Afturelding - 01.08.1987, Qupperneq 4
Við kirkjuna í Nyamira.
Sjúkrastofa og fæðingarheimilið í Thessalia.
í þessari skírnarathöfn voru 28 skírðir.
þá, svo þeir verði betri starfs-
menn í guðsríki. Það er eins og
Svein Lind, ungur kristniboði í
Nynbare, sem hefur 160 söfnuði
á sínu svæði, sagði: „Hlutverk
okkar kristniboðanna er ekki að *
boða syndurum fagnaðarerind-
ið, því það gera innfæddir
trúboðar miklu betur, heldur að
uppfræða leiðtogana.“ Kristni-
boðarnir reyna að heimsækja
alla söfnuði á sínu svæði og vera
með þeim á samkomum, en slík
yfirreið tekur að vonum langan
tíma.
Tjaldstarfíð
Einn aðal vaxtarbroddur
starfsins í Kenya er tjaldstarfið.
Eitt samkomutjald er á hverju
svæði norska kristniboðsins og
eru tjöldin notuð allan ársins
hring. Algengast er að tjaldsam-
komur séu samfleytt í þrjár vik- >
ur á hverjum stað og skilar slík
herferð oft góðum árangri,
margir frelsast og endurnýjast.
Innfæddir trúboðar annast
tjaldstarfið. Þeir fylgja tjaldinu
eftir hvert sem það fer, reisa
það, prédika og annast söng og
útvega aðstoðarmenn. Þeir hafa
samkomur hvert kvöld og að
deginum til um helgar. Eins hafa
þeir samverustundir með upp-
fræðslu fyrir nýfrelsaða virka
daga. Herferðirnar enda oft
með skírnarathöfn. Síðan er
tjaldið flutt á nýjan stað og þar
hefjast samkomur viku síðar, en
þessa viku hvílast starfsmenn-
irnir.
Ég fékk tækifæri til að vera »
með á tveimur tjaldsamkomum
á mismunandi stöðum á Kisii
svæðinu. Sú fyrri var að kvöldi
til, myrkur grúfði yfir nema
þegar eldingar leiftruðu af og til
og það rigndi talsvert. Samkom-
an átti að vera byrjuð er við
komum, en þar var fátt fólk,