Æskan - 01.08.1994, Síða 45
ún viwyi/iw árniM
Dægurmúsíkfólk getur unnið fyrir
hærri upphæðum en almennir launþegar.
Margt bendir til að Björk sé orðin tekju-
hæsti íslendingurinn. Að vísu sýnir skatt-
skráin frá í fyrra að hún hafði „einungis"
eina milljón króna í mánaðarlaun. Hið
rétta er að í Englandi eru tekjur Bjarkar
skráðar á sjálfstætt fyrirtæki sem er al-
gerlega í hennar eigu. Fyrirtækið greiðir
allan rekstrarkostnað við poppstjörnuna
Björk (ferðir, dvalarkostnað, rekstur
hljómsveitar, upptökur o.þ.h.). Milljónin
er eins konar vasapeningur. Líklegt þykir
að raunverulegar tekjur Bjarkar á þessu
ári séu á bilinu 600 - 1000 milljónir króna.
í bók þar sem taldir eru ríkustu Bret-
arnir eru popparar áberandi (til gamans
má geta þess að tveir ríkustu mennirnir í
Bretlandi eru Svíar). Þessir úr hópi þeirra
eru sagðir eiga þykkasta peningahlaðann
„undir koddanum":
1. Bítillinn Poul Mc Cartney = 43 millj-
arðar íslenskra króna
2. Píanóleikarinn Elton John = 14 millj-
arðar
3. Söngvari Rolling Stones, Mick Jag-
ger = 10 milljarðar
4. Gítarleikari Rolling Stones, Keith
Richards = 8 milijarðar
5. Gítarleikari Dire Straits, Mark
Knophler, og trymbill Genesis, Phil Coll-
ins = 6 milljarðar hvor
6. Söngvarinn George Michael = 5
milljarðar
7. Gítarleikararnir Dave Stewart (úr
Eurythmics) og Eric Clapton og bassa-
leikarinn og söngvarinn Sting (úr Police)
= 3 milljarðar
8. Bítillinn George Harrison og
skoskættaði söngvarinn Rod Stewart =
2,6 milljarðar
9. Nýhættur bassaleikari Rolling Sto-
nes, Bill Wyman = 2,5 milljarðar
10. Söngvarinn David Bowie = 2 millj-
arðar
Fjöldamargir aðrir hafa orðið vellauð-
ugir á poppmúsík án þess að standa
sjálfir á sviðinu. Þannig á plötuútgefand-
inn Richard Branson 95 milljarða (eftir að
hann seldi plötufyrirtækið Virgin), söng-
leikjahöfundurinn Andrew Lloyd Webber
(sem samdi m.a „Jesus Christ Superst-
ar“) 32 milljarða, umboðsmaðurinn og
kvikmyndaframleiðandinn Robert
Stigwood (framleiddi m.a. myndina
,,Hair“) 16 milljarða og textasmiðurinn
Bernie Taupin (hefur t.a.m. samið flesta
texta Eltons Johns) á 4 milljarða króna.
Æ S K A N 4 5