Afturelding - 01.08.1987, Side 2
öldungar og forstöðumenn í Nyamira. Frímann Ásmundsson og Daníel Jónasson, greinarhöfundur í aftari röð, lengst
til hægri.
Daníel Jónasson:
Kynnisferð til Kenya
Þann 16. júní 1987 lagði ég upp
í ferð til Kenya. Fyrst var haldið
til Noregs og dvalist þar í 6 daga.
22. júní flaug ég svo til London
og eftir nokkurra klukkustunda
bið þar á flugvellinum var stigið
um borð í Boeing 747 og hóf hún
sig til flugs kl. 20:40. Flogið var
alla nóttina, snæddur kvöld-
verður og morgunverður.
Eftir átta tíma flug var lent í
Nairobi kl. 6:40 að staðartíma.
Frímann Asmundsson og fjöl-
skylda tóku á móti okkur, en
samferða mér frá Noregi voru
tengdaforeldrar hans, ung syst-
urdóttir Aud, konu Frímanns,
og vinkona hennar. Fyrstu nótt-
ina var sofið í Karen Bible
School í útjaðri Nairobi. Sá
biblíuskóli er rekinn sameigin-
lega af sænskum og norskum
Hvítasunnumönnum og fá þar
innfæddir forstöðumenn og
trúboðar uppfræðslu í Guðs
orði.
Þaðan var haldið til hafnar-
borgarinnar Mombasa við Ind-
landshaf og stefna tekin á
Tunglskinsströndina 20 km
sunnan við borgina. Aud og Frí-
mann reyna að taka sér frí eina
til tvær vikur tvisvar á ári þegar
frí er í skólanum og verða þá að
fara að heiman til að fá frið og
næði til hvíldar. Eftir sex daga á
ströndinni var ekið sem leið lá
um Nairobi til Thessalia kristni-
boðsstöðvarinnar, um 900 kíló-
metra leið.
Kristniboðsstöðin Thessalia
Thessalia er elsta kristniboðs-
stöð norskra Hvítasunnumanna
í Kenya og stendur á hæð um 60
km austur af borginni Kisumu,
sem stendur við Viktoríuvatn.
Hún er í um 1350 metra hæð yfir
sjó og rétt sunnan við miðbaug.
Það var árið 1955 sem norski
kristniboðinn Arvid Bustgárd
kom þangað í leit að heppilegu
svæði, sem gæti orðið vettvang-
ur norsks kristniboðs. Hann
keypti þetta ágæta land undir
stöðina af bandarískri ekkju, en
hún og maður hennar höfðu haf-
ið þar starf 1950. Frá stöðinni er
fagurt útsýni til allra átta, gróð-
ursælar sveitir og aflíðandi hæðir
og fjöll í fjarska.
í 32 ár hefur kristniboðsstöðin
verið í stöðugri uppbyggingu. *
Reist hafa verið 8 íbúðarhús
fyrir kristniboða og mörg önnur
fyrir innfædda, forstöðumann,
trúboða, kennara o.fl. Pá hefur
verið byggð kirkja, sjúkrastofa,
fæðingarheimili, barnaheimili,
skóli fyrir börn kristniboðanna
og heimavist fyrir þau, skóli fyrir