Valsblaðið - 24.12.1964, Síða 3

Valsblaðið - 24.12.1964, Síða 3
VZc. VnLSBLHÐIÐ JÓLIN 1964 23. TÖLUBLAÐ ÚTGEFANDI: Knattspymuíélagið VALUR. Félagsheimili, íþróttahús og leikvellir að Hlíðarenda við Laufásveg. RITSTJÓRN: Einar Bjömsson, Frímann Helgason og Gunnar Vagnsson. Auglýsingaritstjóri: Friðjón Guðbjömsson. Prentað í ísafoldarprentsmiðju hf. Jólahugvekja eftir Grím Grímsson DýrS sé GuSi í upphœSum og friSur á jörSu . . . : Þannig sungu liersveitir himinsins, sem voru í fylgd með englinum, þegar hann kunngjörði mönnunum hinn mesta fagnaðarboðskap allra tíma: Y&ur er í dag frelsari fœddur, sem er Kristur Drottinn í borg DavíSs. Ekkert atvik og enginn atburður trúarsögu vorrar frá öndverðu skipar neinn sambærilegan sess í liug og hjarta kristins lýðs um gjörvalla heimsbyggðina og þessi, sem gerðist á Betlehems-völlum fyrir nær tvö þúsund árum. Stórbrotin mynd, þrungin dul- magni hins óræða og yfirskilvitlega, svipleiftur um nótt undir blásvörtum himni með blikandi stjörn- um. — Já, hvílík mynd, svo skýr, máttug og áhrifa- mikil, sem enn megnar að laða oss til sín eftir ár og aldir, jafnvel svo, að oss finnst sem vér séum sjálf ásjáandi og heyrandi, að vér sjáum með eigin augum engilinn, boðbera liiminsins, baðaðan ljósi Guðs dýrðar og heyrum óminn af lofsöng hersveit- anna, þegar þær hverfa aftur inn í liimininn. Og þegar söngurinn hljóðnar, stöndum vér eftir með hirðunum, þögul og gagntekin innri fögnuði og friði í yfirþyrmandi kyrrð hinnar heilögu nætur. Og engillinn hafði sagt: HafiS þetta til marhs, þér munuS finna ungbarn reifaS og liggjandi í jötu. Og nú, af því að vér höfum upplifað þennan at- burð með hirðunum, getum vér haldið inn til Betle- hem að hvílurúmi Frelsarans vors Jesú Krists, Jesú- barnsins, sem Guð gaf oss til þess að hann yrði með oss alla daga allt til enda veraldarinnar. Þau höfðu komið til Betlehem seint um kvöldið, vegmóð eftir langa, erfiða ferð. En hvergi var húsa- skjól fyrri þetta framandi fólk langt norðan úr landi, jafnvel þótt þau vektu athygli á því hvemig ástatt var og stund hennar væri komin. Hvergi var rúm fyrir þau í gistihúsunum, smiðinn Jósef frá Nazaret og heitkonu hans, Maríu. Og að lokum leit- uðu þau hælis í fjárhúsi, því að þar var næði að finna fjarri erli og mannaferðum, og þar ól hún, unga konan, frumburð sinn, sem liún vafði reifum og lagði í jötu. Konungur konunganna var fæddur. Og þegar vér nú á þessum jólum, göngum í eftir- væntingu með fjárliirðunum inn í þessa fátæklegu vistarveru til fundar við litla barnið og hamingju- sama foreldrana, þá gleymum vér því hve fábreyti- leg húsakynnin em, því að svo dýrleg er þessi stund og sá hugblær, sem hér ríkir ekki af þessum heimi. Svo gagntekin erum vér af mildum, þíðum blæ himinsins, sem hér andar á móti oss, — af birtu, fegurð og fögnuði þessarar stundar, að vér finnum, að hér á himinninn einn, Guðs andi, hlut að, mildi, miskunn og náð þess Guðs, sem er hald vort mannsbamanna, traust og von. Hér er friðnr Guðs og lielgi ívaf o>g uppistaða lítils samfélags, föður, móður og barns, þar sem barnið er þungamiðjan, sem vonirnar, fyrirheitin eru bundin við. Hér mætast himinn og jörð. Og þess vegna drögum vér skó af fótum vomm og beygjum kné í lotning og tilbeiðslu fyrir guðdóm- inum, Jesúbarninu, ímynd alls þess, sem gott er, fagurt, lireint og óflekkað. Hér við þetta livílurúm litla barnsins, mætist allt það, sem oss er lieilagast, sem vér vildum sízt án vera, og samvefst ljóma Guðs dýrðar í mannlegu umhverfi, —■ verður að veruleika, staðreynd í hjört- um vor mannanna, dýrmætri hugarreynslu, sem aldrei máist út. Dýrð sé Guði, lof og þökk á heilagri jólahátíð fyr- ir þá náð sína og blessun oss til handa, að láta nú enn einu sinni vonir vorar og óskir rætast um frið í lijarta og Guðs andblæ í sál og sinni. Friður Guðs og blessun veri með oss öllum á heilagri hátíð Frelsara vors Jesú Krists. LAWIV'" "XASAFN 253051 ÍSLANÖS

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.