Afturelding - 01.08.1987, Qupperneq 28
ERLENDAR FRÉTTIR
- ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAB
Svartir og hvítir þvo fætur
hver annars
Síðla í júní var haldið mót í Suður-
Afríku með þátttöku kristinna
manna frá 24 þjóðlöndum. Ungt
fólk mcð hlutverk skipulagði mótið,
sem stóð í viku. Menn komu saman
til lofgjörðar, tilbeiðslu, kennslu og
trúboðs. Um þrjú þúsund manns
sóttu samkomurnar; þar ríkti mikil
eining og handleiðsla Guðs.
Enok Vestergárd frá Danmörku
var einn þátttakenda. Hann sagði
m.a.:
— Þetta var alveg frábært. Eftir-
tektarvert er hversu opnir menn eru
fyrir fagnaðarerindinu þarna. Síð-
degis fórum við út í litlum hópum til
að prédika. Þegar við stóðum úti á
götu var ekki óalgengt að 200 manna
hópur safnaðist saman til að hlusta.
Enok segist hafa séð ástandið í
Suður-Afríku í nýju ljósi í ferðinni.
— Aðskilnaður er víða í miklum
mæli — því miður — en almennt á
sér stað mjög jákvæð þróun í sam-
skiptum svartra og hvítra í Suður-
Afríku. I flestum kirkjum sér maður
svarta og hvíta sitja hlið við hlið.
— Áhrifamesta reynslan okkar
allra, ekki síst fyrir þá svörtu, var
fótaþvotturinn. Sem tákn fyrir auð-
mýkt, virðingu og kærleika þvoðum
við fætur hver annars eitt kvöldið.
Að ég skyldi þvo fætur „svertingja"
hafði ekki eins mikil áhrif á mig eins
og Suður-Afríkubúann. Hann er
vanur því að vera afskiptur og ekki
virtur viðlits, og allt í einu situr hvít-
ur maður fyrir frantan hann og þvær
fætur hans.
— Við getum verið ólík í útliti,
kynþætti og þjóðerni, en í Jesú og
trúnni á hann erum við eitt — og það
fengum við að reyna!
Udf. 3887
Prestur settur af í Lettlandi
Sovésk yfirvöld liafa neytt lút-
herska erkibiskupinn af Lettlandi til
þess að láta af þjónustu sinni.
Ákvörðunin tók gildi í maí og hefur
haft í för með sér áköf mótmæli
meira en fimmtíu safnaða í Lett-
landi. Hinn mikli framgangur á síð-
ustu árum er ein af orsökum þess að
yfirvöld hafa nú gripið inn í. Söfnuð-
urinn í Kuldiga taldi 300 meðlimi
1982. Nú eru meira en 500 manns í
söfnuðinum og það er ekki óvana-
legt að 1200 manns þiggi altaris-
sakramenti.
KS 3887
Náðargjafavakningin eykur
skiining
Náðargjafavakningin hefur aukið
skilning milli kirkjudeilda. Þetta var
fullyrt á ráðstefnu í Gwatt í Sviss í
ágúst, þar sem 38 „hvítasunnufræð-
ingar" úr Evrópu voru saman komn-
ir til þess að ræða endurnýjunar-
vakninguna. Ræðumenn á ráðstefn-
unni töluðu m.a. um guðfræðilegar
rætur hvítasunnuhreyfingarinnar,
kenninguna um þúsundáraríkið, til-
hneigingu hreyfingarinnar til að
verða alþjóðleg frá upphafi og mikil-
væga köllun frumkvöðlanna. Mikla
athygli vakti W.J. Hollenweger,
sem er frá Sviss, en kennir við há-
skóla í Englandi. Hann talaði um
viðhorf Hvítasunnumanna til guð-
dómlegra lækninga, og hélt því fram
að aðrar kirkjudeildir væru allt of
hlédrægar á þessu sviði.
KS 3687
LP-stofnunin tekur í notkun
nýtt heimili
LP-stofnunin í Svíþjóð, sem vinn-
ur meðal utangarðsmanna samfé-
lagsins, tók í notkun nýtt heimili í
byrjun september í Askersund ná-
lægt Örebro. Staðurinn var keyptur
af sveitarfélaginu í Örebro og er
þetta stærsta verkefnið sem nokkurn
tímann hefur verið ráðist í. Reiknað
er með að nýja heimilið rúmi 250
manns.
KS3887