Afturelding - 01.08.1987, Qupperneq 27
fyrstu æviárin, veitt þeim þá um-
hyggju og ástúð sem þau þarfn-
ast og búið þau undir að takast á
við lífsbaráttuna, og þær skyldur
sem hún leggur þeim á herðar.
Eg er sannfærð um að það borg-
aði sig fyrir þjóðina að greiða
þeim konum laun, sem vilja
vinna heima við uppeldisstörf
barna sinna, heldur en ætla þeim
öllum pláss á barnaheimilum og
leggja í allan þann gífurlega
kostnað sem því fylgir, fyrir utan
það að ég veit að það er miklu
heppilegra fyrir börnin.
Ahrifin sem börnin verða fyrir
utan heimilisins eru mjög mikil
og vinirnir hafa mjög snemma
áhrif á þau. Einnig hefur sjón-
varpið mikil og oft slæm áhrif
inn á heimilin. Þess vegna er
ábyrgð trúaðra foreldra enn
meiri gagnvart börnum sínum.
Að sá í hjörtu þeirra því besta
sem þau eiga völ á, orði Guðs og
áhrifum þess. Það er ekkert sem
kemur börnum okkar betur en
að okkar kristni arfur verði einn-
ig þeirra hlutskipti. Þess vegna
er svo dýrmætt að geta byrjað
nógu snemma að sá í hjörtu
þeirra orði Drottins og kenna
þeim Guð ótta og góða siði. Við
getum mjög snemma farið að
biðja með þeim og láta þau hafa
orðin eftirokkur. Kennum þeim
að þakka Guði og gerum það að
eðililegum hlut að hafa borð-
bænir. Gott er að segja þeim
sögur úr Biblíunni eða lesa fyrir
þau úr Barnabiblíunni. Það er
ótrúlegt hve börn hugsa mikið
um andlega hluti og hve kjarn-
miklar spurningar þau bera fram
þegar við ræðum við þau um
Guðs orð. Gott er að byrja
snemma að venja þau á að fara í
sunnudagaskóla, samkomur og
guðsþjónustur, þannig að það sé
þeim eðlilegt að ganga í Guðs-
hús.
Ef foreldrar eru í vinnu utan
heimilis og börnin einhvers stað-
ar annars staðar á meðan, þá
gefur það auga leið að það eru
einhverjir aðrir sem hafa þessi
mótandi áhrif á börnin allan
daginn. Eru það þau áhrif sem
við viljum að börnin okkar verði
fyrir? Munum að Guð hefur fal-
ið okkur foreldrum ábyrgð á
uppeldi barna okkar, en einnig
að hann vill veita okkur allt það
sem við þörfnumst til þess.
Að lokum langar mig að
minna þig á orð úr Orðskviðum
16:3 „Fel Drottni verk þín, þá
mun áformum þínum framgengt
verða.“
Kæru foreldrar, Guð blessi
ykkur í ykkar göfuga starfi.
Hafinn yfir að kvarta
Merkur og dyggur kristniboði,
Allen Gardiner að nafni, rataði í
margvíslega erfiðlcika og mann-
raunir í þjónustu frelsara síns.
Þrátt fyrir allar þrengingar sínar
lét hann þessi orð falla: „Meðan
Guð gefur mér kraft og heilsu
munu engin áföll draga kjark úr
mér.“
Árið 1851 — þá 57 ára að
aldri lést hann af sjúkdómum og
hungri er hann starfaði að
kristniboði á Pictoneyju við
suðurodda Suður-Ameríku.
Þegar líkið fannst lá dagbók hans
skammt frá. Síðasta innfærslan í
litlu bókina hans sýndi skjálf-
andi rithönd sem reyndi að rita
læsilega skrift. Þar gat að líta eft-
irfarandi orð: „Gæska Guðs
umvefur mig á yfirþyrmandi
hátt.“ Þvílíkt! Ekki eitt einasta
kvörtunarorð — ekkert barns-
legt nöldur né mögl vegna kring-
umstæðnanna — bara þakklæti
fyrir gæsku Guðs.
Á sautjándu öld ritaði skoski
kennimaðurinn, Samúel Ruth-
erford þessi orð: „Sumt Guðs
fólk áfellir náðarverk Guðs í sál
sinni líkt og sumir aumingjar
gera, sem kvarta og mögla út af
skorti. „Ég á ekkert," segja þeir,
„allt er horfið og jörðin gefur
ekkert af sér nema illgresi," á
sama tíma og væn uppskera
þeirra og fjárráð gera þá að lyg-
urum ... Ég ráðlegg yður að fara
fögrum orðum um Krist sakir
fegurðar hans og yndisleika og
mæla fagurt um hann sökum
náðar hans.“
Ef við teldum upp allar þær
blessanir sem Guð hefur veitt
okkur að viðbættri þeirri hags-
bót og blessun sem nærvera hans
færir okkur, mundu kostirnir
gagntaka okkur. Þá skiptu kring-
umstæðurnar okkurekki máli og
við gætum tekið undir með
sálmaskáldinu forðum daga: „Ég
vil lofa Drottin . . .“ Við værum
þá hafin yfir að kvarta. Ef þér
kemur ekkert í hug til að þakka
fyrir, hefurðu lélegt minni.
„Eg vil lofa Drottin meðan
lifi, lofsyngja Guði mínum, ineð-
an ég er til.“ (Sálmur 146:2).
Þýtt — HSG