Afturelding - 01.08.1987, Blaðsíða 19
PEF (Pentecostal European Fellowship) nefndin saman komin fyrir framan rádstefnuhöllina.
sunnumanna. Ræðuefni hans
var: Hvítasunnuhreyfingin í
Evrópu.
Þarna voru saman komnir
margir af fremstu ræðumönnum
Hvítasunnumanna í Evrópu.
Margir söngkraftar voru þar
einnig og má meðal annars
nefna kósakkasöngvarann frá
Finnlandi, Viktor Klimenko,
sem söng sig inn í hjörtu við-
staddra.
A föstudagskvöldinu var sér-
stök bænasamkoma, þar sem
beðið var fyrir sölnuðunum fyrir
austan járntjald, og einkum
þeim trúsystkinum, sem eru í
fangelsi vegna trúar sinnar. Var
ótrúlegt að heyra greint frá því
hversu mörg þau eru. Þessi
bænasamkoma stóð til klukkan
þrju um nóttina.
A laugardagskvöldinu prédik-
aði portúgalskur prédikari að
nafni David Santos. Margvísleg
kraftaverk hafa átt sér stað á
samkomum þar sem hann hefur
talað og beðið fyrir sjúkum. Svo
var einnig nú.
I lok samkomunnar, sem
haldin var á sunnudagsmorgnin-
um, var boðið upp á fyrirbæn
fyrir þeim sem vildu skírast í
Heilögum anda og fyrir þeim er
þörfnuðust lækningar. Á sam-
komunni voru á milli 11 og 12
þúsund manns. Fram að ræðu-
pallinum komu á milli 600 og 800
manns til að leita fyrirbænar.
Fjöldi fólks skírðist í Heilögum
anda og fór að tala nýjum tung-
um. Mikill bænarandi var yfir
þessum hóp og mátti finna fyrir
nærveru Jesú Krists. Einnig
gerðust margvísleg kraftaverk,
fólk læknaðist af alls kyns sjúk-
dómum og krankleika. Fljótlega
sást maður veifa hækju sem
hann hafði gengið við og henti
hann henni síðan frá sér.
Skömmu síðar spratt upp kona
sem hafði setið í hjólastól og
gekk hún um og lofaði Guð.
Undrunarsvipurinn á andlitum
sumra leyndi sér ekki, en fólkið
lofaði Guð fyrir þá hluti sem
liann var að gera. Guð var sann-
arlega með í verki.
Það var ekki bara á tímum
Biblíunnar sem undur og tákn
áttu sér stað, heldur er það eins
og Jesús sagði að þetta mundi
fylgja þar sem við boðum fagn-
aðarerindið.
Lokasamkoma mótsins var
síðar þennan dag og komust
færri að en vildu, en hátalarar
voru utan dyra fyrir þá er ekki
komust inn.
Mótinu var síðan slitið með
hefðbundnum hætti og menn
þökkuðu Guði fyrir gott mót.