Valsblaðið - 24.12.1964, Blaðsíða 4

Valsblaðið - 24.12.1964, Blaðsíða 4
2 VALSBLAÐIÐ I skýrslu aðalstjómar er þess get- ið, að samstarf hafi verið gott milli aðalstjómar og deildastjómanna, en þær sjá um rekstur deildanna íþróttalega og fjárhagslega Stjórnin reyndi í hvívetna að koma deildunum til hjálpar, ef á þurfti að halda. I skýrslu aðalstjómar kemur fram, að mikil nauðsyn sé fyrir félagið að eignast sína eigin skrifstofu, til af- nota fyrir muni, skjöl og gögn fé- lagsins, og svo til smærri funda- halda, fyrir stjómir og nefndir. Segir orðrétt: „Vill stjómin enn hvetja til þess að hafizt verði handa og skrifstofan innréttuð hið bráð- asta“. FRAMKVÆMDIR 1 ár var lokið við búningsklefa í austurendanum og áhaldageymslu. Einnig er skrifstofan tilbúin undir málningu og innréttingar. Er áætl- að að ljúka því verki á næsta ári. íþróttasalurinn var málaður, gólf- ið lakkerað. Við það hjálpuðu hand- boltastúlkumar mikið eins og áður. Einnig vom böðin og búningsklef- amir málaðir. Allar þessar fram- kvæmdir vom undir handleiðslu Sigurðar og Andreasar. Eiga þeir miklar þakkir skilið fyrir þann mikla skerf, sem þeir veita félaginu árlega. Hér má einnig bæta við, að ný vatnslögn var lögð frá íþróttahúsinu að félagsheimilinu. Verk þetta var mjög kostnaðarsamt. I ár var sáð í tvö stór stykki, og verða þau mjög bráðlega tilbúin til notkunar fyrir æfingar. Einnig var sléttað stykki fyrir endanum á gras- vellinum og lögð frárexmslisrör. Keyrður að kalksandur til blöndun- ar á moldarlagi því, sem sáð verður í. Haldið var áfram við að fylla upp fyrir sunnan malarvöllinn. Næsta ár verður svo farið í, meðal annars, að snyrta í kringum Valssvæðið. Væri æskilegt að Valsmenn allir tækju þá til hendinni og hjálpuðu til við það verk. FJÁRMÁLIN I skýrslunni er nokkuð rætt um fjármál félagsins, og þess getið, að erfitt sé að finna fastan fjárhagsleg- an grundvöll fyrir félagið, sem talið er að hái starfseminni. Leitað var til fulltrúaráðs félagsins, sem lofaði stuðningi um fjáröflun til þjálfara. Um þetta sagði ennfremur í skýrsl- unni: „Þrátt fyrir þessar ágætu ímd- irtektir hjá fulltrúaráðinu þá vitum við að þessi úrlausn er ekki til fram- búðar. Það er mjög nauðsynlegt að finna einhvem fastan grundvöll. 'v Islandsmeistarar kvenna utanhúss. Frá vinstri: Elin Eyvindsdóttir, Vigdís Pálsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Erla Magnúsdóttir, Bára Guðjónsdóttir, Katrín Hermannsdóttir, Sigriður Sigurðardóttir, Elínborg Kristjánsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Guð- björg Árnadóttir, Anna B. Jóhannesdóttir. Á myndina vantar Ásu Kristjánsdóttur.

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.