Æskan

Årgang

Æskan - 01.08.1994, Side 44

Æskan - 01.08.1994, Side 44
POfiP nóim 2 UNLIMITED Kæra Popphólf! Ég var að lesa gamalt tölublað Æsk- unnar. Þar voru söngvararnir í 2 Unlimited sagðir heita Anette og Ray. Sú sem þið kallið Anette heitir Anita Danielle Doth. Ray heitir Raymond L. Slijngaard (ég man ekki hvert millinafnið er) en er kallaður Ray. Lena Sólborg Valgarðsdóttir. Svar: Frá því fyrst var skrifað um 2 Unlimited í Æskunni hefur þessi vinsæli hollenski dúett verið kynntur nánar á þessum vettvangi. Þar hafa skírnarnöfn m.a. verið nefnd. Það sem á vantaði og skal nefnt hér er að millinafn Rays er Lothar. BJÖRK Kæra Popphólf! Er starfræktur aðdáendaklúbbur Bjarkar Guðmundsdóttur? ? Svar: Reyndu að skrifa á ensku til: Björk Fan Club, 250 York Road, London SW11, Englandi. KURT COBAIN Ég er sammál Eyrúnu og Guðrúnu sem óskuðu eftir veggmynd af Metallicu. Margir myndu þiggja grein um hljómsveitina. Það væri líka gaman að fá grein um Kurt Cobain, söngvara Nirvana, sem er nýdá- inn. Agnes Björk Bjarnadóttur. Svar: Metallica hefur margsinnis verið kynnt í Æskunni. Kurt Cobain fæddist 27. febrúar 1967 f smábænum Aberdeen í Washington-fylki í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Bærinn er skammt frá borginni Seattle sem ól gítar- hetjuna Jimi Hendrix og síðar þungarokks- sveitina Queensryche. Aberdeen er eitt versta fátæktarsvæði Bandaríkjanna. Þar hefur atvinnuleysi og fylgikvillar þess verið langvarandi. Áfengis- neysla er ein sú mesta í Bandaríkjunum. Börn og unglingar alast upp við hvers kyns ofbeldi. Hlutfall sjálfsmorða er tvöfalt hærra en annars staðar í landinu. Foreldrar Kurts skildu þegar hann var átta ára. Uppvaxtarár hans voru ömurleg. Hann var einmana og utanveltu, skrópaði margoft í skóla og lauk aldrei grunnskóla- námi. Móðir hans rak hann að heiman og hann hélt til undir berum himni eða réttara sagt undir brú. I einverunni dundaði hann sér við að gutla á gítar. 1988 stofnaði hann rokktríóið Nirvana. Sama ár fékk hljómsveitin plötu- samning og hljóðritaði að bragði smáskíf- una „Love Buzz/Big Cheese". Ári síðar kom breiðskífan „Bieach" á markað. Hún seldist í 35 þúsund eintökum I Seattle og nágrenni. Salan staðfesti hugmyndir plötu- útgefanda um að ópoppað og pönkað rokk Nirvana væri sölulegt. Næsta plata, „Nevermind", var kynnt sem hugsanleg metsöluplata. Engan óraði samt fyrir því að hún yrði sú sprengja sem raun varð á: Að hún ylli mestu straum- hvörfum í rokksögunni frá pönkbyltingunni 1977. Hún seldist í milijónum eintaka og náði m.a. efsta sæti bandaríska vinsældalistans í desember 1991. Stök lög af plötunni voru sett á smáplötur sem mokseldust einnig. Eitt þeirra, „Smells Like Teen Spirit", sigr- aði í hverri könnuninni á fætur annarri um bestu rokklög allra tíma. EIN MERKASTA ROKKPLATAN „Nevermind" hefur frá útgáfuárinu verið metin ein merkasta plata rokksögunnar. Hún er sett á stall með „Sgt. Peppers ...“, plötu Bítlanna, og „London Calling" með Clash - sem tímamótaverk. Með þessari plötu varð Seattle að nafla rokkheimsins og „grugg-rokk“ eða „grens- an“ („grunge") varð tískumúsík. Síðan hefur rokkvettvangurinn miðast við Nirvana, Pearl Jam, Soundgarden, Stone Temple Pilots o.fl. „grugg-sveitir“ frá þeim stað. Reyndar hefur „grugg“-hugtakið verið teygt svo og togað að hérlendis var rabb- rokklag með Rage Against The Machine sett á safnplötuna Grensuna. Fönk-rokk- rabb RATM getur ekki með neinu móti flokkast með „grugg-rokki“ fremur en margt annað sem hefur verið ranglega kennt við þennan einfalda, hráa og hrjúfa rokkmúsíkstíl. Kurt hafði óbeit á gítareinleik (sóló) og þeirri tegund sýndarmennsku sem setur einstaklinginn á stall. „Svokallaðar hetjur, goð og leiðtogar eru hættulegustu fyrirbærin í stjórnmálum og skemmtiiðnaði," sagði hann. „Hljóm- sveitir eiga að leggja áherslu á samleik og óeigingirni. Það var svo frábært hjá Bítlun- um og Clash. Allir fengu að njóta sín. Hæfi- leikar hvers einstaks fengu að blómstra án þess að öðrum væri haldið niðri.“ í VIÐJUM EITUREFNA Kurt var frá tvítugsaldri þjáður af sárs- aukafullum magakvölum sem klemmdar taugar orsökuðu. 24. febrúar 1992 gekk hann I hjónaband með söngkonunni Courtney Love. 18. á- gúst sama ár eignuðust þau dótturina Frances Bean. U.þ.b. ári fyrir fæðingu dótturinnar byrj- aði Kurt að fikta með eiturefnið heróín. Hann missti tök á neyslunni og gerði nokkrar árangurslausar tilraunir til að losna undan fíkninni. Að lokum gaf hann upp alla von um að losna úr viðjum heróínsins. Hann þoldi ekki tilhugsunina um að dóttir hans yrði að horfa upp á föður sinn tærast upp af völdum þess. 8. apríl sl. gafst hann upp og framdi sjálfsmorð. Hann lýsti ör- væntingu sinni, vonleysi og uppgjöf í átak- anlegu kveðjubréfi til eiginkonu og dóttur. Eftirlifandi liðsmenn Nirvana og ekkja hans hafa lagt ofuráherslu á að Kurt hafi valið aumustu „lausn" á vanda sínum. Þau hafa sömuleiðis barist gegn því að hann sé hafinn til skýja sem hetja. Þau benda á andúð hans sjálfs á poppstjörnudýrkun á- samt þeirri staðreynd að hann er alls ekki heppileg fyrirmynd - ef undan er skilið að hann var frábær söngvasmiður og flytjandi, einlægur og heiðarlegur á því sviði, eins og síðasta plata Nirvana, „In Utero“, sannar. Kurt Cobain á ferðalagi með konu sinni, dóttur og írsku söngkonunni Sinéad O’Connor. 4 4 Æ S K A N

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.