikið að heyja á engjum. Allt hey- ið var bundið í bagga, sem voru 45 til 55 kíló, þegar það var orðið þurrt. Heyið var síðan flutt heim að hlöðu á hestum, tveir baggar á hverjum og var þaö kallað hest- burður. Áður en byrjað var að flytja heyið heim var lagt reiðfæri - sum- ir kölluðu það reiðing - á hestana. Það voru tvær dýnur, hvor á sinni hliö og festar saman yfir bakið á hestinum með margföldum striga. Ofan á dýnuna var lagður klyfberi úr tré með tveimur klökkum úr járni með járnörmum sem læst var á miðjum boganum. Þar var lás og snærisspotti festur í. Kippt var í hann þegar baggarnir áttu að falla af klökkunum heima við hlöðu. Við klyfberann voru festar tvær gjarðir, önnur fremst en hin aftast, og spenntar undir kviðinn á hest- inum. Járnin á klyfberanum voru nefnd hleypijárn. Vegna þeirra var auðvelt að láta börn teyma hest- ana af engjunum og heim að hlöðu þegar þau voru orðin það stór að þau náðu upp á bakið á hestinum til að hleypa niður eins og það var kallað. Það kom því af sjálfu sér að bræðurnir á Hjalla fengu það starf að fara á milli, það er að segja að teyma hestana meb böggunum af engjum heim ab hlöðu og til baka. Oftast voru þrír hestar í lest í hverri ferð nema í síðustu ferðinni hvern dag því að sjaldan stóð þannig á baggafjöldanum. Bræburnir voru ekki nema átta eða níu ára þegar kom í þeirra hlut ab fara á milli. Það var mjög á- byrgðarmikið starf að þeirra mati því að oft voru baggarnir mis- þungir og vildi þá hallast á. Þá þurfti að toga í léttari baggann og jafnvel setja þunnan stein undir reipin á honum. Reipin, sem heyið var bundið í, voru heimatilbúin ýmist úr ull eða hrosshári, þ.e. tagl- eba faxhári af hrossum. Ullin og hrosshárið voru spunnin í grófan þráð, síöan tvinn- að og loks fléttað í reipi. Þau voru höfð svo löng að þau næbu ör- ugglega utan um baggann þó að heyið væri vel þurrt. Á hverju reipi voru tvær hagldir (högld: horn- eða trélykkja (þunnur bútur með gati eða götum)) og á milli þeirra var u.þ.b. 15 sm langur sili, það er hluti af reipinu sem bundinn var við þær. Þegar baggarnir voru látnir upp á hestinn (á klakkinn) héngu þeir á silanum. Oftast voru það fullorðnir karl- menn sem létu baggana upp á hestana. Þó kom fyrir að 16 til 18 ára unglingar lyftu þeim á klakk ef þeir voru svo sterkir ab þeir gátu það. Mörgum strákum þótti gam- an að reyna það. Ef þab tókst þótt- ust þeir vera meiri menn en ábur. Var þá sagt að þeir væru orðnir klyftækir. Þegar heyið hafði verið flutt heim var eftir að velta böggunum inn um vindaugaö, baggagatið, á hlöðunni. Síðan voru reipin leyst af böggunum og heyinu dreift um hlöðuna. Þá var hirðingu lokiö. Eft- ir að búið var að flytja heyið heim var reiðfærið tekið af hestunum og fariö með þá í hagann sem var ofan við engjagirðinguna. Þá var dagsverki lokið og þreyttir menn og hestarfengu næringu og hvíld. Þegar heyjab var á engjum var venja ab færa fólkinu mat og kaffi þangað. Á Hjalla sáu börn um þab eins og á flestum sveitabæjum. Oft fannst bræðrunum erfitt ab bera matinn á engjarnar en þab komst upp í vana. Annað verk var bræðrunum alltaf falib. Það var ab sækja hesta hvenær sem þurfti á þeim að halda. Oft gat veriö erfitt að finna þá, einkum þegar þoka var. Framhald. (Höfundur er roskinn maöur og var bóndi. Hann kýs aö láta hins rétta nafns síns ekki getiö). SPILA- KLÚBBURINN Kæra Æska! Mig langar til að ganga í Spila- klúbb Æskunnar. Ég á um 108 tegundir af spilum og vil gjarna skipta við aðra safnara. Ásta Hrönn Harðardóttir, Hólakoti, 601 Akureyri. Sæl, Æska! Mig langar að biðja þig að láta skrá mig í spilaklúbbinn. Ég á um 540 spil. E/sa Arney Helgadóttir, Réttarholti, 720 Borgarfirði e. Hæ! Ég safna spilum og vil gjarna skipta við ykkur. Margrét Jónsdóttir, Ægissíðu 16, 610 Grenivík. Hæ, hæ! Ég safna spilum og vildi fegin skipta vió aðra safnara. Steinunn Hreiðarsdóttir, Öxnhóli, 601 Akureyri. Sælir, safnarar! Ég er að safna spilum og lang- ar að skipta við aðra spilasafnara. Dagný Sigríður Jónasdóttir, Austurbyggð 6, 600 Akureyri. Safnarar! Ég hef sett veggmyndir, barm- merki, bréfsefni og minnisblöð í einn kassa. Ef einhvern langar í þetta er um að gera að skrifa því að annars hendi ég því. María Narfadóttir, Lambhaga, 630 Hrísey. Æ S K A N 4 7

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.