Æskan - 01.08.1994, Side 53
JÓ-JÓ-KEPPMI VÍFILFELLS:
VAGGA OG
GERVIHNÖTTUR!
Það hefur ekki sést um sinn. En
skyndilega er það í höndum krakka
allt í kring! Jó-jóið! Þeir senda það út
í loftið og ná því í hendur sér aftur.
Leika margs kyns kúnstir! Sumir
sýna tilþrif. Aðrir þurfa að æfa sig
betur en þeir hafa gert...
Nú er efnt til íslandsmeistaramóts
í þessari sérstæðu grein á vegum
Vífilfells, fyrirtækisins sem framleiðir
og selur kók hér á landi. Ég brá mér
út á Seltjarnarnes og fylgdist með
keppni þar. Heimsmeistarinn Ivan
Hagen frá Brasilíu lék listir sínar og
stjórnaði leiknum ásamt Birni Sig-
urðssyni, starfsmanni markaðsdeild-
ar Vífilfells. Þeir hafa verið og verða
á þönum um borg og bæi fram að
22. október. Krakkar flykkjast á
keppnisstaði. í Árbænum biðu um
600 eftir þeim félögum um daginn!
Þegar þetta er skrifað, 15. sept-
ember, er þó hængur á: Jó-jóið er
uppselt á landinu! En úr því mun
bætt hið bráðasta.
Þetta er í annað sinn sem keppt
er hér við sundlaugina á Nesinu.
Samt er stór hópur krakka saman
kominn til að reyna sig og fylgjast
með. Aðdáunarkliður fer um hópinn
þegar Ivan sýnir ótrúlega snilli.
Margir reyna við þrautirnar fjórar
en hver af öðrum fellur úr keppni þar
til einungis eru eftir Björn Mekkinós-
son og Kristinn Máni Þorfinnsson.
Þeir keppa að lokum í gervihnattar-
sveiflu og Björn hefur betur.
ÍSLANDSMEISTARATITILL
OG VEGLEG VERÐLAUN
Á hverjum degi er keppt á þremur
stöðum. Raunar má frekar kalla það
æfingar. En tíu snjöllustu krakkarnir
fá skildi sem veita rétt til þátttöku í
lokakeppninni. Þeir fá líka verðlaun;
t.a.m. hlýtur sigurvegarinn bol, kók-
kippu og „gull“-jó-jó.
Um helgar er meira um að vera.
Þá eru útvarpstæki, íþróttatöskur og
fleira í verðlaun.
Gert er ráð fyrir að lokakeppnin
fari fram í Kringlunni í Reykjavík
laugardaginn 22. október. Þar kemur
í Ijós hver hlýtur íslandsmeistara-titil.
Verðlaunin þar verða glæsileg, m.a.
sjónvarpstæki!
10 MÍNÚTUM FYRIR
KEPPNI ...
Björn Mekkinósson, 13 ára
Seltirningur, er í 8. bekk í Valhúsa-
skóla. Hann segist vera nýbyrjaður
að æfa sig með jó-jó. Raunar hafi
hann ekki eignast það fyrr en 10
mínútum fyrir keppnina ...
„En ég hef nokkrum sinnum feng-
ið að reyna jó-jó vinar míns. Ég kom
hingað bara til að leika mér...“
- Hver eru aðaláhugamál þín?
„Mér finnst skemmtilegast að
renna mér á snjóbretti og leika
ísknattleik. Ég æfi með félaginu
Birninum, á svellinu í Laugardal."
Kristinn Máni Þorfinnsson er 12
ára og nemur í Vesturbæjarskóla ...
„Ég lék mér dálítið að þessu fyrir
þremur árum þegar „æðið“ gekk
síðast yfir. Ég keppti hérna líka fyrir
nokkrum dögum og varð þá í þriðja
sæti. Gervihnattarsveiflan heppnað-
ist ekki nógu vel hjá mér núna.“
- Hvað gerir þú helst í tómstund-
um?
„Ég hef mest gaman af að leika
mér í knattspyrnu. Ég hef æft þá
grein og líka handknattleik,
körfuknattleik og borðtennis. En ég
hætti í æfingum í sumar af því að ég
var svo mikið á flakki, fór oft í sum-
arbústað og aðstoðaði við Shell-
mótið í Vestmannaeyjum."
Æ S K A N S 3