Valsblaðið - 24.12.1964, Síða 33

Valsblaðið - 24.12.1964, Síða 33
VALSBLAÐIÐ 31 ma'ður, átti leið þarna hjá og fór að fylgjast með af rælni. Sér til mik- illar undrunar sá hann þennan skin- horaða og sýnilega vannærða dreng, þar sem hann sveif eins og lítill fugl í alls konar krákustígum milli hinna fullorðnu manna með boltann sem límdan við bera fætuma. Það duld- ist ekki hinum reynda knattspyrnu- manni að hér var efni á ferðinni, og hann hafði orð á því. t heil fjögur ár var Edson litli undir handleiðslu Waldemirs de Brito. Að þeim liðnum gaf hann Edson fyrstu siðbuxumar, sem hann eignaðist á ævinni, og fékk samþykki foreldra hans til þess að taka hann með sér til kaffibæjarins mikla, San- tos. Þar kynnti haim feiminn fimm- tán ára ungling fyrir virðulegri stjóm Santosfélagsins með þessum orðum: „Þessi drengur verður á sín- um tíma mesti knattspyrnumaður heims“. Edson var strax látinn fara að æfa með atvinnumönnum félagsins og það kom fljótlega í ljós, að Walde- mir de Brito var enginn annars flokks spámaður. Heima í litla bæn- Bauro var hann vanur þvi að leika á sér stærri og sterkari menn, og hann hefði enga minnimáttarkennd gagnvart snillingum Santos. Að skömmum tíma liðnum var hann fastráðinn í eitt af liðum félagsins með 3 þúsund króna kaupi á mán- uði. Hann lék sinn fyrsta leik með Santos árið 1956. Santos vann þann leilc með 7:1, og Pelé fór ekki svo slaklega af stað. Hann skoraði fjög- ur af mörkunum! HEIMSFRÆGÐ Áður en ár var liðið var þessi fyrr- verandi skóburstari, yngsti atvinnu- maður knattspyrnusögmmar, orð- inn þjóðsagnakennd persóna i Brazi- líu. Á knattspymuvellinum var eng- inn honum likur, það voru menn sammála um. Það var alveg sama hversu hratt hann þurfti að hlaupa, hann hafði ávallt fullt vald á knatt- inum, það var þvi líkast sem knött- urinn væri yú-yú í ósýnilegu bandi. Hann var aldrei i neinum vandræð- um með að gefa knöttinn til sam- herja. Nákvæmni hans með skalla brást aldrei. Hann lét sig engu skipta með hvorum fætinum hann spymti knettinum og hann gat leikið knett- inum með snúningi fram hjá örviln- uðum vesalings markverði mótherj- anna, þegar honum bauð svo við að horfa. En iþróttablaðamennirnir upp- götvuðu fljótlega, að Pelé hafði enn einn hæfileika: Hann var „taktiker“ af guðs náð. f hita leiksins megnaði hann, ískaldur og rólegur, að byggja upp hinar flóknustu árásaraðgerðir. Á hverri sekúndu leiksins virtist hann þekkja staðsetningu hvers ein- asta mótherja og geta sér auk þess til um það, hvað hver þeirra ætlaðist fyrir. Þetta er án alls efa stærsti styrkur hans, að geta myndað sókn- djarfa og samstillta einingu, hvort heldur til varnar eða árásar, úr sér- hverju ellefu manna liði. Enginn veit hvernig hann fékk nafnið Pelé, og enginn veit heldur hvað það þýðir. Það er bara gælu- nafn. Árið 1958, í heimsmeistarakeppn- inni í Stokkhólmi, vann hann sér al- þjóðlega frægð. Hann var þá aðeins 17 ára og ekki heill vegna meiðsla i hné, en samt skoraði hann úrslita- markið móti Wales með snillibragði, sem knattspyrnusérfræðingur tala enn um. Pelé sneri baki í mark Walesmanna, lyfti knettinum í mjúkum boga aftur fyrir sig og beygði sig undir hann. Knötturmn snerti annan bakvörð Walesmanna og hraut af honum (það er uppá- haldsskemmtun Pelé að nota varnar- menn mótherjanna sem marksteng- ur), og áður en knötturinn kom til jarðar var Pelé kominn í skotstöðu og negldi knöttinn í netið með vinstri fæti. Á svipaðan hátt lék hann listir sínar í úrslitaleiknum við Svíþjóð. Hann var umkringdur af mótherj- um og á leið frá marki Svianna, fékk þá knöttinn sendan til sín og stöðv- aði hann með lærinu. Hann lyfti knettinum upp yfir höfuðið, sneri sér leifturhratt og á næsta sekúndu- broti þaut knötturinn fram hjá vam- arlausum sænska markverðinum. Og á seinustu minútu leiksins vann Pelé hástökkseinvígi við miklu hærri mann og skallaði knöttinn í netið. Það voru verðug úrslit á leik, sem endaði 5 :2 fyrir Brazilíu og færði henni heimsmeistaratign i annað sinn. Alla tíð síðan liafa fréttaritarar um knattspyrnu haft nóg að starfa að skrifa um þennan mesta snilling, sem knattspymusagan þekkir. Á Italíu er hann kallaður II Re, „kon- ungurinn“, í Frakklandi La Tulipe Noire, „svarti túlipaninn“, í Chile „El peligro, „hættan“. 1 munni Hér hefur Pelé enn einu sinni leikið á hinn sterka varnarmann, Parling frá Sviþjóð, og er þó aðeins 17 ára þegar það gerðist.

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.