Valsblaðið - 24.12.1964, Blaðsíða 19

Valsblaðið - 24.12.1964, Blaðsíða 19
VALSBLAÐIÐ 17 sjálfu sér að vinna 10 mót á 12 ár- um, og langt verður þar til aðrir leika það eftir. Ég ráðlegg, að haft sé eftirlit með því að þjálfun flokkanna sé í þeim anda, sem hinn sérstaki leikstíll á að vera. Ég ráðlegg eindregið, að tekinn verði upp stuttur samleikur sem rauður þráður i félaginu i öllum flokkum. Við þurfum að fá þjálfara, sem er fær um að leggja drög að þessum leikstíl. Þvi höfuðgallinn á meistara- flokki Vals i dag er, að hann leikur ekki eftir neinum sérstökum stíl eða kerfi, eins og það komi sitt úr hverri áttinni. Snorri Jónsson er dæmið um það sem ég meina og er að tala um, leiltur hans, samfara knattmeðferð, var næstum þvi fullkominn í leikni, og skilning á þvi hvemig á að fram- kvæma þennan leikstíl. Þá má einnig vitna í snillinginn Albert Guðmundsson, sem lengst hefur náð íslenzkra knattspymu- manna. Hann kunni tökin bæði á stuttum samleik og löngum sending- um. Takist þeirn að ná þessum leik- stíl þurfa þeir ekki að kviða. Þar em ágætir einstaklingar, sem stimdum eiga góða leiki og sigra beztu lið, en svo fellur allt saman og svo tapa þeh fyrir lélegum liðum. Þeir sem stjóma hafa ekki inn- prentað leikmönnmn „taktiskar“ leikaðferðir i byrjun keppnistíma- bilsins, þar hafa aðrir með ekki betri leikmenn verið klókari og fengið betra út. Vona ég svo að allt gangi vel hjá okkar kæra Val. Mér virðist vera vakning í félaginu, og ég hef þá trú, að Valur geti lifað aflur sína frægð- artíma, ef þessi vakning nær til fé- laganna allra. Hvað mig persónulega snertir, er aldurinn farinn að segja til sin, hef þó alltaf gaman af knattspymu, og eiginlega elska hana eftir 40 ára kynni og samveru. I knattspymunni hef ég lifað mínar skemmtilegustu stundir. Hún hefir það seiðmagn sem ekki er hægt að slíta sig frá, hún er fyrir löngu orðin hluti af manni sjálfum. F. H. Ég mun, sem sannur íþróttamað- ur, leggja mig fram við að tengja viturlegt viðhorf til þors og varúðar. liiliilliiil ; s ; Þróttur hefur oft verið Valsmönnum erfiður. Hér er liart barizt, og liggja menn sem hráviði. Hér er Björgvin heldur seinn. Fram hefur skorað.

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.