Valsblaðið - 24.12.1964, Qupperneq 28

Valsblaðið - 24.12.1964, Qupperneq 28
26 VALSBLAÐIÐ „Valsmenn geta mikið meira ef þeir sýna aga og vilja“ — segir Ingvar Elísson í stuttu rabbi Það þótti nokkrum tíðindum sæta, er það fréttist s.l. vor að Val hefði borizt liðsauki i meistaraflokk, en það var Ingvar Elísson frá Akranesi. Hann fluttist til Reykjavíkur og stundar hér rafmagns- og útvarps- virkjastörf. Þeir, sem hafa fylgzt með knatt- spymunni nokkur undanfarin ár, þekkja Ingvar af leikjum hans með Akranesliðinu, en í þvá liði var hann einn marksæknasti maðurinn, og ógnvaldur hverri vörn sem móti lék. Hann var alltaf hinn vinnuákafi leikmaður, sem fylgdi fast eftir í hverri sókn, og gaf það margt mark- ið. Hann byrjaði ungur að iðka knattspymu, og hefur leikið í gegn- um alla flokka allt frá IV. og upp í meistaraflokk, og orðið Islands- meistari í III., II. og meistaraflokki. Valsblaðinu þótti eðlilegt að ná tali af Ingvari og heyra hvemig hon- um félli vistin á þessu nýja „heim- ili“, og hvemig honum litist á þessa nýju félaga og framtíðarhorfur meistaraflokks Vals. Að sjálfsögðu var skyggnzt örlítið inn í knatt- spymuferil Ingvars um leið, og var það svipað og svo mörg ævintýri ungra drengja, sem taka ástfóstri við knöttinn og knattspymuna. Hvenær byrjaðir þú að keppa í knattspymu? Þegar ég var 8 og 9 ára gamall var ég í sveit, og gat þá ekki keppt. En það mun hafa verið í fjórðá flokki sem ég keppti í fyrsta sinni og var þá raunar nýkominn úr sveit. Þetta var í miðsumarsmóti, og höfðu strák- amir keppt þrisvar við KR, og alltaf skildu liðin jöfn. Ég fékk sem sagt að taka þátt í fjórða leiknum í móti þessu. Óheppnin elti okktu, þvi við skoruðum hjá sjálfum okkur, og töp- uðum á þvi marki! Vegna dvalar minnar í sveit komst ég ekki fastur i kapplið fyrr en á öðru ári i þriðja aldursflokki. Þar myndaðist samstilltur hópur, sem hélt vel saman og tmnurn við ís- landsmót í III. flokki 1957, og þegar við unnum svo íslandsmótið í II. flokki 1960 vom allir þeir sömu og 1957 nema einn. Nokkuð minnistætt frá þessum dögum? Það væri þá helzt úrslitaleikimir 1 þessum tveim mótum sem við unn- um, og þá helzt fyrir það að þeir fóru báðir fram sama mánaðardag, sama vikudag, sama félag og sömu úrslit í báðum leikjum, en það vom 2 : 0, og félagið var Valur. Það verð- ur mér líka minnistætt úr þessu sama móti, er við gerðtnn jafntefli við Fram. Það em aðeins 5 minútur eftir þegar bakvörður okkar gerir víti, og skorar Fram úr spymunni 1:0. Okkur fannst sem allt væri tapað, en börðumst samt allt hvað af tók og okkur tókst að jafna. Aðeins einn leikur var eftir í riðl- inum, og milli KR og Fram, og urðu þau að gera jafntefli til þess að við hefðum möguleika á úrslitaleiknum. Okkur þótti til þess litlar likur, og biðum við í ofvæni eftir úrslitunum. Einn strákanna sagði mjög alvarleg- ur, að sig hefði dreymt að Akranes myndi vinna mótið, en því þorði enginn að trúa. En hvað skeður: það varð jafntefli, og á eftir fór svo leik- urinn við Val og kærkominn íslands- meistaratitill í II. flokki. Hvenær lékst þú fyrst með meist- araflokki? Kom sem varamaður 1958, og lék fyrst með meistaraflokki 1959, og fyrir mig var þetta því stórt ár: Is- landsmeistari í II. flokki og meistara- flokki sama árið. Ingvar Elisson í einvígi við Elias Hergeirs- son. Ingvar virðist hafa „afgreitt" Þorstein Friðþjófsson, og Ormar horfir á, en hvert fer „þrætueplið"? Hve marga landsleiki, félagsleiki? Það munu vera nær 100 leikir í félagskeppni, 3 landsleikir í A-liði og 2 í B-liði. Ég held það hafi helzt verið vegna þess að ég taldi einna mesta mögu- leika þar. Félagið átti leikvelli, íþróttahús og félagsheimili, annars var það ekkert sérstakt sem dró mig að Valsmönnum. Og hvemig hefur þér fallið? Ég var húinn að gera mér í hug- arlund að knattspymumenn Vals mundu mæta mikið betur og vera fjölmennari en raun var á í fyrra- sumar. Að vísu æfði II. flokkur yfir- leitt ekki með, en það gerði hann uppi á Skaga, en mér finnst það ekki alveg afsökun, ég bjóst við meira fjölmenni af eldri félögum. Margir leikmenn Vals em ágætir knattspymumenn, en ég held þvi fram, að þeir hafi aldrei náð því sem i þeim býr, stundum naumast 50% af getu sinni. I þetta geta komið dældir eins og gengur, en ég er enganveginn ánægð- ur með sjálfan mig né heildina. Ég hef það á tilfinningunni, að áður hafi starfið í Val verið líflegra en það er nú. En það á að vera hægt að ná miklu meira út úr liðinu en í sumar, ef það hefur áhuga og vilja til að vinna saman, og ef það tekst

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.