Afturelding - 01.08.1987, Qupperneq 9
0
F.v. Garðar Ragnarsson, Jóliann Pálsson, Ásmundur Eiríksson, Kristján Reykdal,
Guðnuindur Markússon, Tryggvi Eiríksson, Ásgrímur Stefánsson, Þórarinn Magn-
ússon. Myndin cr tckin á sumarmóti í Stykkishólmi 1959.
Herta og Þórarinn Magnússon
til Stykkishólms með það í huga
að hefja þar safnaðarstarf. Með
þeim í þessari fyrstu ferð voru
bræðurnir Guðmundur Markús-
son og Pétur Pétursson. Byrjað
var með því að fá kirkjuna lán-
aða og voru tvær fyrstu samkom-
urnar haldnar þar, og síðan í
samkomuhúsi bæjarins. Aðsókn
var mjög góð. Alls dvöldust þau
í tíu daga það sinn. Seinna um
veturinn kom Pórarinn einn og
hafði þá samkomur í heimahús-
um.
Um voriö 1947 komu þau
hjónin aftur og Guðmundur
Markússon með þeim. Þá hitti
Guðmundur Sigurð O. Lárus-
son afgreiðslumann í kaupfélag-
inu. Hann hafði þá eignast frels-
ið í Kristi um veturinn, en ekki
gefið sig fram við þau. Hann
fékk Guðmundi kr. 100,00, sem
hann gaf í starfið. Urðu þeir
sammála um það Guðmundur
og Þórarinn að þetta skyldi
verða fyrsti vísirinn að bygging-
arsjóði fyrir samkomuhús í
Stykkishólmi. Þar með var lagð-
ur grundvöllur að því verki sem
síðar varð að veruleika. Þá
þegar var sótt skriflega um lóð til
hreppsnefndarinnar, sem varð
við beiðninni og úthlutaði þeirri
lóð sem húsið stendur á.
I byrjun júlí 1947 var hafist
handa við að grafa fyrir húsinu.
Voru þá mættir til þess verks
Oskar Guðjónsson og Emil Kar-
vel frá Vestmannaeyjum, Páll
Lúthersson frá Akureyri, Hall-
dór Vigfússon frá Brjánslæk,
Þórarinn Magnússon og Stefan-
ía Sigurðardóttir frá Mjóafirði
við Djúp, sem var matráðskona.
Búið var og matreitt í tjöldum til
að byrja með.
Grunnurinn var steyptur 6.
ágúst 1947. Eggert Jónsson, Pét-
111' Pétursson og mágur Eggerts,
Gestir á sumarmóti 1959.
Páll, komu frá Reykjavík til að
slá upp fyrir grunninum.
Nokkru seinna komu Sigur-
mundur Einarsson, Eric Erics-
on, Karl Anderson frá Svíþjóð,
Harald Kyvik og Ásgrímur
Stefánsson frá Akureyri. Kjall-
arinn var steyptur um haustið.
Marteinn Markússon, smiður
frá Görðum, sló upp fyrir efri