Valsblaðið - 24.12.1964, Page 32

Valsblaðið - 24.12.1964, Page 32
30 VALSBLAÐIÐ VIÐ KYNNUM hina dáðu þjóðhetju Brazilíumanna og beztu skyttu í heimt’ PeU\ konung knattspymunnar Hann er stórauðugur maður. Hann er rómaður í ljóði og óbundnu máli, hann hefur lcikið aðalhlutverk- ið í kvikmynd um eigin ævi sína og hann færi 1500 bréf á mánuði frá aðdáendum um víða veröld. Hann er þekktur undir nafninu Pelé, en hið rétta nafn hans er: Edson Aran- te do Nascimento — og hann er Brazilíumaður. Hann er mesti knatt- spymumaður í heimi, hinn ókiýndi kommgur knattspymuíþróttarinnar. 1 landsleikjum þeim, sem hann hefur tekið þátt í á sex ára tíma- bili, hefur Pelé skorað að meðaltali eitt mark í hverjum leik. Öllum öðr- um fremur er það hann, sem stuðl- að hefur að sigri Brazilíumanna í heimsmeistarakeppni tvisvar í röð, 1958 og 1962, og félag hans, Santos, hefur tvisvar í röð orðið heimsins bezta knattspymufélag. Knattspymnjöfurinn Pelé er hæg- látur og fallegur 24 ára gamall negri. Hann er um 175 cm á hæð og veg- ur 73 kíló. „Pelé getur gert með fótunum sérhvað það, sem sjónhverf- ingamaður mætti vera hreykinn af að geta með höndunum,11 sagði mót- herji Pelé eitt sinn að leik loknum. Knattrekstur hans er öldungis frá- bær. Það er líkt og hann gæli við knöttinn ýmist með hægri eða vinstri fæti, skiptir eldsnöggt um hlaupa- lag, frá drjúglöngum skerfmn í ör- hraðan fótaburð, leikur á mófherj- ana, svo engu er líkara en þeir hafi skotið rótum á vellinum, og svo: BANG! Það verður því likast sem sprenginn bak við knöttinn og hann hvín í homið við stöng og slá. Engin íþrótt dregur að sér jafn- marga áhorfendur og knattspyman. Ekki einu sinni krikketið jafnast á við hana i Englandi, og Spánverjar missa heldur af nautaatinu sínu en góðum knattspymuleik. Allt að 200 Pelé. þúsund áhorfendur í senn koma á knattspyrnuleiki i Bíó de Janeiro, 130 þúsund í Madrid og 140 þúsund í Glasgow. Á Bretlandi taka 10 mill- jónir manna þátt i knattspymuget- raunum, fimmta hver fjölskylda, fyrir 16.000 milljónir islenzkra króna á ári! Það er þessi gífurlega þátttaka og áhugi fyrir knattspymunni sem veldur því, að snillingar eins og Pelé em virði þunga síns í gulli, og það er síður en svo of mikið sagt. Keppn- in milli knattspymufélaga atvinnu- mannanna er hnífskörp og mjög hörð. Eitt sinn gerðu þrjú beztu knattspyrnufélög Ítalíu tilboð í Pelé. Þau buðust til þess að greiða yfir 60 milljónir króna fyrir piltinn. Félag Pelé, Santos, var á báðum áttum, en hver var það, sem greip inn i ? Eng- inn annar en þáverandi forseti Brazi- liu, Janio Quadros. Hann skipaði svo fyrir að tilboðinu skyldi vísað á bug. Þvi var lýst yfir, að Pelé væri þjóð- areign. í flokki með ómetanlegum listaverkum og lagt á hann útflutn- ingshann. I raun og vem hafði það aldrei hvarflað að ráðamönnum San- tos að selja hann. Beyndar af næsta eigingjömum hvötum, því eins og formaður félagsins sagði: „Ef við hefðum selt Pelé, hefðum við á stundinni verið myrtir án dóms og laga“. SUÐANDI KÖLIBRÍFUGLINN Edson Arantes do Nascimento ólst upp í jámbrautarbæmnn Bauru í fylkinu Sao Paulo. Faðir hans var fátækur skiifstofumaður. Bömin vom fimm og fjölskyldan bjó í hreysi. Edson litli hafði einungis göt- una til þess að leika sér á. En faðir Edsons hafði á unga aldri leikið knattspyrnu, og hann hóf snemma að kenna Edson litla listir knattspymunnar. Hann var orðinn þó nokkuð leikinn löngu áður en hann fór að geta stafað. Og með berum fótunum lék hann. Jafnframt varð fátæki snáðinn að afla tekna til framfæris fjölskyldunni. Hann seldi hnetur fyrir utan kvikmynda- liúsin, burstaði skó og seldi blöð. En hann átti það sammerkt með öllum braziliönskum drengjum, að knatt- spyman átti frá fyrstu tíð hug hans allan. Svo var það dag nokkmn, að Ed- son lék til uppfyllingar í leik með verkamönnum, sem voru að reisa stórbyggingu í nágrenni þorpsins. Maður að nafni Waldemir de Brito, fyrrverandi atvinnuknattspymu-

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.