Afturelding - 01.08.1987, Blaðsíða 22

Afturelding - 01.08.1987, Blaðsíða 22
Hjónabönd í vanda — hvaö á aö gera ? Norska Ijóskan hafði í mörgu að snúast daginn sem viðtalið var tekið. Fimm ára afmæli Kristó- fers sonar hennar nálgaðist. Hún var að undirbúa veislu sem börn- in í nágrenninu mundu sœkja. A boðstólum yrði kaka, rjómaís, saft, leikir og gjafir. Og eigin- maður hennar œtlaði að búa sig upp og leika trúð. Allir mundu skemmta sér konunglega! Hún var líka að hugsa um tveggja ára gamla dóttur sína, og telja stundirnar þangað til Jenny yrði fullnuma í koppanotkun. Það yrði dásamlegur dagur! Auk þess var hún enn að búa um sig á nýja heimilinu sínu í Florida; kynnast nýjum vinum í kirkj- unni; og ekki má gleyma nýju hljómplötunni hennar When All Is Said and Done, sem var ný- komin á markaðinn. Fyrir tíu árum síðan var óhætt að setja jafnaðarmerki milli Evie Tornquist og „kristilegrar samtímatónlistar." Plötur henn- ar seldust betur en nokkrar kristilegar hljómplötur höfðu áður selst, og hún var eftirsótt. í staðinn fyrir að stumra yfir lösn- um krökkum og elda spaghetti fyrir óvænta gesti, þeyttist hún á milli flugvalla og fór í hljóðpruf- ur. Ef menn ætluðu að fá hana til að syngja, varð að bóka hana með nærri tveggja ára fyrirvara. Hún var á forsíðum kristilegra tímarita og kom fram í kristilegu útvarpi ogsjónvarpi. Hún varþá það sem Sandi Patti og Amy Grant eru núna. Þegar Evie Tornquist giftist Pelle Karlsson fyrir rúmum átta árum, fluttist hún til Stokkhólms og fórnaði tónleikalífinu fyrir hlutverk eiginkonu forstöðu- manns. Ári seinna fluttu þau til Bandaríkjanna vegna tækifæra til þjónustu sem þeim buðust þar, en Evie segist hafa verið viss um að hún ætti ekki að leggj- ast í tónleikaferðalög aftur. Þess í stað hefur hún einbeitt sér að því sem hún kallar aðalforrétt- indi sín: Að vera barn Guðs, eig- inkona og móðir. Evie, sem nú er þrítug, hefur unnið að ýmsum verkefnum, t.d. gert fjársöfnunarhljómplöt- ur, og sungið við sérstök tilefni. Nýlega fóru þau hjónin að vinna við Dominion Satellite Network, sem er frumraun í kristilegri fjölmiðlun og á gervi- hnött, sem sendur verður á braut snemma árs 1988. Auk barna sinna og hins nýja umhverfis leiðir Evie hugann að nokkrum alvarlegum málum þennan laugardag. Hún opin- berar skoðanir sínar á stöðu hjónabandsins og viðhorfi krist- inna manna til þess nú á tímum.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.