Afturelding - 01.08.1987, Blaðsíða 25
Roger Larsson
í Reykjavík
Sænski vakningarpredikarinn
Roger Larsson er væntanlegur
hingað til lands í nóvember.
Hann mun tala á samkomum í
Neskirkju, Reykjavík dagana
10. -15. nóvemberoghefjast þær
kl. 20:00 hvert kvöld.
Roger Larsson hefur starfað
innan Hjálpræðishersins um
árabil. Fyrir nokkrum árum
fékk Roger sérstaka vitjun frá
Guði og urðu þá umskipti í þjón-
ustu hans. Samkomur Rogers
einkennast af boðun fagnaðar-
erindisins með fylgjandi táknum
og undrum. Honum opinberast
atriði í lífi viðstaddra sem þurfa
á fyrirbæn að halda. Fjöldi fólks
hefur hlotið guðlega lækningu
meina sinna og lausn frá andleg-
um vandamálum, auk allra
þeirra sem eignast hafa lifandi
trú á Jesúm Krist.
Það er Hjálpræðisherinn á ís-
landi sem stendur að komu Rog-
ers Larssons, en Hjálpræðisher-
menn hafa fengið til liðs við sig
margar kirkjur og kristileg fé-
lög. Stjórnendur samkomanna,
túlkar, söngfólk og aðrir starfs-
menn koma því víða að úr hinum
ýmsu kristnu samfélögum. Rog-
er Larsson er vanur að efna til
víðtæks samstarfs meðal krist-
inna kirkna hvar sem hann kem-
ur. Þess má og vænta að þessi
heimsókn verði slíkur viðburður
að ekki veiti af liðstyrk hinna
mörgu.
Fólki er bent á að mæta tíman-
lega á samkomurnar vilji það
tryggja sér gott sæti
Námskeið um safnaðarvöxt
Dagana 15. - 20. september sl.
var haldið námskeið um safn-
aðavöxt (Church Growth) á veg-
um Fíladelfíusafnaðarins í
Reykjavík.
Kennari var Frank Matre frá
Noregi, rektor Menighetsbibel-
skolen í Sandefjord. Matre
þjónaði sem kristniboði í Zaire
og hefur verið forstöðumaður
Hvítasunnusafnaða í Noregi,
m.a. Salem í Osló. Frank M.
Matre fór í doktorsnám við Ful-
ler Theological Seminary í Kali-
forníu og rannsakaði vöxt
kirkna og safnaða. Doktorsrit-
gerð Matres fjallar um þróun
norsku hvítasunnuhreyfingar-
innar.
Námskeiðið í Reykjavík var
tvískipt. Fyrri hlutinn var ætlað-
ur öldungum og forstöðumönn-
um en seinni hlutinn almennu
safnaðarfólki. Þátttakendur
komu úr flestum Hvítasunnu-
söfnuðum á Islandi og mæltist
kennslan mjög vel fyrir. Fyrir-
lestrarnir voru hljóðritaðir.
Frank Matre hefur skrifað að-
gengilega bók „Som en mektig
flod", sem fjallar um safnaða-
vöxt og starfsaðferðir í safnaða-
starfi.
Hægt er að fá bók hans í
Versluninni Jötu og kostar hún
500 krónur. Einnig eru fáanleg-
ar enskar bækur um sama efni.
Verslunin sér og um að selja
hljóðritanir af fyrirlestrunum.