Afturelding - 01.08.1987, Blaðsíða 24
Áður en ákvörðun um starf
utan heimilis er tekin, ættum við
konur samt að fasta og biðja
Guð að sýna okkur hvernig hann
vill að við bregðumst við ábyrgð-
inni gagnvart heimilum okkar,
fjölskyldum okkar, og síðast en
ekki síst honum.
Hins vegar verðum við heima-
vinnandi konur sífellt að minna
sjálfar okkur á það að eigin-
menn okkar og börn skipa ekki
efsta sætið í lífi okkar. Það gerir
Jesús. Guð forði mér frá því að
láta manninn minn og fjölskyldu
mína hafa forgang í hjarta mínu.
Guð mundi hryggjast. Hann vill
njóta ástar minnar og athygli.
Ég verð að þjóna honum áður en
ég þjóna nokkrum öðrum. Ég
hef enga afsökun fyrir því að
verja ekki tíma með honum,
fyrir að láta hann ekki skipa
efsta sætið í hjarta mínu.
SP: Hvað um konuna sem
langar að byggja upp starfsferil,
þrátt fyrir að hún þurfi ekki á
tekjunum að halda?
Evie: Hvort sem um karl eða
konu er að ræða verða lang-
tímaáform okkar alltaf að lúta
stjórn Heilags anda. Þau verða
alltaf að mæta kröfum Biblíunn-
ar; þau mega ekki verða mála-
miðlun við helgun okkar og lík-
ama Krists. Við sem einstakling-
ar verðum stöðugt að einblína á
Drottin. En þetta á ekki aðeins
að gera einu sinni og gleymast
síðan. Þetta verður að gera á
hverjum degi.
Við Pelle vorum í Svíþjóð.
Við vorum í Kaliforníu. Nú er-
um við í Florida. Við verðum
alltaf að vera opin og reiðubúin
ef Drottinn skyldi segja: „Heyr-
ið þið, ég hef dálítið annað
handa ykkur.“ Við gátum komið
til Florida vegna þess að við vor-
um reiðubúin, við höfðum ekki
bókað tónleika ár fram í tímann.
Guð getur notað þig á einn hátt
um tíma, og síðan notað þig
öðruvísi í annan tíma. Það þýðir
ekki að eitt starfið sé réttara en
annað. Það þýðir að Guð sé við
stjórn og geti gert það sem hann
vill, þegar hann vill. Á þeim
tíma getur virst sem við séum að
víkja af upphaflegri braut, frá
upphaflegum markmiðum okk-
ar, en þangað til okkur skilst að
Guð vilji eitthvað annað ættum
við að halda áfram og vaxa þar
sem okkur hefur verið plantað.
Sp: Hvernig getur fólk búið
sig undir að verða góðir makar?
Evie: Ég verð fyrst til að við-
urkenna að ég veit ekki allan
sannleikann. En ég trúi því að
áður en við getum látið okkur
detta í hug að við verðum góðir
makar, þá verðum við að vinna
að sambandi okkar við Jesú.
Þegar við erum komin undir
stjórn Andans, þurfum við að
leita Guðs og biðja. Við þurfum
að gera þetta auk allra annarra
verkefna. Við þurfum að leita
ráða hjá foreldrum okkar.
Spyrja vini okkar hvað þeim
finnist. Spyrja prestinn — and-
legan hirði okkar. En framar
öllu ættum við að vita að Guð sé
að gefa okkur heimsins stórkost-
legasta mann eða konu. Ekki
verður alltaf allt í rósrauðum
ljóma, við munum ekki alltaf
verða sammála maka okkar í
öllu. En við verðum að vera
fullviss.
Þetta snýst allt um sjálfsfórn,
að færa Drottni okkur sjálf sem
lifandi fórn. Við verðum að færa
fram markmið okkar, drauma
okkar og framtíð. Við verðum
að leggja okkur sjálf fram fyrir
fæturJesú. Alltereinskisvert —
já, jafnvel hjónabandið — ef
Frh. á bls. 31