Afturelding - 01.08.1987, Page 10
hæðinni ásamt fleirum. Var hús-
ið komið undir þak í maí 1948.
Laugardaginn fyrir hvíta-
sunnu fluttust hjónin Herta og
Þórarinn til Stykkishólms, voru
þau í leiguíbúð til 16. desember,
er þau fluttust inn í safnaðarhús-
ið.
Á jólunum 1948 var fyrsta
samkoman haldin í nýja sam-
komusalnum. 9. janúar 1949 var
stofnaður sunnudagaskóli.
Börnin fylltu salinn frá byrjun.
Vakningarvikur voru haldnar í
janúar árlega og liðsstyrkur kom
frá Reykjavík.
Fyrsta sumarmótið í Stykkis-
hólmi var haldið 24. júní til 2.
júlí 1950. Komu þá yfir 100
manns að, og sýndu Stykkis-
hólmsbúar frábæra gestrisni
með því að lána húsrými fyrir
aðkomufólkið. Við þetta tæki-
færi var samkomusalurinn vígð-
ur. Bænarandi hvíldi yfir mótinu
og Andi Drottins var nálægur.
Alls tóku 26 manns á móti skírn í
Heilögum anda. Nítján voru
skírðir niðurdýfingarskírn, þar
af ein kona úr Stykkishólmi,
Karólína Jóhannsdóttir, sem nú
stendur á níræðu.
Haustið 1955 fluttu Herta og
Pórarinn frá Stykkishólmi. í
þeirra stað komu Sigurlaug og
Ásgrímur Stefánsson, og héldu
starfinu áfram á sama hátt og
verið hafði, nema að byrjað var
með saumafundi fyrir stúlkur,
tvo flokka í viku fyrir yngri og
eldri. Einnig voru saumafundir
fyrir konur eins og verið höfðu
áður. Yfirleitt voru samkomur
vel sóttar og nokkrir bættust í
hópinn þennan tíma.
Ymislegt var unnið við að lag-
færa húsið, þar á meðal var
fleyguð í sundur klöppin á bak-
við það vegna sífellds vatnsaga,
sem lá innundir húsið. Vorið
1956 komu hjónin Sigríður og
Ingimar Vigfússon ásamt tveim-
ur börnum sínum, og var það
góður liðsauki. Þau voru í tvö ár.
Sumarmót var haldið aftur
dagana 21.-28. júní 1959. Var
það blessað mót, mikill bænar-
andi var yfir fólkinu. Andi
Drottins starfaði, 24 öðluðust
skírn í Heilögum anda, flest ungt
fólk. Fjórir voru skírðir í vatni
eftir fyrirmynd Biblíunnar. Yfir
100 manns sóttu mótið. Stykkis-
hólmsbúar sýndu sem fyrr vel-
vilja og hjálpsemi í að hýsa fólk-
ið. Um haustið 1959 fluttu Sigur-
laug og Ásgrímur suður vegna
beiðni frá Reykjavík í sambandi
við húsbyggingu Fíladelfíu, sem
þá var verið að reisa.
Þau sem þá tóku við voru
hjónin Anna og Garðar
Ragnarsson, sem komu í nó-
vember sama ár, og störfuðu í
sex ár. Milli 15 og 20 manns tóku
skírn á þeim tíma sem þau störf-
uðu þar. Þau höfðu auk fastra
samkomuhalda sunnudagaskóla
og unglingastarf. Á annað
hundrað börn sóttu skólann.
Einnig lagfærði Garðar ýmislegt
íhúsinu, málaði ogfleira. 12. nó-
vember 1965 fluttu þau til Fær-
eyja.
Þá kom Daníel Glad með
fjölskyldu sína til Stykkishólms
og tóku þau við starfinu. Dvöld-
ust þau þar í fjögur ár og höfðu
samkomur með svipuðu móti og
verið hafði. Daníel starfaði mik-
ið að blaða og bókasölu eins og
hann hefur ætíð gert. Ennfrem-
ur spratt upp bílskúr við húsið í
hans tíð þar.
Næstu starfsmenn urðu þau
Guðný og Hinrik Þorsteinsson,
sem fluttust til Stykkishólms ár-
ið 1970 og störfuðu þar til 1976.
Barna- og unglingastarfið var
blómlegt á þessum tíma, mikið
var föndrað, sungið, beðið og
Guðs orð hugleitt. Margir ungl-
ingar leituðu Krists. Auk hinna
venjulegu samkoma voru
saumafundir fyrir konur einu
sinni til tvisvar í mánuði og sam-
komur á sjúkrahúsinu. Sumar-
mót var haldið 1972, mótsgestir
fengu sem fyrr gistingu í heima-
húsum og einnig í barnaskólan-
um. Samkomutjald var reist við
barnaskólann. Ellefu manns
tóku biblíulega skírn þessi ár.
Hinrik hélt áfram viðhaldi á hús-
inu, setti meðal annars nokkra
nýja glugga í húsið.
Á eftir Hinrik voru Rut og
Sam Glad nokkra mánuði.
Þar á eftir kom Helena Leifs-
dóttir til Stykkishólms og var um
það bil tvö ár, hún starfaði einn-
ig mikið meðal barna og ungl-
inga.
1981 kom Frímann Ásmunds-
son með fjölskyldu sína og var
þar í rúmt ár, en þá fluttist íjöl-
skyldan til Noregs.
í desember 1982 fluttust
Benjamín Þórðarson og Berg-
þóra Kristinsdóttir til Stykkis-
hólms frá Akureyri og tóku við
starfinu. Samkomuhald hefur
verið með svipuðum hætti og
áður, auk þess sem þau hafa oft
haft helgistundir á dvalarheimili
aldraðra á staðnum. Benjamín
hefur lagfært húsið mikið síðan
hann kom. Meðal annars klætt
meirihlutann af húsinu að utan
og einangrað, einnig hefur han
tvöfaldað gluggana í salnum,
komið upp snyrtiaðstöðu í enda
salarins og fleira. Síðastliðið vor
fluttust hjónin Margareta og
Kjell Gunnar Lindblom, frá
Akranesi, og gengu inn í starfið.
Við þökkum Drottni fyrir alla
starfsmenn á þessu 40 ára tíma-
bili og þá náð og blessun sem
hvílt hefur yfir starfinu. Hann
sem byrjaði góða verkið á þess-
um stað mun fullkomna það allt
til dags Jesú Krists.