Afturelding - 01.08.1987, Qupperneq 31
Frh. af bls. 24
Jesús hefur ekki blessað það. Ef
ég hefði efast hið minnsta um að
það myndi ganga, þá hefði ég
aldrei gifst. Hver sem giftist með
þessari afstöðu: „Kannski geng-
ur þetta, kannski ekki — og ef
það gengur ekki, þá fáum við
bara skilnað,“ sá býður erfið-
leikunum heim. Þetta er ekki
eins og Guð ætlaði það. Þá er
betra að giftast ekki.
Sp: Nú þegar fólk er gift,
hvernig á þá að halda sér á réttri
leið?
Evie: Þetta hljómar kannski
gamaldags, en þetta er mikið
grundvallaratriði. Ef tveir ein-
staklingar sameinast um að
leggja stöðugt til hliðar eigin
langanir — ef þau sækjast stöð-
ugt eftir að þjóna hvort öðru —
þá mun Drottinn láta hjónaband
þeirra ganga vel. Þú þarft ekki
að keppa eftir því að uppfylla
þínar þarfir — allt sem þú þarft
að gera er að uppfylla þarfir
maka þíns. Þá munt þú komast
að því að þínar þarfir verða upp-
fylltar.
Sp: Þetta hljómar allt vel, en
gerist þetta svona í raun og
veru?
Evie: Við erum kirkja á þessu
heimili. Þarna (bendir á Pelle)
er presturinn minn. Við biðjum
til Guðs saman og lesum orð
hans daglega. Við reynum að
hlýðnast því sem Drottinn vill að
við segjum og gerum. Við tölum
við börnin. Við biðjum með
þeim. Að sjálfsögðu koma upp
erfiðleikar og ágreiningsmál, en
við erum ákveðin í að leysa úr
þeim. Við höldum líka kímni-
gáfunni mjög vel við. Ég held að
við öll fjögur mundum segja að
þessi aðferð gengi vel, Guði sé
lof.
Sp: Kristófer er fimm ára.
Hvernig meðhöndlið þið hugs-
anleg áhrif fjölmiðla?
Evie: Hann er nógu gamall til
að við tölum við hann um suma
hluti. En hann hefur lært heil-
mikið sjálfur eða með því að
fylgja fordæmi okkar. Þegar
hann sér suma þessa sjónvarps-
þætti sem hneigjast í átt að hinu
dulræna, þá grettir hann sig og
skiptir um rás.
Einu sinni fengum við leik-
fang sem ég vissi ekki hvað var.
Því fylgdi lítill bæklingur. Þegar
ég var að lesa þetta upphátt fyrir
Kristófer án nokkurra blæbrigða
í röddinni — ég var að reyna að
skilja — þá las ég kafla um strák
sem var að leika sér með krystal-
kúlu og spá. Einmitt þá sagði
Kristófer: „Mamma, þessi bók
lofar ekki Drottin.“ Ég sagði:
„Þú hefur alveg rétt fyrir þér,
Kris.“ Svo við höfðum dálitla at-
höfn yfir ruslakörfunni. Við vilj-
um ekki svona hluti á heimili
okkar, vegna þess að þeir gætu
hleypt djöflinum inn — þeir
gætu gefið honum tækifæri til að
leika sér lítið eitt að hugsunum
okkar.
Þetta gæti hljómað öfgafullt,
en þegar maður er að reyna að
vera fyllilega helgaður á öllum
sviðum lífsins, þá er of mikið að
leyfa djöflinum að leika sér lítið
eitt.
Sp: Hvernig fer þetta fram í
raun og veru frá degi til dags?
Evie: Á hverjum morgni
þegar við vöknum, verðuin við
að gera okkur grein fyrir því að
við erum hold og blóð og að okk-
ar gamli maður vill rísa upp aft-
ur. Við verðum fyrir þeirri
freistingu að taka hlutina í okkar
hendur. Við freistumst til að
vilja gera það sem hugur okkar
segir, það sem markaðsrann-
sóknirnar segja og það sem
fjölmiðlarnir segja. Samt geta
þessir hlutir verið í algjörri and-
stöðu við það sem Drottinn vill.
Daglega verðum við að velja
það að leggja líf okkar fram, við
verðum að velja það að þjóna.
Ég hélt að ég vissi hvað þjón-
ustulund væri. En þegar fyrsta
barnið okkar fæddist fékk ég
fyrst að finna fyrir því. Nokkrum
klukkustundum eftir að hafa al-
ið þennan dásamlega litla dreng,
gerði ég mér grein fyrir því að
næstu átján til tuttugu árin yrði
ég ábyrg fyrir lífi hans. Þarfir
lians verða fyrirferðarmeiri en
nokkuð annað í lífinu. Þótt und-
arlegt megi virðast þá hef ég
mikla ánægju af þessu, þrátt
fyrir að mestallan tímann sé það
langt frá því að vera sveipað
dýrðarljóma. En ég veit að ég
get ekkert gert, sem er meira
skapandi og sem hefur meira ei-
lífðargildi en að ala þessi börn
upp, með hjálp Drottins og góðs
eiginmanns.
Stytt og þýtt úr Charisma — GM
AFTURELDING
54. árgangur 3. tbl. 1987
Útgefandi: Filadelfia-Forlag, Hátúni 2,105 Reykjavik.
Sími: 91-20735/25155. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Einar J.
Gíslason, sími 91-21111. Setning og prentun: Prentstofa G.
Benediktssonar. Uppsagnir miðast við áramót. Vinsamlegast til-
kynnið breytingar á heimilisföngum og áskriftum til skrifstofunn-
ar. Árgjaldið er 850 krónur.