Valsblaðið - 24.12.1964, Qupperneq 30

Valsblaðið - 24.12.1964, Qupperneq 30
28 VALSBLAÐIÐ SJÖTUGUR: GUÐBJÖRN GUÐMUNDSSON HEIÐURSFÉLAGI I VAL OG STOFNANDI æfingu? Finnst þér það ekki heldur leiðinlegm- „lager“ að ganga í og ó- hreinlegur? Já, margs mætti spyrja, kæri fé- lagi, um afstöðu okkar hvers og eins lil félagsins okkar, og ef við viljum vera góðir félagar þá verðum við síknt og heilagt að vera að spyrja sjálfa okkur: Hef ég þá skyldutil- fixmingu til félagsins, sem góðum fé- laga sæmir? Sýni ég skyldurækni í hvívetna varðandi mál félagsins okk- ar, sem sannar að ég sé greinilega góður félagi? Tek ég á mig það sem mér her af þunga og erfiði félagsins míns? Eða getur verið að innst inni í undirvitundinni sæki á mig sú hugsun, að njóta þess sem notið verð- ur, en sniðganga allt sem getur verið erfitt og leiðinlegt í félagsstarfinu? Hef ég þor og karlmennsku til að mæta þeim erfiðleikmn sem til fall- ast á hverjtun tíma? Hef ég kjark til að fóma einhverju alveg sérstaklega ef félag mitt krefst þess af mér? Beygi ég af og irnivef mig afsökun- mn í tíma og ótíma, sönnum og ó- sönnum, til þess að forða mér frá því að gera skyldu mina gagnvart félaginu mínu? Vinn ég og hugsa ég nóg um það að leggja minn skerf til þess að allt samstarf félaganna verði þannig að þessi leikföng, þessi stað- ur geti verið heimur gleði og sam- vinnu, heimur fegurðar og siðprýði: Leikskóli, skóli góðrar umgengni og menningar? V. H. Fulltrúar Vals í íþróttasamtökum Valur er, sem kunnugt er, aðili að þrem íþróttaráðum, auk Iþrótta- bandalags Reykjavíkur. Fulltrúar félagsins þar eru nú: Iþróttabandalag Rvíkur: Andreas Bergmann. Situr í framkvæmda- stjóm bandalagsins. Knattspymuráð Reykjavikur. Ein- ar Bjömsson, sem jafnframt er for- maður ráðsins. Handknattleiksráð Reykjavíkur: Bergin- Guðnason. Mánudaginn 23. nóvember átti hinn síimgi og glaði stofnandi Vals, Guðbjöm Guðmundsson, sjötugsaf- mæli. Ekki ber hann það þó með sér, að hann hafi lagt að baki sér 7 tugi ára, en kirkjubókum verður ekki breytt, og það sem þar stendur „bliver“. Kerlingu Elli hefur ekki tekizt að tuska hann til og hann hef- ur vikið sér undan hverju hennar bragði. Vígreifur og hress gengur hann til vinnu sinnar, nú eins og hann hefur gert allt frá þvi að Val- ur var stofnaður, en þá var Guð- bjöm að læra prentiðn í ísafoldar- prentsmiðju, og æ síðan hefur hann verið iðn sinni trúr. Guðbjöm hefur alltaf verið mjög áhugasamur um félagsmál og ekki var hann gamall þegar hann gerðist félagi í drengjadeild KFUM, og það var einmitt þar sem hann beitti á- hrifum sínum til stofnunar Vals á sínum tima. Knattspyraan heillaði huga hans, eins og margra annarra ungra manna á öllinn tímum. Það var því ekkert eðlilegra en að Guð- bjöm tæki að sér stjómarstörf í Val á þessum fyrstu árum hans, og sat hann í stjóminni mörg ár eða allt fram undir 1922, og var oftast ritari. Við, sem tókum saman sögu Vals i 50 ára ritinu, kynntumst því hve vel og samvizkusamlega hann færði gerðabækur félagsins, og einmitt á þeim tima, sem erfitt hefði verið að rekja söguna eftir minni manna. Þótt Guðbjöm hætti störfum fyrir Val, eftir 12 ára starf á byrjunar- árunum, hefur hann samt alla tíð fylgzt með félaginu, fundið til með þvi ef illa gengur og glaðzt, ef bel hefur famazt. Hann var gerður heiðursfélagi í Val í afmælisfagnaði á 20 ára af- mæli félagsins 11. maí 1931. Ef við hittum Guðbjöm í góðu næði, og hann gefur sér tíma til að láta hugann renna til æskuára Vals, kemur oft ýmislegt skemmtilegt fram Guðbjörn Guðmundsson. í dagsljósið, sem varpar skemmtilegu Ijósi á tíðaranda þess tíma. Er þar ýmislegt sem nútímamönnum kann að þykja forvitnilegt, og þó kemur allstaðar í gegn að innst inni em viðbrögð æskunnar þau sömu. Leik- þráin sú sama. Guðbjöm er fundvís á það glaðværa í frásögninni af at- burðunum. Hann skrifaði í 25 ára afmælis- blað Vals fyrir 28 ámm grein, er hann nefnir „Nokkrar minningar frá fyrstu árunum", og af tilefni þessa afmælis Guðbjöms, þótti okk- ur viðeigandi að taka þær hér upp, þar sem þetta blað mun í fárra manna höndum. Allstaðar kemur það fram hjá Guðbimi, að séra Friðrik Friðriksson var leiðtoginn, sem þeir stóðu alltaf í þakklætisskuld við. Auðvitað vildu þeir launa Friðrik þetta, og segir Guðbjöm frá þvi á þennan hátt: Eitt sinn, er ég kom inn til Lofts Guð- mundssonar (fyrsta formanns Vals) fór hann að tala um hvort við gæt- um ekkert gert fyrir séra Friðrik, sem væri svo mikils virði fyrir fé-

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.