Afturelding - 01.08.1987, Page 7
Bert Christiansson.
eru kristnir og við reynum að
láta það andrúmsloft ríkja á
vinnustaðnum. En við viljum að
trú okkar sjáist fyrst og fremst í
því að við skilum fyrsta flokks
vinnu og góðri framleiðslu. Eitt
mesta gleðiefni okkar í sumar
var að fá að leiða einn starfs-
manna okkar til Krists. Það var
mikið þakkarefni.
Bert Christiansson starfar fyrir
sœnska útflutningsráðið að
tnarkaðsmálum. Hann sam-
rœmdi þátttöku fjórtán sœnskra
fyrirtækja á sjávarútvegssýning-
unni í Laugardal. Pau bjóða
tœkjabúnað til fiskiðnaðar „allt
frá veiði til lokavinnslu. “
Auk starfa að útflutningsmál-
tun Svía, m.a. í Bandaríkjunum
og Kanada, hefur Bert Christi-
ansson tekið þátt í kristilegu
starfi, m.a. ferðast um með söng-
hópinn „Fishers of Men.“ Við
spurðum Christiansson fyrst
hvað hann áliti um framtíð fisk-
veiða.
— Menn áætla að árið 1993
muni fiskneysla hafa þrefaldast í
heiminum. Fiskur er heilnæmari
en kjöt. Það eru gífurlega auðug
fiskimið um allan heirn. En flest
þróunarlönd hafa ekki þá tækni
sem þarf til að nýta fiskimið sín.
Þau skortir bæði tækniþekkingu
og stjórnun.
Við reynum að mæta þessari
þörf og með samvinnu margra
fyrirtækja næst betri árangur.
Öll kynning og markaðsöflun
verður ódýrari og kemur við-
skiptunum til góða.
Hafa þróunarlönd efni á að
kaupa sœnska tœkni?
Góð spurning! Alþjóðabank-
inn og norræni fjárfestingabank-
inn hjálpa til við fjármögnun.
Einnig kemur til þróunarhjálp
sænska ríkisins.
Geta kristniboðar kennt fisk-
veiðar?
Já, kristniboðar úr söfnuði
mínum í Fiskeback hafa t.d.
kennt fiskveiðar í Angola jafn-
framt kristniboðsstarfinu. Sama
hefur gerst í Brasilíu. Vanir
fiskimenn hafa verið sendir út og
kennt fiskveiðar meðfram
trúboðinu.
Er þér styrkur af trúnni í dag-
legu lífi?
Ég hef ferðast í viðskipta-
erindum víða um heim og hitt
ákaflega margt fólk. Það er
ævinlega grunnt á spurningum
um Guð hjá mönnum. Aður bar
fólk kinnroða fyrir að vera krist-
ið. Það er sagt að 48% Svía séu
trúaðir í hjarta sínu og um 53%
Bandaríkjamanna sækja kirkju.
Þar í landi er trú ekkert feimnis-
mál. Það eru taldar tvær megin-
ástæður þess að um fjórðungur
sænsku þjóðarinnar flutti til
Bandaríkjanna á sínum tíma.
Annars vegar fátækt og hins veg-
ar skortur á trúfrelsi heima fyrir.
Afhverju nýtur trúin svo mik-
illar hylli hjá fiskimönnum?
Ég segi ekki að trúin sé vinsæl,
heldur er hún nauðsynleg. Sá
sem lifir í sífelldri návist við
dauðann hefur stöðugt þörf fyrir
öryggiskennd. Vonleysið og
óvissan hefur aldrei verið jafn
útbreidd og á okkar dögum.
Aldrei fyrr.
Sértu fiskimaður veistu ekki
hvort þú átt afturkvæmt. Þú
verður að hafa eitthvað að halda
í, fullvissu og öryggi. Maður get-
ur sagt: „Þótt ég komi aldrei aft-
ur heim, þá veit ég að mér er
borgið um eilífð.“ Þegar fólk
lendir í háska þá biður það
gjarnan. Jafnvel þeir sem aldrei
annars biðja leita Guðs.
Hvað finnst þér um land og
þjóð?
Mér finnst íslendingar mjög
„ekta“, til dæmis það að hver
ber sitt eigið nafn. Ég dáist líka
að því hve íslendingar þekkja
sögu sína vel. íslendingar eru
einnig heimspekilega sinnaðir,
maður finnur fyrir dýpt þegar
maður talar við þá. Ég held að
það sé af því að fólk talar enn
saman hér. Áður fyrr stundaði
ég sjómennsku í Norður-At-
lantshafi og þekki því nokkuð til
aðstæðna hér. Ég kann vel við
Island.
Viðtöl: Guðni Einarsson